Frjáls verslun - 01.02.2009, Blaðsíða 33
N æ r m y N d
hafa orðið afar niðurdregin yfir þessu á tímabili í vetur og lítið annað
hafi komist að, þótt hrunið hafi ekki haft mikil áhrif á sitt daglega líf
prívat og persónulega. Hins vegar verði hún stöðugt vör við ástandið
í þjóðfélaginu í gegnum vinnu sína, þar sem hún vinni mikið fyrir
stéttarfélögin og sífellt leiti til hennar fólk sem sé að missa vinnuna
eða verið sé að brjóta á í tengslum við ráðningar- eða kjarasamninga.
Fólk sé niðurbrotið og hún reyni að aðstoða það og leysa úr mál-
unum eftir bestu getu.
Blálandsdrottningin og kartöflurækt
Láru þykir óskaplega gaman að allri útiveru, hún hleypur og fer í leik-
fimi nokkrum sinnum í viku. Þá þykir henni gaman að fara út á sjó
en hún er með pungapróf og á hlut í bát sem hún fer dálítið út á á
sumrin. Hún hefur gaman af því að ferðast til framandi landa og að
lesa og segist alltaf vera með fullt af bókum í kringum sig. Spennu-
sögur eru í hvað mestu uppáhaldi og hún er ein þeirra sem kaupir
Arnald á fyrsta útgáfudegi og klárar á tveimur dögum. Nýlega tók
hún þátt í vali á Fjöruverðlaununum og var í þeim hópi sem mat
bækur aðrar en fagurbókmenntir. Þar með segist hún hafa neyðst til
að lesa helling af fræðibókum og ævisögum eftir konur og hafi leynst
þar mjög skemmtilegar bækur innan um, t.d. Blálandsdrottningin og
fólkið sem ræktaði kartöflurnar eftir Hildi Hákonardóttur. Þar er sögð
saga kartöflunnar en sjálf hefur Lára einmitt mikinn áhuga á ræktun
hennar og er með kálgarð heima. Lára er gift Þorsteini Haraldssyni
endurskoðanda og saman eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn.
Hulda Rós Rúriksdóttir hæstaréttarlögmaður:
Sýnir lífinu áhuga
Ég hitti Láru fyrst fyrir u.þ.b. 20 árum þegar við byrjuðum að hittast
reglulega í fagfélagi eiginmanna okkar, en þeir starfa báðir sem lög-
giltir endurskoðendur. Á þeim vettvangi höfum við hist í gegnum árin
og átt margar góðar stundir saman. Seinna, fyrir u.þ.b. 10 árum, byrj-
uðum við saman að sjá um að kenna fag í lagadeild Háskóla Íslands
og vorum í því til ársins 2005. Árið 2006 hófum við svo að reka
saman lögmannsstofu og höfum gert síðan. Lára er ótrúleg kona,
hún sýnir lífinu í kringum sig einstaklega mikinn áhuga, ekki bara
sínu nánasta umhverfi heldur öllu sem viðkemur mannlegum sam-
skiptum og mannlegri breytni. Hún fylgist ákaflega vel með fólki og
man nöfn þeirra sem hún hefur einu sinni hitt. Sama er að segja um
alla pólitík og flest sem gerist í listalífinu í borginni og það er varla
til það skáldverk sem hún hefur ekki lesið. Það er afskaplega gott
að umgangast Láru því það er alveg sama hvaða málefni verið er
að ræða, hún finnur alltaf eitthvað jákvætt og dregur það fram. Það
eru engin vandamál hjá henni, bara verkefni til að leysa. Við förum
saman nokkrum sinnum í viku í líkamsrækt í hádeginu. Það er sami
áhuginn sem einkennir hana þar og annars staðar. Í líkamsræktinni
verður hún alltaf að keppa að nýju marki. Hjá henni gengur alls ekki
að vera alltaf að gera það sama þar, það nægir henni ekki heldur
þarf hún alltaf að prófa eitthvað nýtt. Henni finnst lífið spennandi og
þarf alltaf að ögra sjálfri sér, alla daga og í hverju sem hún tekur sér
fyrir hendur.
Oddrún Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri:
Gott að eiga hana að
Við Lára kynntumst í Versló fyrir um 40 árum og urðum báðar stúd-
entar úr hagfræðideild. Síðan höfum við grínast með það að við
vorum einu stelpurnar í okkar árgangi sem tókum stjórnun sem val-
fag og hefur eflaust mörgum þótt við nógu stjórnsamar fyrir! Lára er
einstaklega vel gefin, dugleg, réttsýn og heiðarleg og henni vex ekk-
ert í augum. Hún er heilsteypt manneskja sem ætíð eru falin trún-
aðarstörf þar sem hún kýs að bjóða fram krafta sína. Hún er kapps-
full en samt öguð í öllum vinnubrögðum, hefur sterka réttlætistilfinn-
ingu og einlæga samkennd með þeim sem standa höllum fæti í sam-
félaginu. Þrátt fyrir viðamikil og erilsöm störf á vinnumarkaði hefur
hún alltaf haft brennandi áhuga á félagsmálum hvers konar og valist
til forystustarfa í samtökum eins og Kvenréttindafélagi Íslands, skipti-
nemasamtökunum AFS og Rótarýhreyfingunni. Lára og Þorsteinn
eiga þrjú yndisleg börn og hefur heimili þeirra í áravís einnig staðið
opið erlendum skiptinemum sem margir hafa dvalið hjá þeim til
lengri tíma og þau halda sambandi við enn í dag. Maður skyldi ætla
að hún hefði ekki tíma frá fjölskyldu, vinnu, stjórnarsetum og félags-
málum fyrir nokkra aðra hluti en hún er mikill göngugarpur sem klífur
tinda hér og erlendis og stundar reglulega hlaup og líkamsrækt. Þau
Lára og Þorsteinn eiga athvarf ásamt nokkrum vinum að Arnarstapa
á Snæfellsnesi. Hópurinn keypti sér bát á dögunum og hún skellti
sér fyrir nokkrum misserum í pungaprófið og nema hvað, dúxaði!
Við Lára erum svo heppnar að vera í gönguhópi með frábærum
skólasystrum úr Versló sem annan hvern miðvikudag arkar um á
höfuðborgarsvæðinu. Þar að auki hittumst við vikulega á fundum í
Rótarýklúbbnum Reykjavík miðborg. Ég myndi hitta hana enn oftar ef
ég væri duglegri að mæta í ræktina.
Lára V. Júlíusdóttir, formaður bankaráðs Seðlabanka.
SAGT UM LÁRU:
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9 33