Frjáls verslun - 01.02.2009, Page 38
38 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9
f r é t t a s k ý r i n G
Það eru raunar mörg teikn á lofti. Ekki bara að VR hefur augljóslega fjarlægst Sjálfstæðisflokkinn. VR og raunar öll
samtök verslunarmanna í landinu hafa alveg
fram á þessa öld lotið forystu manna, sem
einnig hafa verið sjálfstæðismenn.
Fráfarandi formaður, Gunnar Páll Pálsson,
var þó ekki áberandi flokksmaður í sama
skilningi og forverar hans, Guðmundur H.
Garðarsson og Magnús L. Sveinsson. Þeir
gegndu áberandi trúnaðarstöðum fyrir flokkinn
og voru jafnframt forystumenn VR. Núna eru
þessi persónulegu tengsl við Sjálfstæðisflokkinn
rofin án þess að það segi nokkuð um hvaða
flokk félagsmenn VR kjósa.
Breytingarnar lúta líka óvissunni um rekstur
lifeyrissjóðanna nú í kjölfar hruns bankanna.
Voru lífeyrissjóðirnir í of nánum tengslum
við fallvaltar fjármálastofnanir? Þetta fjallar
líka um að verkalýðshreyfingin hefur smátt
og smátt fjarlægst umbjóðendur sína. Ráðnir
starfsmenn verkalýðsfélaganna hafa æ oftar
orðið að forystumönnum þeirra.
Ekki flokkspólitík
En fyrst pólitíkin. Áður þóttu engin tíðindi
þótt formaður VR væri einnig þingmaður
eða borgarfulltrúi sjálfstæðismanna. Hefur nýr
formaður, Kristinn Örn Jóhannesson, staðið
fyrir pólitískri uppreisn? Þegar Frjáls verzlun
ræddi við Kristin Örn vildi hann ekki lesa nein
sérstök pólitísk skilaboð út úr sigri sínum.
„Ég er ekki stjórnmálamaður og gagnrýni
mín á fyrri forystu hefur beinst að vissum
þáttum í starfi VR,“ segir Kristinn. Þar á
hann við málefni lífeyrissjóðanna og áherslur
í kjarabaráttu.
En er hann sjálfstæðismaður?
„Ég komst að því að ég er bæði skráður í
Sjálfstæðisflokkinn og Samfylkinguna,“ segir
Kristinn Örn. „Ég hef ekki í hyggju að vera
skráður í þessa flokka og segi mig úr þeim.
Ég hef aldrei verið virkur í pólitísku starfi en
þekki fólk í báðum þessum flokkum og í fleiri
flokkum.“
Samt er það svo að launþegafélag situr ekki
hlutlaust hjá og horfir á þjóðfélagið breytast.
„Auðvitað er verkalýðsfélag pólitískt að því
marki að það tekur þátt í mótun samfélags-
ins,“ segir Kristinn. „Ég tel að félag eins og VR
eigi að gegna slíku hlutverki en félagið er ekki
flokkspólitískt.“
lífeyrir og launakjör
En um hvað snýst byltingin í VR þá? Um
lífeyrissjóðina og um kjarabaráttuna, segir nýr
formaður.
Upphafið að mótframboðum innan VR
má rekja til þess að fyrrverandi formaður,
Gunnar Páll Pálsson, sat í stjórn Kaupþings
í krafti eignar Lífeyrissjóðs verslunarmanna
í bankanum. Þar stóð hann með öðrum í
stjórn að ákvörðunum sem síðan hafa verið
gagnrýndar; ákvörðunum um lánveitingar og
um niðurfellingu lána rétt fyrir fall bankans.
„Mín skoðun er að lífeyrissjóðir eigi ekki
að skipa menn í stjórnir hlutafélaga frekar en
aðrir fjárfestingarsjóðir,“ segir Kristinn. „Ég
vil ekki útiloka að slík stjórnarseta geti átt rétt
á sér en þá verða sérstök rök að koma til en
verkalýðsfélag á ekki að vera atvinnurekandi
líka. Það býður upp á hagsmunaárekstra.
Breytingarnar á forystunni nú eru líka uppgjör
við samkrullið milli lífeyrissjóða og fyrirtækja.
Hlutverk lífeyrissjóða er að ávaxta fé en ekki
að stjórna fyrirtækjum.“
Og það gengur ekki að mati nýkjörins
formanns að fulltrúi verkalýðsfélags þiggi
há laun fyrir stjórnarsetu, miklu hærri en
félagsmenn fá. Það er viðkvæmt mál.
misvægi í launamálum
„Það hafði örugglega áhrif á kosninguna að
VR var með launahæsta framkvæmdastjóra
lífeyrissjóðs,“ segir Kristinn Örn.
Hann gagnrýndi einnig svokallaða
markaðslaunastefnu hjá VR.
„Markaðslaunakerfið virkar best hjá þeim
sem eru í aðstöðu til að semja beint um eigin
kjör,“ segir Kristinn Örn. „Stór hluti félags-
manna getur samið fyrir sig og hefur gert
það. Hins vegar eru minnihlutinn – um 30%
– það eru almennt verslunarfólk, lagerfólk
og slíkir sem taka að stórum hluta laun eftir
Hann bylti
Kristinn Örn Jóhannesson er nýkjörinn formaður VR. Kjör hans markar tímamót. Um það
eru allir sammála. Í fyrsta lagi vegna þess að aldrei fyrr hefur uppreisn gegn sitjandi for-
ystu þar verið reynd og heppnast. Í öðru lagi er ekki lengur hægt að fullyrða að fjölmenn-
asta launþegafélag landsins sé „eign“ Sjálfstæðisflokksins.
texti: gísli kristjánsson ● Mynd: geir ólafsson