Frjáls verslun - 01.02.2009, Síða 54
54 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9
Í flokknum Almannaheillaauglýsingar – aðrir miðlar voru til-
nefndar 916 hafa látist (Umferðarstofa/Landsbjörg), framleið-
andi Hvíta húsið, Láttu ekki vín breyta þér í svín (Vínbúðin),
framleiðandi ENNEMM, Barn með bók (Félag íslenskra bóka-
útgefenda), framleiðandi Jónsson & Le’macks, Bjórinn blörrar
- vefborði (Umferðarstofa), framleiðandi Hvíta húsið, og Bleika
slaufan (Krabbameinsfélagið), framleiðandi Hvíta húsið.
Sigurvegari var 916 hafa látist sem var á vegum Hvíta húss-
ins, en sú auglýsingastofa átti þrjár tilnefningar í þessum flokki.
Gunnar Þór Arnarson, hönnunarstjóri hjá Hvíta húsinu, hafði
yfirumsjón með gerð auglýsingarinnar: „916 skópörum var
raðað upp fyrir utan dómkirkjuna í Reykjavík, hvert par táknaði
einstakling sem hafði látist í umferðinni á síðustu fjörutíu árum
og eru skópörin táknmynd þeirra fórna sem íslenska þjóðin
hefur fært á vegum landsins. Viðburðurinn var í tengslum
við fjörutíu ára afmæli H-dagsins, þegar skipt var yfir í hægri
umferð á Íslandi.“
Auglýsingin vakti mikla athygli og spannst í framhaldi mikil
umræða um umferðaröryggi: „Aðallega snerist umræðan um
að það hefði verið hægt að koma í veg fyrir flest þessara slysa
með aðgát, tillitssemi og ábyrgð. Ef ökumenn hefðu haft fulla
athygli, verið allsgáðir, notað tilheyrandi öryggisbúnað og ekið
samkvæmt aðstæðum hefðu skópörin verið mun færri.“
Gunnar segir að Hvíta húsið og Umferðarstofa hafi unnið
saman að umferðaröryggismálum á Íslandi síðustu ár og frjótt
hugmyndaflug og hæfni muni örugglega skila sér í fleiri áhuga-
verðum auglýsingum og viðburðum á næstu misserum.
almannaheillaauglýsingar
– aðrir miðlar
Skópör sem
tákna fórnarlömb
916 HAFA LÁTIST
í umferðinni á 40 árum*
*á tímabilinu frá 26. maí 1968 til 26. maí 2008.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
-
0
8
-1
1
1
0
ÍMARK
verðlaunin
HVíta Húsið
Gunnar Þór arnarson, hönnunarstjóri og Rósa Hrund
kjartansdóttir, hönnuður.