Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2009, Page 56

Frjáls verslun - 01.02.2009, Page 56
56 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9 b ó k a r d ó m u r Þ að eru breyttar leikreglur. Það er gjörbreytt landslag í umhverfi leiðtoga og stjórnenda fyrirtækja. Sagt hefur verið að auðvelt hafi verið að ná góðum árangri í rekstri á uppgangsárunum en nú skilji „drengina frá mönnunum“. Í Bókinni Leadership in the Era of Economic Uncertainty – The New Rules for Getting the Right Things Done in Difficult Times, fjallar höfundurinn Ram Charan um það hvað við sem leiðtogar og stjórn- endur verðum að gera til að tryggja viðgang fyrirtækja okkar. Athugið að ekki er talað um að tryggja vöxt fyrirtækja okkar því höfundur segir beinum orðum oftar en einu sinni í bókinni að verkefni kom- andi ára verði viðgangur fyrirtækja, ekki vöxtur, og kveður svo fast að orði á einum stað að segja að í óákveðinn tíma verði spurningin ekki hve mikið velta fyrirtækisins óx heldur hvort hún lækkaði meira eða minna en velta samkeppnisaðilans. Höfundurinn Ram Charan er mjög virtur rekstrarráðgjafi og hefur unnið með og þjálfað fjölda stjórnenda sem hafa náð miklum árangri í störfum sínum. Hann hefur aðstoðað fyrirtæki á borð við General Electric, Bank of America, Verizon, KLM og Thompson að marka sér stefnu og hrinda henni í framkvæmd. Hann er jafnframt metsöluhöfundur og skrifaði ásamt öðrum bækurnar Execution og Confronting Reality en þessar bækur eru mörgum stjórnendum að góðu kunnar. Hér er því á ferð maður með gríðarlega reynslu bæði í orði og á borði. máttur upplýsinga Reynsla höfundar skín í gegnum efni bókarinnar. Hann tekur fjölmörg dæmi um fyrirtæki sem hann hefur unnið með sem hafa nýtt sér þær leiðir sem hann kynnir í bókinni. Það gefur bókinni aukið vægi og eykur á trúverðugleika hennar. Hann leggur höfuðáherslu á að stjórnendur þurfi að vera viðbúnir því versta án þess að fórna framtíðarhagsmunum. Aðaláhersla stjórnenda þurfi að vera á að tryggja sjóðstreymi og nægt lausafé til að geta brugðist við ófyrirsjáanlegum sveiflum. Til að geta gert slíkt þurfi stjórnandinn að hafa yfir að ráða miklu magni upplýsinga, ekki aðeins um sinn rekstur, heldur einnig umhverfi viðskiptavina og birgja. Því meiri og betri upplýsingar sem stjórnandinn hefur á umhverfinu því betur er hann í stakk búinn til að taka réttar ákvarðanir á réttum tíma. Hvaða viðskiptavini er vænlegt að halda í, hvaða verkefni auka lausafé, hvaða verkefni teppa lausafé, hvaða viðskiptavinir eru líklegri en aðrir til að lenda í greiðsluerfiðleikum o.s.frv. Það muni skilja að þá sem ná árangri og þá sem fara flatt þar sem svigrúmið til mistaka og tilrauna í fallvöltu umhverfi dagsins í dag er ekkert samanborið við sveigjanleikann og tilraunirnar sem gera mátti meðan við bjuggum við góðæri. texti: unnur valborg hilmarsdóttir Hér kemur bók um hið nýja landslag í viðskiptalífinu. Hverju þurfa leiðtogar og stjórnendur að huga að í breyttu rekstrarumhverfi? Höfundurinn segir aftur og aftur að meginverkið verði að tryggja viðgang fyrirtækjanna, það sé langt í land að þau geti farið að vaxa á ný. Breyttar leikreglur

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.