Frjáls verslun - 01.02.2009, Page 61
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9 61
„Ótrúleg umskipti hafa orðið í efnahags-
lífinu á undanförnum misserum,“ segir í
upphafi að ályktun iðnþings. „Atvinnulífið
er að sligast undan ofurvöxtum, verðbólgu,
gengisbreytingum, gjaldeyrishöftum og hökt-
andi bankakerfi. Sama gildir um fjölmörg
heimili og atvinnuleysi hefur ekki verið
meira um langt árabil.“
Og áfram er haldið: „Sundurlyndi og
stefnuleysi stjórnmálamanna og stjórnvalda
sem bera ábyrgð á verkstjórn og úrlausn
ýmissa lykilþátta sem greiða verður úr er
grafalvarlegt. Mikilvægur tími hefur farið til
spillis að óþörfu og mál til komið að stjórn-
málamenn, þing og ríkisstjórn snúi bökum
saman í stað þess að eiga í hefðbundnu
innihaldslausu karpi sem engu skilar.“
Forgangsmál að mati iðnþings eru þessi:
Lækka vexti•
Endurreisa bankakerfið•
Afnema gjaldeyrishöft•
Semja við erlenda kröfuhafa•
Auka útflutningstekjur•
Blása lífi í fasteignamarkaðinn•
Sækja um ESB aðild og taka upp evru•
Í lokaorðum ályktunarinnar segir að þrátt
fyrir áföll og erfiðleika sem herja á um
þessar mundir megi ekki gleyma að tæki-
færin blasi við hvert sem litið sé. Við eigum
auðlindir, mannauð og hugmyndir sem þurfi
að flétta saman af hugviti og fyrirhyggju
til að auka útflutningstekjur ásamt því að
skapa viðvarandi stöðugleika. „takist okkur
það mun okkur vel farnast.“
Þrátt fyrir allt blasa
tækifærin við hvert sem litið er
Össur Skarphéðinsson hóf ræðu sína með því að segja að hann hefði
sem iðnaðarráðherra eignast marga góða vini innan Samtaka iðnaðar-
ins og bætti við að hann hefði að öllu leyti getað skrifað ræðu Helga
Magnússonar sjálfur, og gaf með því til kynna að þeir væru sammála
um býsna margt.
Sem dæmi nefndi hann að koma yrði verðbólgunni niður á sama
stig og í grannlöndunum. Það væri nú að gerast. Brýna nauðsyn bæri
til að lækka vexti. Allir vissu líka afstöðu hans til Evrópusamstarfsins.
„Ég er elsti Evrópusinninn á Alþingi Íslendinga og er þakklátur fyrir
það frumkvæði sem Samtök iðnaðarins hafa tekið í því máli.“
Gott samstarf og góð ráð
Össur sagði að gjaldeyrishöftin væru nauðsynleg, enn sem komið
væri. Í kringum okkur væru lönd að sigla niður í sama öldudal og við
og væru líka að taka upp gjaldeyrishöft sem gerði erfiðara fyrir okkur
að aflétta þeim. Þá ræddi hann það góða samstarf sem hann sem iðn-
aðarráðherra hefði átt við einstaklinga í iðnaðinum. Miklu máli hefði
skipt sig að geta leitað til þeirra og þegið hjá þeim ráð. „Ég hef líklega
hvergi átt ráðhollara fólk en hjá ykkur. Og þakka það.“ Nefndi hann
sérstaklega Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóra SI, og
Helga Magnússon, formann samtakanna. „Ég mun muna það löngu
eftir að mínir pólitísku fætur verða kaldir orðnir.“
Einnig þakkaði Össur mönnum bjartsýni og trúa á framtíðina.
„Víl og bölmóður getur orðið að sjálfstæðu efnahagsvandamáli.“
Menn yrðu auðvitað, sagði hann, að vera raunsæir og viðurkenna
að Íslendingar væru í bölvaðri klípu, gjaldeyris- og bankakreppu og
alþjóðlegu kreppunni sem væri orðin miklu dýpri en þegar hrunið
hófst.
„Samt hefur þessi karl sem hér stendur, iðnaðarráðherrann, þá
trú að við ekki bara komumst í gegnum þetta fyrr en marga grunar
heldur komum út úr kreppunni með sterkara atvinnulíf og með
dreifðari ábyrgð og fleiri stoðir.“
Þrír veigamiklir þættir
Þrír þættir bæru uppi útflutninginn sagði ráðherrann; sjávarútvegur,
ferðaþjónusta og orkuiðnaður og góðar fréttir kæmu frá öllum
þessum greinum. „Ég hef tekið ýmsan slaginn að undanförnu sem
tengist orkumálunum. Ég hef lýst því yfir að ég muni fyrr að velli
hníga en að falla frá því að fá samþykktan á Alþingi Íslendinga fjár-
festingarsamning sem tengist álverinu í Helguvík. Við erum að sigla
inn í fáheyrt atvinnuleysi þar sem allt að 10% Íslendinga kunna að
verða atvinnulausir.“ Í tengslum við þetta myndu skapast ekki aðeins
650 störf heldur myndi framkvæmdin skapa sem svarar 7000 árs-
verkum. Fleiri orkutengd atvinnutækifæri nefndi Össur sem myndu
búa til 2500 störf til viðbótar, eða alls rösklega 10.000 ársverk. Sjáv-
arútveginn, ferðaþjónustuna og endurnýjanlega orku gætum við
notað til að vinna okkur út úr vandanum. Tvö önnur leynivopn var
ráðherrann með uppi í erminni: Olíuna og gasið og sprotafyrirtækin
sem gætu orðið til þess að halda ungu fólki í landinu.
Össur Skarphéðinsson:
Ráðherra með leyni-
vopn uppi í erminni
Össur skarphéðinsson iðnaðarráðherra.
iðnþing 2009