Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2009, Side 64

Frjáls verslun - 01.02.2009, Side 64
64 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9 K yN N iN G iðnaður Cintamani – á hæstu tindum í hverri heimsálfu SpORtÍS Að sögn Elvu Rósu Skúladóttur, yfirhönnuðar, hófst rekstur Cintamani árið 1994 þegar Jan Davidson stofnaði merkið og vann þá að útivistarfötum fyrir fyrsta íslenska leiðangurinn á Everest. Framleiðslan fór fram í Foldu á Akureyri. Árið 1999 hóf Jan samstarf við Sportís ehf: „Þegar verksmiðju Foldu á Akureyri var lokað fluttist framleiðslan til Kína og Litháen. Cintamani færðist því næst alfarið í eigu Sportíss árið 2002. Nú er framleiðslan aðallega í Litháen, Kína og Póllandi. Íslenskur iðnaður nýtur góðs af lopalínu okkar, við notum íslenskan lopa og línan er handprjónuð hérlendis.‘‘ Nútíma útivistarfólk notar Cintamani „Cintamani - fatnaðurinn er hannaður með nútíma útivistarmenn í huga. Markmiðið er að viðskiptavinir séu ánægðir með gæði og útlit vörunnar. Flíkurnar nýtast vel í útivist, halda hita og veita notandanum frelsi í úti- vistariðkun. Við viljum einnig að flíkurnar séu notaðar við önnur tækifæri en útivist. Það er ekki aðeins harðasta útivistarfólk sem kaupir Cintamani. Fjölskyldufólk og ungar konur á aldrinum 20-45 ára er stór kúnnahópur hjá okkur. Fólk sem iðkar íþróttir eins og golf, hjólreiðar, hlaup og fleira verslar mikið við okkur. Sala til fyrir- tækja hefur einnig verið veigamikil og flík- urnar eru oft notaðar sem starfsmannafatn- aður.‘‘ Heilmikið að gerast í íslenskum hönnunarheimi „Fljótlega kynnumvið nýja línu sem gerð er í samstarfi við virtan grafískan listamann, Katrínu Ólínu Pétursdóttur. Um er að ræða snjóbrettalínu sem kemur á markað í haust og verður framleidd í takmörkuðu magni. Íslenskur hönnunarheimur blómstrar í dag og það er æðislega gaman þegar hönnuðir sameinast í verkefnum eins og þessum.‘‘ Íslendingar eru duglegir að kaupa íslenskan útivistarfatnað „Það má með sanni segja að Íslendingar séu ótrúlega duglegir að styðja við allt sem er íslenskt. Þeir eru líka einstaklega kröftugir í að iðka útivist og kaupa sér fatnað sem hæfir. Utan Íslands er Cintamani aðallega selt í Noregi og Danmörku og salan þar hefur aukist jafnt og þétt. Í Noregi og Danmörku er Cintamani selt í útivistar- og sportvöru- verslunum þar sem er mikill uppgangur. Mary Danaprinsessa var mynduð í bak og fyrir klædd Cintamani frá toppi til táar í skíðaferð með fjölskyldu sinni en betri aug- lýsing er vandfundin í Danmörku.‘‘ Fötin frá Cintamani eru hágæðavara sem standast fyllilega sam- anburð við sambæri- lega vöru erlendis frá og hafa notið mjög mikilla vinsælda hjá Íslendingum. Maria Matintytär Maattola, fatahönnuður og Elva Rósa skúladóttir, yfirhönnuður Cintamani.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.