Frjáls verslun - 01.02.2009, Blaðsíða 71
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9 71
Þórður Magnússon, stjórnarformaður eyris invest
Verðum að öðlast traust
á alþjóðavettvangi
Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyrir Invest, sagði á Iðnþingi að núver-
andi staða Íslands væri óviðunandi. Bankakerfið væri það lítið að erfitt væri að
þjónusta fyrirtækin í heild. Þau þyrftu að geta byggt upp erlend tengsl og til
þess þyrftu þau trúverðugleika sem væri ekki til staðar í dag.
Útflutningsfyrirtækin gætu ekki, að sögn Þórðar, varið gjaldeyrisáhættu
sína. Með starfrækslu hér, og til þess að draga úr gjaldeyrisáhættunni, yrði að
jafna tekjur og gjöld í rekstrinum en það gerðu fyrirtæki ekki sem væru með
98% af sölu sinni erlendis, nema flytja starfsemina úr landi. „Það viljum við
ekki,“ sagði Þórður.
Eina leiðin væri að öðlast aukinn trúverðugleika með aðild að Evrópusam-
bandinu og við yrðum að stefna að henni. Trúverðugleika mætti byggja upp
með aðildarumsókn þar sem því væri lýst að stefnt væri að því að taka upp evr-
una í framhaldinu. Með auknum trúverðugleika fengjum við einnig aukinn
stöðugleika, gengissveiflur myndu minnka, vaxtakjör yrðu samkeppnishæfari
og aðgangur að langtímafjarmagni myndi batna og ímynd okkar á alþjóðavett-
vangi sömuleiðis.
„Aðkoma Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að stjórn efnahagsmála á Íslandi hefur
aukið traust á okkur en það sama myndi gerast með aðildarumsókn okkar að
Evrópusambandinu. Við eigum mikið undir því að öðlast traust á alþjóðavett-
vangi,“ sagði Þórður.
síðan segir Gylfi sögu af því þegar hann var á leið út á
Keflavíkurflugvöll og fréttakona hringir stöðugt í hann til að fá svör
... í lokin segir hann að „ef við höfum ekki aðgang að erlendu fé,
bankarnir starfa ekki og við erum ekki hluti af evrópu þá sé nú lítil
framtíð hérna ...“
Gylfi lendir í new York og konan hans hringir miður sín og
segir að fyrsta fréttin í útvarpinu, sjónvarpinu og speglinum
hafi verið að hann hafi sagt að landið hefði enga framtíð! Gylfi
var miður sín það sem eftir var new York-dvalarinnar því áfram
héldu fréttirnar og bollaleggingarnar um orð hans. ekki tók
betra við þegar hann kom aftur í skólann. Kona sem þar vinnur
sagði að amma sín hefði næstum fengið hjartaáfall. „Gylfi
ViÐsKiptaRÁÐheRRa hefði sagt að landið hefði enga framtíð.
Þetta er ógurlega viðkvæmt. Maður er að reyna að fylla í þetta
tómarúm sem ætti ekki að vera fyrir hendi. Þetta er erfiður
heimur að lifa í og við gerum okkar besta.“
„svarið er: hagfræðin brást ekki, við bara skildum ekki hvað
þú varst að segja!“ segir svanhildur hólm Valsdóttir fréttamaður á
stöð 2, í hlutverki fundarstjóra og spyrils á iðnþingi.
Þrennt sagði hann að myndi styðja nýsköpun: Aukið fjár-
magn í opinberum stuðningi, skattalegur hvati fyrir fjárfesta
og skattalegur hvati fyrir rannsóknir og þróun hjá stærri fyr-
irtækjum. Stuðningskerfið við nýsköpun og sprotafyrirtæki
er gott að sögn Þórðar. Rannís og Tækniþróunarsjóður skila
góðu starfi og mat á styrkhæfi er einnig gott og ákveðið hefur
verið að auka styrki til markaðssóknar.
Þessir gómsætu snúðar eru frá Landssambandi bakara-
meistara sem lagði Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur lið með
sölu Hjálparsnúðsins fyrstu helgina í mars. Þá runnu 25
krónur til nefndarinnar af andvirði hvers snúðs. Síðast þegar
Hjálparsnúðar voru bakaðir og seldir söfnuðust tæplega 900
þúsund kr. og rann féð til greiðslu skólamáltíða í Pakistan.
Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris Invest.
iðnþing 2009