Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2009, Side 75

Frjáls verslun - 01.02.2009, Side 75
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9 75 iðnaður Svifið inn í draumalandið á íslenskri framleiðslu RB-RúM Óhætt er að fullyrða að þeir eru fáir Íslendingarnir sem ekki hafa einhvern tímann á ævinni notið þess að sofna í rúmi frá Húsgagnabólstrun Ragnars Björnssonar ehf. í Hafnarfirði. Fjöldamargir hafa meira að segja sofið í RB rúmi lengst af ævinni og notið góðra drauma á íslenskri framleiðslu. RB rúm er 66 ára en Ragnar Björnsson húsgagnasmiður stofnaði fyrirtækið árið 1943. Síðustu starfsár Ragnars, sem lést árið 2004, starfaði Birna dóttir hans við hlið hans og tók síðan við stjórn fyrirtækisins að fullu að Ragnari látnum. Birna segir að fyrirtækið hafi frá upphafi haft að markmiði að uppfylla þarfir viðskiptavinanna og vera um leið í fararbroddi á Íslandi við þróun og framleiðslu springdýna. Fáir munu líklega neita því að RB rúm sé fyrirtæki í fremstu röð íslenskra iðnfyrirtækja. Það hefur meira að segja náð svo langt að komast í heimssamtök ISPA sem eru gæðasamtök fyrirtækja sem sérhæfa sig í framleiðslu og hönnun á springdýnum. Mega Íslendingar vera stoltir af slíkum árangri í íslenskum iðnaði og þá ekki síður að verð og gæði framleiðslu RB rúma standast fullkomlega samanburð við erlenda framleiðslu. Við þetta bætist svo að RB rúm veita að jafnaði um 15 manns örugga atvinnu. Rúm og dýnur við allra hæfi RB rúm hafa sérhæft sig í hönnun og bólstrun á rúmgöflum, sem og í viðhaldi og viðgerðum á springdýnum og eldri húsgögnum. Í framhaldi má benda á að ekki hæfir öllum sama rúmið. Það vita starfsmenn RB rúma manna best. Þess vegna hafa ætíð verið framleidd rúm í fyrirtækinu af öllum stærðum og gerðum, allt eftir óskum viðskiptavinarins, þar sem lögð er áhersla á að lengd, breidd og mismunandi hæð á rúmunum eykur þægindin. Stífleiki dýnunnar er síðan nokkuð sem hver og einn verður að velja sér eftir þyngd þess sem sofa skal í rúminu. Birna segir að auðvelt sé að fá rúm við hvers manns hæfi því úr miklu er að velja. Sem dæmi má nefna Lyftirúmin þar sem hægt er að lyfta bæði höfða- og fótalagi og stýra hreyfingunni með nettri fjar- stýringu. Sælurúmin eru hins vegar með þráðlausri fjarstýr- ingu og býsna auðstillanleg auk þess sem þau eru með nuddi og minni fyrir stillingar o.fl. Þá eru RB springdýnurnar íslensk iðn- aðarframleiðsla og hafa verið framleiddar í 60 ár. Tegundirnar eru fjórar og í jafnmörgum stíf- leikum. Komist kaupandinn að því að ekki hefur verið valinn réttur stífleiki í upphafi er hægt að breyta dýnunni. RB rúm er eina fyrirtækið á sínu sviði sem býður slíka þjónustu, sem og endurhönnun á springdýnum eftir áralanga notkun. Það yrði til að æra óstöðugan að telja upp alla möguleikana sem RB rúm bjóða upp á í dýnum og rúmum en fullvíst að úr versluninni að Dalshrauni 8 þarf enginn að fara án þess að hafa fundið það sem honum hentar. Um leið má gleðjast yfir því að eiga eftir að svífa inn í draumalandið á íslenskri framleiðslu. Mikil alúð er lögð í all vinnslu rúmanna frá RB rúmum frá upphafi til enda. Allt þetta að auki hjá RB rúmum: náttborð, lok, dýnuhlífar, pils, púðar, rúmteppi, sængurver, sængur, koddar

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.