Frjáls verslun - 01.02.2009, Síða 88
88 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9
Bílar
tExtI oG ljÓSMyndIr:
páLL stefánsson
Mitsubishi lancer Evolution, eða EVo, er þjóðsagna-
kenndur bíll. nú hefur Hekla tekið inn nýjasta ein-
takið, kynslóð x eða tíu, í tilefni opnunar á nýjum
sýningarsal fyrir Mitsubishi.
Fyrsti EVoinn kom á markaðinn árið 1992 til að
keppa í heimsmeistarakeppninni í rallakstri. Fjórum
árum síðar vann tommi Mäkinen heimsmeistaratit-
ilinn á EVo bíl og síðan hefur bílinn margoft unnið
þann titil. Enda er þetta ekki bíll heldur þota.
Hann er smekklegur að innan, ekki meira. Það
eru ekki þýsk gæði í plasti og/eða frágangi. Frekar
hrár. Hljóðið er frekar dósarlegt þegar maður lokar
honum. En það gleymist alveg þegar sett er í gang
og ekið af stað.
Aksturseiginleikarnir eru frábærir og aflið, yfir
300 hesthöfl, á ekki stærri og þyngri bíl, er meira ñ
miklu meira ñ en nóg. Fjórhjóladrifið límir bílinn bók-
staflega við jörðina. Hægt er að velja um þrenns
konar fjórhjóladrif eftir því hvort ekið er á bundnu
slitlagi, möl eða í snjó.
Stýrið er feikilega nákvæmt. Fjöðrunin er stíf en
góð. Hröðunin er grimm. Bíllinn er í Ferrari-klassa,
rétt undir 5 sekúndum í hundraðið. Vélarhljóðið er
hávært, grimmt, öskrandi, en á svona bíl er það
bara gaman að geta ekki talað saman.
Það sem kom mér mest á óvart hve lipur bílinn
er í venjulegum akstri. Þetta er farartæki sem hægt
er að skutlast á í vinnuna. Eða þá fara út að leika
sér, nota aflið. Gallar: hann er ekki sparneytinn.
Bensíntankurinn er frekar lítill, líkt og skottið. Útlitið:
hann er fallega ljótur. og verður bara fallegur eftir
að hafa skemmt manni í akstri.
Páll Stefánsson reynsluekur mitsubishi evo X
og nýju þriðju kynslóðinni af toyota avensis.
Einkaþota