Frjáls verslun - 01.02.2009, Blaðsíða 91
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9 91
Star Trek
nýr kafli hefst í eilífðarsögunni um áhöf-
nina í geimskipinu Enterprise þegar Star
trek verður frumsýnd 8. maí. 43 ár eru
frá því fyrsti sjónvarpsþátturinn í fyrstu
Star trek seríunni var frumsýndur en síðan
hafa verið gerðir 745 þættir, 10 kvikmyndir
og hundruð bóka um framtíðarveröldina
sem Gene roddenberry skóp á sínum
tíma. nýja Star trek myndin gerist áður en
atburðirnir í fyrstu þáttaröðinni urðu. Kirk
kapteinn, Spock og fleiri þekktar persónur
eru ungir ofurhugar sem hræðast ekkert
og tilbúnir í ævintýrin. leikstjóri Star trek
er j.j. Abrams, sem er þekktari sem fram-
leiðandi vinsælla sjónvarpssería, en hann
er maðurinn á bak við lost og Alias. lítt
þekktir leikarar, Chris Pine og Zachary
Quinto, eru í hlutverkum Kirks og Spocks.
öllu þekktari leikarar, Eric Bana, Wynona
ryder, Simon Pegg og Ben Cross, eru í
öðrum hlutverkum.
Sólóistinn
joe Wright er einn af nokkrum ungum
breskum leikstjórum sem hafa verið að
slá í gegn á undanförnum árum. Wright
er fæddur í london 1972 og fékk stóra
tækifærið 2005 þegar hann leikstýrði
Pride and Prejudice með Keiru Knightley í
aðalhlutverki. Myndin var tilnefnd til fernra
óskarsverðlauna. Wright fylgdi velgengninni
eftir með Atonement sem eins og Pride
and Prejudice er byggð á frægri skáldsögu.
Atonement vakti jafnvel meiri hrifningu og
var tilnefnd til sjö óskarsverðlauna. nú er
von á þriðju kvikmynd Wrights, Soloist, og
enn leitar Wright í bókmenntirnar. Handritið
er gert eftir skáldsögu Steve lopez sem
fjallar um heimilislausan tónlistarmann
sem er geðklofasjúklingur og dreymir um
að fá að leika í Walt disney konsertsaln-
um. Blaðamaður sem á vegi hans verður
hjálpar honum að láta drauminn rætast. Í
hlutverki tónlistarmannsins er jamie Foxx
og blaðamanninn leikur robert downey jr.
State of Play
Annar breskur leikstjóri sem vakið hefur
mikla athygli er Kevin Macdonald, fæddur
í Glasgow 1967. Hann vakti fyrst athygli
með heimildarmyndunum one day in
September (1999) og touching the Void
(2003). Macdonald stimplaði sig inn í hóp
gæðaleikstjóra þegar hann sendi frá sér
the last King of Scotland, en fyrir leik sinn
í hlutverki Idi Amins fékk Forest Whitaker
óskarsverðlaunin. nýjasta kvikmynd
Macdonalds nefnist State of Play og skart-
ar russell Crowe, Ben Affleck, Helen
Mirren, robin Wright Penn, jeff daniels
og rachel McAdams í aðalhlutverkum. Er
myndin byggð á breskri mini-sjónvarpsseríu
sem sýnd var í sjónvarpinu 2004 og fjallar
um blaðamenn sem vinna með lögreglunni
við að leita morðingja sem myrt hefur
ástkonu þingmanns. State of Play verður
frumsýnd hér á landi 17. apríl.
Russell Crowe leikur blaðamann sem
aðstoðar lögregluna í leit að morðingja.
Ron Howard, sem nánast jafnhliða gerði
hina frábæru kvikmynd Frost/Nixon, sem hlotið
hefur mikið lof, heldur tryggð við samstarfsmenn
sína. Má þar nefna að Salvatore Totino stjórnar
kvikmyndatökunni en hann gerði það einnig
í Da Vinci lyklinum og Frost/Nixon; sama má
segja um tónskáldið Hans Zimmer sem semur
tónlistina í kvikmyndunum þremur.
Beðið eftir næsta kafla um Robert Langdon
Tom Hanks er eini leikarinn úr Da Vinci
lyklinum sem einnig er í Englum og djöflum.
Í öðrum helstu hlutverkum eru sænski
stórleikarinn Stellan Skarsgård, Ewan
McGregor, Armin Mueller-Stahl og Aylet
Zurer, sem er ísraelsk leikkona, lítt þekkt í
hinum vestræna heimi en þekkt í heimalandi
sínu, úr vinsælum sjónvarpsseríum. Hún er þó
ekki alveg reynslulaus í Hollywoodmyndum,
lék eiginkonu Erics Bana í kvikmynd Stevens
Spielbergs, Munich, lítið hlutverk á móti Dennis
Quaid og Forest Whitaker í Vantage Point sem
frumsýnd var í fyrra og annað lítið hlutverk í
Adam Resurrected þar sem mótleikarar hennar
voru Jeff Goldblum og Willem Dafoe.
Dan Brown hefur enn sem komið er aðeins
skrifað tvær bækur um Robert Langdon. Í
ein fimm ár hefur hann unnið að næsta kafla
í ritröðinni en ekkert gengið og ætla margir
að hann sé með ritstíflu af verstu gerð. Á það
verður þó að líta að ekki er auðvelt að fylgja Da
Vinci lyklinum eftir og sjálfsagt er Brown inni
við beinið smeykur við viðtökurnar. Einnig hafa
tafið fyrir honum langdregin málaferli þar sem
hann var sagður stela hugmyndinni að Da Vinci
lyklinum. Brown var þó að lokum sýknaður af
þeirri ákæru. Fréttir herma að nýja bókin muni
heita The Solomon Key. Ólíkt fyrri bókunum
tveimur gerist hún í Bandaríkjunum, nánar
tiltekið í Washington. Hvenær hún kemur út er
óvíst, nokkrar dagsetningar hafa verið á kreiki,
en ekkert er víst í þeim efnum. Þangað til verða
aðdáendur Robert Langdons og Dan Browns
að láta sér nægja kvikmyndina Englar og djöflar
og vona að hún sé vel heppnuð. Ron Howard
hefur alla burði til að gera vel heppnaða
spennumynd þótt ekki hafi hann fengið mikið
hrós fyrir Da Vinci lykilinn. Englar og djöflar
verður frumsýnd 15. maí, samtímis hér á landi
og í Bandaríkjunum.
KVIKMyndAFrÉttIr
englar og djöflar
Zachary Quinto,
sem einhverjir
kannast við
úr sjónvarps-
seríunni Heroes,
leikur Spock.