Frjáls verslun - 01.02.2009, Blaðsíða 97
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 9 97
fólk
Jónas Kristinsson:
„Ég hef verið KR-ingur
frá blautu barnsbeini
og starf mitt tengist
helsta áhugamáli mínu
sem er íþróttir.“
Knattspyrnufélag Reykjavíkur, KR, er 110 ára á þessu ári. Á afmælis- daginn 16. febrúar var vel heppnaður
afmælisfagnaður í KR húsinu við Faxaskjól
sem eldri og yngri KR-ingar sóttu. Fram-
kvæmdastjóri KR er Jónas Kristinsson og tók
hann við starfinu 1. desember sl. Jónas er
KR-ingum að góðu kunnur og hefur m.a. setið
í stjórnum félagsins í yfir tuttugu ár og hefur
verið formaður KR Sport undanfarin ár.
„Starf mitt er yfirgripsmikið, það felst
í að stjórna starfsemi skrifstofunnar og
vera tengiliður við aðalstjórn félagsins.
Það felst einnig í að vera í sambandi og
samvinnu við aðila eins og Reykjavíkurborg,
íþróttahreyfinguna og sérsamböndin innan
hennar, skóla og fyrirtæki. Við erum með
öfluga skrifstofu sem sinnir öllum deildum
félagsins þar sem fram fer mikið og öflugt
starf. Við veitum þjónustu inn í allar
deildirnar með bókhaldi og innheimtu
gjalda, svo eitthvað sé nefnt, og má geta
þess að við vorum að gefa út launamiða fyrir
síðasta ár sem voru 150 talsins. Langmest
af þessu starfsfólki er í hlutastarfi. Þá má
ekki gleyma öllum þeim fjölda sjálfboðaliða,
foreldra og einstaklinga sem starfa í félaginu
að stjórnarstörfum, fjáröflun o.fl.
Hvað varðar afmælisárið þá erum við með
afmælisnefnd sem skipuleggur atburði á árinu.
Nefna má að í júní verður KR-dagur með þátt-
töku allra deilda félagsins og síðan verður stór
afmælishátíð í byrjun október þar sem slegið
verður upp fagnaði með dansi og skemmti-
atriðum. Og sjálfsagt endum við árið með
stórri flugeldasýningu en KR hefur verið öfl-
ugur söluaðili flugelda í gegnum tíðina.“
Jónas er félagsfræðingur frá háskólanum
í Gautaborg þar sem hann sérhæfði sig í
skipulagningu frítíma fólks í stórborgum
og enn fremur hefur hann lokið prófi í
rekstrarfræði frá Endurmenntun Háskóla
Íslands. Eiginkona Jónasar er Ásdís Eva
Hannesdóttir, framkvæmdastjóri Norræna
félagsins, og segir Jónas að svo skemmtilega
hafi viljað til að þau hafi bæði tekið við nýju
starfi 1. desember. Þau eiga þrjú börn á aldr-
inum 14 til 22 ára.
„Ég hef verið KR-ingur frá blautu barns-
beini og starf mitt tengist helsta áhugamáli
mínu sem er íþróttir. Ég var sjálfur í fótbolta,
handbolta og körfubolta þegar ég var yngri
og einnig eru skíði mikið áhugamál. Á
síðari árum hefur golfið hertekið mig eins
og svo marga aðra og það á ekki aðeins við
um mig heldur alla í fjölskyldunni. Og þar
sem engin golfdeild er í KR lá beinast við
að fara í GR og þar unum við okkur vel í
golfinu.
Liverpool er mitt félag í ensku knatt-
spyrnunni og ég og elsti sonur minn, sem er
að klára fjármálaverkfræði frá Háskólanum
í Reykjavík, erum á leið til Manchester og
ætlum að sjá leik Liverpool og Aston Villa á
Anfield Road í Liverpool. Við ætlum einnig
að taka eins og tvo golfhringi í Manchester.
Fyrir utan áhuga á íþróttunum þá höfum
við Ásdís Eva verið mjög dugleg að ferðast
bæði innanlands og utan og höfum gaman
af að uppgötva og skoða nýja staði og
kynnast menningu þjóða.“
framkvæmdastjóri Kr
JónaS kRiStinSSon
nafn: jónas Kristinsson.
fæðingarstaður: reykjavík,
1. mars 1960.
foreldrar: Kristinn tryggvason
og Margrét Pálsdóttir.
maki: Ásdís Eva Hannesdóttir.
Börn: jónas, 22 ára, Andrea,
17 ára, og Aron, 14 ára.
menntun: Félagsfræðingur,
próf í rekstrarfræði frá
Endurmenntun HÍ.