Frjáls verslun - 01.04.2009, Page 26
26 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9
Helga Möller, auglýsinga-
stjóri Atlanticu.
Páll Kjartansson,
ljósmyndari
og yfirmaður
myndvinnslu.
Páll Stefánsson, ljósmyndari Atlanticu og Iceland Review.
inn heldur áfram að gefa út efni sem hann er
ósáttur við.
Hafa áhrif útgefanda komið fram í
Heimsblöðunum?
Já, auðvitað koma þau þar fram eins og ann-
ars staðar. Það er samt ekki algengt að ég
ræði efni einstakra blaða við ritstjórana fyr-
irfram nema þá almennt. Stundum veit ég
af einstaka greinum sem eru í vinnslu og það
kemur fyrir að ég stingi upp á efni. Samt held
ég að aðaláhrifin séu þau að ég vil að Heimur
gefi út vönduð blöð, blöð sem eru falleg,
fræðandi og að það sem fram kemur sé rétt.
Almennt gildir það líka að efni skuli ekki vera
meiðandi ef slíkt er óþarfi. Hvað á ég við með
því? Jú, sumt getur verið óþægilegt, til dæmis
ef sagt er frá því að einhver hafi hegðað sér
með óheiðarlegum eða ósæmilegum hætti í
samskiptum. Það eitt og sér veldur þó ekki
því að ekki beri að segja frá því.
Ég hika ekki við að láta skoðun í ljós á
efni blaðanna þegar þau eru komin út. Rit-
stjórunum hef ég sagt að þeir megi ekki rugla
saman skoðun og ritskoðun. Allir lesendur
mega hafa skoðun á því sem skrifað er.
Það á að virða einkalíf manna og ekki gera
lítið úr þeim. Öll umfjöllun á að vera mál-
efnaleg. Þetta held ég að hafi tekist. Menn
vita að hægt er að treysta Frjálsri verslun, svo
að dæmi sé tekið.
Er það nú víst? Margir sem skreytt hafa
forsíður blaðsins hafa orðið gjaldþrota.
Það er rétt. Við megum samt ekki gleyma því
að atvinnurekstur er í eðli sínu áhættusamur.
Þess vegna getur það vel verið að sum fyrir-
tæki verði gjaldþrota þó að menn hafi ekki
aðhafst neitt óeðlilegt. Þeir tóku einfaldlega
áhættu og töpuðu. Í fyrra var hins vegar
tekin áhætta með allt hagkerfi heimsins
og allir töpuðu. Hér á landi tóku menn
meiri áhættu en annars staðar og töp-
uðu enn meiru. Því miður höfðu þeir sem
gátu dregið úr áhættunni ekki beitt þeim
aðferðum sem þurfti.
Við skoðuðum sérstaklega þá sem höfðu
orðið Menn ársins í viðskiptalífinu undanfarin
tuttugu ár í desember árið 2007. Öll fyrir-
tækin störfuðu enn og allir voru þeir sæmi-
lega stæðir sem titilinn hlutu. Því miður
á það ekki við lengur. En við höfum ekki
verðlaunað sérstaka áhættusækni. Bónus-
feðgar fengu verðlaunin árið 1997 fyrir