Frjáls verslun - 01.04.2009, Side 34
70 ára
1971-1980
34 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9
1971:
SÍS, ríkið og
einkageirinn
samband íslenskra samvinnu-
félaga, sís, var svo sterkt á
þessum árum að hagfræðingar
skiptu atvinnulífinu í þrennt;
einkageirann, sís og ríkið.
Þrátt fyrir að viðreisnarstjórnin
hafi skilað af sér góðu búi var
hlutur ríkisfyrirtækja, kaupfélag-
anna og sambandsins afar
fyrirferðarmikill og fór mjög fyrir
brjóstið á einkageiranum.
1974:
Fyrsta svarta
skýrslan – 200 mílur
Það var árið 1974 sem
Hafrannsóknarstofnun sendi frá sér
fyrstu „svörtu skýrsluna“ um ástand
fiskistofna á íslandsmiðum. illa var
komið fyrir þorskstofninum. Þetta
varð til þess að ráðist var í útfærslu
landhelginnar í 200 mílur haustið 1975
og hófst nýtt þorskastríð við breta undan
ströndum íslands. stríðinu lauk með
samkomulagi þjóðanna sem gert var í
ósló vorið 1976 og höfðu íslendingar að
fullu yfirráð yfir 200 mílna lögsögunni.
1973
Frjáls verslun
gefur út 50 stærstu
frjáls verslun gaf í fyrsta sinn út listann
yfir stærstu fyrirtæki landsins árið
1973. Það var guðmundur magnússon
sem vann fyrsta listann. fortune
var fyrirmyndin. samband íslenskra
samvinnufélaga, sís, trónaði á toppi
listans og var langstærsta fyrirtæki
landsins.
1972:
Skuttogaravæðingin
vinstristjórn ólafs jóhannessonar hóf
stórfellda endurnýjun á togaraflotanum árið
1972 en flotinn var kominn til ára sinna,
enda uppistaðan síðutogarar frá tímum
nýsköpunarstjórnarinnar 1944. Þetta var
upphafið af skuttogaravæðingunni en
opinberir sjóðir, eins og fiskveiðasjóður
og byggðasjóður, lánuðu útgerðum til
kaupanna. öll sjávarpláss á landinu fengu
nýja togara.
1972:
Landhelgin
í 50 sjómílur
ríkisstjórn ólafs jóhannessonar, sem
tók við völdum eftir kosningarnar
1971, ákvað að færa landhelgina
einhliða úr 12 sjómílum í 50 sjómílur
árið 1972. Það kostaði þorskastríð
við breta og vestur-Þjóðverja sem lauk
árið 1973. bretar vísuðu málinu til
alþjóðadómstólsins í Haag 1972 og
hann úrskurðaði 1974 að útfærslan
væri ólögleg. við íslendingar
viðurkenndum ekki þann úrskurð.
1972:
Hagrannsóknadeild
Framkvæmdastofnunar
Hagrannsóknadeild framkvæmda-
stofnunar
ríkisins leysti
efnahagsstofnun
af hólmi og varð
jón sigurðsson
forstöðumaður
hennar.
1974:
Þjóðhagsstofnun
tók til starfa
Þjóðhagsstofnun tók til starfa árið
1974 og tók við af Hagrannsóknardeild
framkvæmdastofnunar. jón sigurðsson varð
fyrsti forstjóri hennar.
sá reginmunur var á efnahagsstofnun og
Þjóðhagsstofnun að sú fyrrnefnda var hugsuð
sem ráðunautur ríkisstjórnarinnar og starf-
aði mjög náið með henni og einstökum ráð-
herrum hennar. Hún heyrði beint undir for-
sætisráðherra og vann mikið af skýrslum fyrir
ríkisstjórnina. Þótt efnahagsstofnun heyrði
beint undir ráðherra hafði hún yfir sér sér-
staka stjórn sem hins vegar Þjóðhagsstofnun
hafði ekki.
Jón Sigurðsson.