Frjáls verslun - 01.04.2009, Qupperneq 48
48 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9
70 ára
rITsTJÓrar FrJáLsrar VErsLUnar
Íslensk kaffibrennsla í 18 ár
www.kaffitar.is
H
2
H
ÖN
N
U
N
Ferskleiki og gæði
Við brennum kaffið okkar daglega
Fyrirt
ækja
þjónu
sta
Fagme
nnska
alla l
eið
É
g hafði lengi verið áhugasamur um
fjölmiðla og tók stundum að mér
ritstjórastöður þar sem ég átti leið
um. Þannig var ég ritstjóri Versl-
unarskólablaðsins á sínum tíma,
Stúdentablaðs og loks tímarits Félags lög-
giltra endurskoðenda þegar ég starfaði í þeirri
stétt. Eftir stúdentspróf velti ég fyrir mér
þeim möguleika að fara til náms til Banda-
ríkjanna í blaðamennsku en viðskiptafræðin
varð þó fyrir valinu,“ segir Helgi.
Frábært starfsfólk
Hann segist hafa verið mjög heppinn og
unnið með frábærum mönnum þau ár sem
hann var hjá Frjálsri verslun. „Þetta voru
miklir reynsluboltar í blaðamennsku, sem
ég lærði mikið af og má þar nefna þá Valþór
Hlöðversson, Kjartan Stefánsson og Steinar J.
Lúðvíksson sem var aðalritstjóri útgáfunnar.
Við brydduðum upp á nokkrum nýjungum
sem eru enn við lýði á blaðinu undir ritstjórn
Jóns G. Haukssonar sem tók við af mér árið
1992.
Ég er stoltastur af því að hafa byrjað með
birtingu á tekjum mikilvægra hópa í þjóð-
félaginu sem ávallt hefur vakið mikla athygli
en mismikla ánægju þeirra sem koma við
sögu. Í fyrstu birtum við innan við 200
nöfn en þau eru nú 2.500. Við byrjuðum
einnig að birta Gallupkannanir um vinsældir
og óvinsældir íslenskra fyrirtækja en slíkar
kannanir eru enn birtar í blaðinu. Sól, iðn-
fyrirtæki Davíðs Sch. Thorsteinssonar, var á
toppnum þegar við byrjuðum. Þá ýttum við
úr vör vali á mönnum ársins í íslensku við-
skiptalífi og völdum m.a. Samherjafrændur
og Pálma í Hagkaup á þessum árum. Nefnd
var starfandi undir formennsku Magnúsar
Hreggviðssonar, útgefanda blaðsins, en í
henni áttu sæti með okkur miklir sóma-
menn eins og Árni Vilhjálmsson prófessor,
Erlendur Einarsson, fyrrum forstjóri SÍS, og
Sigurður Helgason, fyrrum forstjóri Flug-
leiða. Þessir menn höfðu margt fram að
færa og við nutum góðs af víðtækri reynslu
þeirra,“ segir Helgi.
Órólegur yfir stöðu fjölmiðla
Þegar Helgi er spurður um stöðu íslenskra
fjölmiðla í dag segir hann að því sé fljót-
svarað af sinni hálfu. „Satt best að segja er
ég mjög órólegur yfir stöðu þeirra og óttast
um framtíð frjálsra fjölmiðla á Íslandi en
vonandi fer það betur en á horfist í dag.“
helgi Magnússon, formaður samtaka iðnaðarins,
var ritstjóri Frjálsrar verslunar frá því síðla árs
1988 og þar til vorið 1992. að hans sögn var það
spennandi og áhugaverður tími sem hann hefði
ekki viljað fara á mis við því Frjáls verslun sé
mikilvægt tímarit með merkilega sögu og óskar
blaðinu um leið til hamingju með 70 ára afmælið.
sPEnnanDI Og
áhUgaVErðUr
TíMI
helgi Magnússon:
Ég er stoltastur af því að
hafa byrjað með birtingu á
tekjum mikilvægra hópa í
þjóðfélaginu sem ávallt hefur
vakið mikla athygli.
Frjáls verslun 1989.
Helgi Magnússon var ritstjóri Frjálsrar verslunar á árunum
1988 til 1992.