Frjáls verslun - 01.04.2009, Blaðsíða 51
70 ára
t æ k N i Í 7 0 á r
efni sem þeir höfðu áhuga á og flakka af
einum stað á annan í stað þess að allt væri
matreitt ofan í þá í gegnum einstefnumiðlana
sjónvarp, útvarp eða dagblöð. Hin grundvall-
arbreytingin var að tilkoma Vefsins lækkaði
þröskuld þeirra sem vilja koma einhverju á
framfæri niður í svo til ekki neitt. Fyrst um
sinn þurfti fólk að vísu að læra sitthvað í vef-
hönnun, en eftir að bloggið kom til skjalanna
þurfti svo til enga sérþekkingu til að byrja að
gefa út efni. Nú er svo komið að sáraeinfalt
er að senda frá sér texta, myndir, kvikmyndir
eða hljóðupptökur á Vefnum og jafnvel ná
athygli tugmilljóna manna um heim allan –
ef efnið er nægilega áhugavert, að sjálfsögðu.
hvernig fórum við að áður?
Þá eru enn ótalin fjölmörg önnur svið sam-
félagsins sem hafa gerbreyst með tilkomu
stafrænnar tækni. Þar mætti til dæmis telja
til banka- og fjármálastarfsemi, ljósmyndun,
sem verður aldrei söm eftir
tilkomu stafrænnar ljós-
myndunar, og tónlistariðn-
aðinn, sem er enn að reyna
að ná áttum í gjörbreyttum heimi auk þess
sem sjónvarps- og kvikmyndaiðnaðurinn
er sennilega á leið í svipað umbreytinga-
skeið. Þetta eru bara nokkur af augljósustu
dæmunum – sennilegast geta flestir horft í
kringum sig á vinnustaðnum eða heimilinu
og hugsað með sér: „Hvernig fór ég eiginlega
að án tölvunnar og Internetsins?“
Tækninýjungarnar hafa að sjálfsögðu
verið fleiri og á víðari sviðum en bara í
tölvugeiranum, þótt stóru stökkin síðustu
áratugina tengist sennilegast flest þróun í
upplýsingatækni á einn eða annan hátt.
Þar kemur farsímavæðingin einna fyrst
upp í hugann. Það er ekki nóg með að
farsímar geri fólki kleift að ná sambandi
hvert við annað á mun einfaldari og
öruggari hátt en áður, heldur hefur net-
væðing símans margfaldað notagildi hans.
Nú má nota hann til að vafra um Vef-
inn, lesa og skrifa tölvupóst, stunda fjöl-
miðlun með því að senda
og birta efni í gegnum vef-
inn, taka myndir og mynd-
skeið, hlusta á tónlist, spila
leiki, staðsetja sig á landakorti og … jú,
hann má líka nota til að tala við fólk.
síminn: 89 ár. Facebook: 5 ár!
Það er athyglisvert að velta fyrir sér hve ör
þróunin hefur verið síðustu áratugina og
hvernig allt virðist ganga margfalt hraðar
fyrir sig hin síðari ár en áratugina þar á
undan. Skoðum bara þá staðreynd að sjón-
varpið hóf innreið sína í Bandaríkjunum
1928, en var ekki tekið í notkun á Íslandi
fyrr en 1966. Gæti það gerst í dag að vinsæl
og byltingarkennd tækninýjung erlendis yrði
ekki innleidd hér heima svo áratugum skipti?
Og svo er það þetta: Það tók símann 89 ár
að ná 150 milljón notendum. Sjónvarpið
þurfti 38 ár. Farsíminn: 14 ár. iPod-spilarinn
náði 150 milljónum notenda á sjö árum –
og Facebook þurfti ekki nema fimm ár til að
rjúfa 150 milljón notenda múrinn.
Það hefur margt breyst síðustu sjötíu árin.
Og það sem meira er: breytingarnar virðast
verða sífellt meiri og örari. Með þetta í huga
er ekki hægt að segja annað en að næstu 70 ár
verði spennandi – svo ekki sé meira sagt.
stærstu tæknistökkin Í sJötÍu Ár
1940 1950 1960 1970 1980 1990 2000
1972:
fyrsti
tölvu-
leikurinn
(pong)
1974:
strikamerki
fyrir verslanir
1998:
Google
stofnað.
iMac-tölvan
sett á
markað.
1999:
Blogg nær
almennum
vinsældum.
2001:
netbólan
springur.
ipod settur
á markað.
Wikipedia
stofnuð.
3G farsímakerfi
tekið í notkun.
2007:
iphone
síminn
kemur á
markað.
1985:
Windows 1.0
gefið út.
1991:
fyrsta
GsM-
kerfið.
1997:
stafrænar
myndavélar
koma
á markað.
2005:
youtube
stofnað
2003:
skype-
netsíminn.
1975:
Microsoft
stofnað
1982:
Einkatölvan
kosin
„Maður
ársins“
1990:
Vefurinn
verður
til.
1995:
yahoo-leitar-
vélin verður til.
fyrsti Mp3-
spilunarhug-
búnaðurinn
gefinn út.
2004:
facebook
stofnað.
Web 2.0
verður til.
1994:
netscape-
vafrinn
gefinn út.