Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2009, Side 60

Frjáls verslun - 01.04.2009, Side 60
60 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9 1. Koma nýju bönkunum á legg: Úrlausn bankamálanna í víðum skilningi eru lang- langmikilvægasta málið. Það er flókið, fjöl- þætt mál sem mun taka mikla orku fyrsta árið. Fyrstu skrefin hvað þetta varðar eru ljós. Það þarf að klára uppgjör nýju bank- anna, semja við kröfuhafa gömlu bankanna, klára samning um Icesave og þannig skapa skilyrði fyrir því að hægt sé að aflétta gjald- eyrishöftunum. Jón segir miklu máli skipta að rétt sé haldið á málum varðandi efnahagsreikninga bankanna og samninga við kröfuhafa gömlu bankanna. 2. Kröfuhafa inn sem hluthafa: Nýju bankarnir mega ekki vera of stórir og við megum ekki borga of mikið fyrir eignirnar sem eru færðar yfir. Allt tap í nýju bönk- unum eftir að samningum er lokið við kröfu- hafa mun lenda á ríkinu beint eða óbeint nema kröfuhafarnir komi inn í nýju bank- ana sem eigendur. Það hefur því mikla kosti ef unnt væri að greiða fyrir eignirnar sem færðar eru yfir í nýju bankana í formi hluta- fjár en ekki skuldabréfa. Skýr eigendastefna ríkis 3. Eigendastefna ríkisins: Ríkið þarf að marka sér eigendastefnu og stefnu varð- andi sölu þeirra mörgu fyrirtækja sem munu óhjákvæmilega lenda beint eða óbeint í eigu nýju bankanna. „Það má ekki gerast að ríkisspilling af gamla skólanum komi í stað þess frumskógarkapítalisma sem ríkt hefur á Íslandi síðustu ár,“ segir Jón. „Það er nánast ómögulegt fyrir stjórnmálamenn að reka fyrirtæki eins og á að reka fyrirtæki. Ef stjórnin setur ekki fram skýra stefnu hvað þetta varðar er hætt við því að allt of margt fari að gerast í reykfylltum bakherbergjum, hvort sem það er í bönkunum eða í ráðuneytunum. Því er mikilvægt að mörkuð sé stefna um sölu fyrirtækja mjög fljótt og gengið rösklega til verks hvað það varðar. Þetta væri allt saman auðveldara ef kröfuhafarnir kæmu inn sem eigendur í nýju bankana.“ 4. Nauðsyn siðbótar: Af öðrum málum er mest aðkallandi að ráðist verði í róttæka siðbót. Það er hreinlega með ólíkindum hversu rúmar reglur gilda um samskipti opinberra starfsmanna við einkaaðila. Í Bandaríkjunum má opinber starfsmaður ekki taka við gjöf sem er verðmætari en sem nemur um 3000 krónum. Þannig á það að vera. Það er einnig forkastanlegt að stjórn- málamenn og hátt settir embættismenn þurfi ekki að upplýsa um persónuleg fjár- mál sín og maka sinna. Sú einfeldni sem Íslendingar hafa sýnt gagnvart hættunni á spillingu gengur ekki lengur.“ 5. Stöðug stefna í ríkisfjármálum: Nú þurfum við að halda kúrsinn hvað þetta varðar og koma skikki á fjármál ríkisins og bankakerfið. Þá munu vextir lækka, skattar ekki hækka um of og staða heimilanna batna. Ekki hlusta á lýðskrum „Okkur hefur gengið furðuvel að halda aftur af pópúlisma – lýðskrumi,“ segir Jón. „Það var mikil hætta sem fylgdi því að halda kosningar við þessar aðstæður. Gylliboðin um skuldaniðurfellingu hefðu getað orðið ofan á með mjög slæmum afleiðingum fyrir þjóðina.“ Jón segir að verðmætur tími hafi tapast eftir hrun vegna þess að þáverandi valdhafar voru ekki tilbúnir að hreinsa út fólkið sem átti ekkert erindi með að fara með stjórn efnahagsmála á svo erfiðum tímum: „Þar á ég við þáverandi Seðlabankastjóra, fjár- málaráðherra, viðskiptaráðherra og yfirstjórn FME,“ segir Jón. „Stóru mistökin áttu sér stað fyrir hrunið,“ segir Jón. „Seðlabankinn var úti að aka hvað varðar stefnu í þrautavaralánveit- ingum sem endaði með því að hann tapaði nokkur hundruð milljörðum af almannafé. Og Seðlabankinn og FME voru langt upp fyrir haus þegar kom að eftirliti með fjár- málakerfinu. En vitaskuld er fólk eins og ég ekki stikkfrí hvað þetta varðar. Við fræði- mennirnir stóðum okkur ekki sérlega vel í að greina stöðuna og vara við með sann- færandi hætti.“ Jón Steinsson, hagfræðingur í Bandaríkjunum, hefur vakið athygli fyrir greiningu sína á íslenskum efnahagsmálum. Hann hefur þessi ráð að gefa ríkisstjórninni: JóN StEiNSSoN, AðStOðARpRóFESSOR Í HAGFRæðI VIð COluMBIA-HáSkólA: bankarnir mikilvægaStir Jón Steinsson, aðstoðarprófessor við Columbia-háskóla. „Það má ekki gerast að ríkisspilling af gamla skólanum komi í stað þess frumskógarkapítalisma sem ríkt hefur á Íslandi síðustu ár.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.