Frjáls verslun - 01.04.2009, Page 68
68 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9
Við höldum með þér!
TB
W
A\
R
EY
KJ
AV
ÍK
\
SÍ
A
\ 0
94
68
4
„Það er gott að eiga fastan
punkt í tilverunni“
O
líuverzlun Íslands
hf. var stofnuð
3. október 1927.
Félagið hefur fylgt
þeirri þróun sem átt hefur sér
stað í íslensku atvinnulífi allt frá
stofnun þess og er þekktari í dag
undir nafninu Olís.
Að sögn Sigurðar K. Páls-
sonar, markaðsstjóra, er hlut-
verk Olís fyrst og fremst að vera
verslunar- og þjónustufyrirtæki í
fremstu röð á fyrirtækja- og ein-
staklingsmarkaði:
„Stefna fyrirtækisins er að
bjóða viðskiptavinum góðar og
samkeppnishæfar vörur á sam-
keppnishæfu verði ásamt sveigj-
anlegu sölu- og þjónustukerfi
um allt land. Olís sérhæfir sig í
sölu og þjónustu með eldsneyti
auk ýmissa nauðsynjavara og
skyndibita, vörum til útivistar
og ferðalaga ásamt fjölþættri
þjónustu við sjávarútvegs-, verk-
taka- og flutningafyrirtæki um
land allt. Alls eru útsölustaðir
félagsins á rúmlega 60 stöðum
á landinu þar sem reknar eru
þjónustustöðvar undir merki
Olís. Jafnframt rekur Olís 27
sjálfsafgreiðslustöðvar undir
merki ÓB. Starfsmenn félagsins
eru 479 talsins.“
Stendur vörð
um náttúru Íslands
„Olís hefur um árabil lagt ríka
áherslu á stuðning við sam-
félagsmál og frá árinu 1992
hefur félagið unnið skipulega
að umhverfis- og uppgræðslu-
málum, enda er það stefna fyrir-
tækisins að standa vörð um nátt-
úru Íslands. Baráttan hefur ekki
eingöngu falist í styrkjum til
hinna ýmsu málefna á sviði nátt-
úruverndar heldur einnig í dag-
legri starfsemi og þjónustu fyr-
irtækisins. Með það markmið að
leiðarljósi var gefin út umhverf-
isstefna fyrir starfsemi félagsins á
70 ára afmæli þess árið 1997.“
Olís á afmæli
– þú færð pakkana!
„Í tilefni af 80 ára afmæli
Olís árið 2007 var ákveðið að
bregða á leik með viðskipta-
vinum félagsins með sérstöku
Afmæliskorti undir kjörorðinu
VIÐ EIGUM AFMÆLI – ÞÚ
FÆRÐ PAKKANA. Á kortinu
voru átta mismunandi tilboðs-
pakkar.
Í hvert sinn sem viðskipta-
vinur tók eldsneyti á bílinn, fékk
hann stimpil í kortið og gat þá
nýtt sér viðkomandi tilboð, eða
geymt miðann til betri tíma.
Þegar viðskiptavinurinn
hafði safnað stimplunum átta
í afmæliskortið var kortið sent
inn og vinningshafi dreginn út á
gamlársdag.
Vinningar voru vikuferðir
til Flórída fyrir fjóra – með
gistingu.“
olíuverzlun íslands hf.:
Markmið:
Að Olís sé viðurkennt sem
leiðandi fyrirtæki á Íslandi
á sínu sviði hvað varðar
arðsemi, þjónustu við við-
skiptavini, gæði vöru,
umhverfisvernd og góða
ímynd, þar sem sérstök
áhersla er lögð á stuðning
við umhverfis- og mann-
úðarmál.
Stofnár: 1927
skipst á kveðjum
Við eigum samleið
70 ára
Verslunar- og þjónustu-
fyrirtæki í fremstu röð
Gamla bensínstöðin á Klöpp á árum áður.