Frjáls verslun - 01.04.2009, Page 84
84 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9
70 ára
skipst á kveðjum
Við eigum samleið
M
aður lifandi á
fimm ára afmæli
um þessar
mundir. Fyrir-
tækið var stofnað í maí 2004 og
opnaði í Borgartúninu í lok þess
sumars. Það verður því haldið
upp á afmælið í allt sumar með
sérstöku tilboði á rétti dagsins
og síðan verður enn frekar blásið
í afmælislúðrana með haustinu.
Hjördís Ásberg er einn af stofn-
endum fyrirtækisins og hefur
verið framkvæmdastjóri frá upp-
hafi:
Hafa selt yfir milljón
matarskammta
„Fyrirtækinu var strax mjög vel
tekið og í raun sprengdum við
utan af okkur í Borgartúninu
þegar á fyrstu vikunum í rekstr-
inum. Því var einnig opnað í
Kópa-voginum, að Hæðasmára
6, strax ári síðar og svo í Hafn-
arborg í Hafnarfirði í byrjun árs
2008. Við höfum selt yfir milljón
matarskammta, þannig að allir
Íslendingar gætu hafa borðað hjá
okkur nokkrum sinnum!
Við höfum notið þeirrar
gæfu að hafa meðbyr alla tíð
og það hafa verið spennandi
tímar á heilsumarkaðnum; mikil
gróska og gerjun. Margir aðilar
hafa komið í kjölfarið og mark-
aðssett sig á sviði hollustu og ég
er sannfærð um að við eigum
talsverðan þátt í þeirri hug-
arfarsbreytingu sem hefur orðið
hvað varðar úrval lífrænna vara
í matvöruverslunum og á fram-
boði veitingastaða á hollari
vörum en áður.“
Fræðslustarf á sviði
heilsu og sjálfshjálpar
„Við höfum einnig lagt okkur
fram við að sinna fræðslustarfi á
sviði heilsu og sjálfshjálpar og á
þessum árum hafa þúsundir sótt
námskeið og fræðslu um hin
fjölbreytilegustu málefni.
Við hófum innflutning á
vörum í byrjun árs 2005 því
við áttuðum okkur fljótt á því
að framboðið var ekki nægj-
anlegt og ekki til það úrval og
fjölbreytni sem við vildum hafa
á boðstólum. Innflutningurinn
þróaðist í sérstakt heildsölufyr-
irtæki eða Bio vörur sem selur
lífrænar matvörur, bæði inn-
lendar „beint frá bónda“ og inn-
fluttar, náttúrulegar snyrtivörur
og hreinsiefni, vítamín, bætiefni
og ýmsar aðrar heilsuvörur.
Veltan er nú um einn millj-
arður og vöxturinn hefur verið
gríðarlegur. Það er mikil-
vægast að aldrei sé slakað á
gæðakröfunum en einungis
með þeim hætti næst árangur til
lengri tíma.
Við stefnum ótrauð áfram
og erum stolt af því að standa
upprétt í þessu erfiða árferði og
leggjum okkur fram við að efla
starfsemina enn frekar – enda
hefur komið í ljós að Íslendingar
ætla sér ekki að tapa heilsunni
þó að fjármunir tapist.“
Gildir í allt sumar eftir kl. 15 á virkum dögum – hvort sem er til að taka með eða borða á staðnum.
Nýttu þér frábært 2 fyrir 2000 kr. tilboðið á rétti dagsins.
Himnesk
hollusta
w w w. m a d u r l i f a n d i . i s · S í m i 5 8 5 8 70 0
2 fyrir
2000 kr.
á rétti dagsins eftir kl. 15
Hugsaðu um heilsuna
og vertu Maður lifandi
Njóttu úrvals heilsurétta á veitingastöðum
Maður lifandi allan daginn eða taktu hollan
og góðan bita með heim.
Nýttu þér þetta frábæra tilboð hjá Maður
lifandi, strax í dag.
Núna eru staðirnir orðnir ÞRÍR
Borgartún 24
Hæðasmári 6
fyrir ofan Smáralind
Hafnarborg, Hafnarfi rði
Listasafnið Hafnarborg Strandgötu 34
OPIÐ: Borgartún og Hæðasmári v.d. 10–20, lau. 10–17.
Hafnarborg v.d. 11–19 (fi m. til 21), lau. og sun. 11–17.
• Úrval heilsurétta til að njóta á staðnum
eða taka með
• Ljúffeng súpa dagsins, brakandi ferskur
salatbar og heimabakað speltbrauð
– lífrænt og gerlaust
• Gómsætar og hollar kökur
• Veisluþjónusta fyrir öll tækifæri
• Fyrirtækjaþjónusta í hádeginu
• Ferskur safabar
• Lífræn heilsuvöruverslun
Sumartilboð
Heilsan er hagkvæm
Maður lifandi 5 ára
maður lifandi:
Markmið:
Bjóða upp á hollustu og
bestu afurðirnar á Íslandi,
jafnt í verslun og veitinga-
sölu.
Stofnár: 2004
Hjördís Ásberg framkvæmdastjóri og einn af stofnendum Maður lifandi.