Frjáls verslun - 01.04.2009, Page 104
104 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9
70 ára
skipst á kveðjum
Við eigum samleið
E
ik fasteignafélag
hefur frá upphafi
lagt megináherslu á
að kaupa og leigja út
atvinnuhúsnæði en lítið verið í
þróun. „Við lítum ekki á okkur
sem þróunarfélag heldur fyrst og
fremst sem rekstrarleigufélag,“
segir Garðar Hannes Friðjóns-
son, forstjóri Eikar, og bætir við:
„Við höfum alltaf farið varlega í
stækkun félagsins sem varð mest
á árunum 2002-2006. Eftir það
hefur lítið verið keypt af fast-
eignum en frekar selt, ef eitt-
hvað er.“
Eik var stofnað í september
árið 2002 og hét þá Lýsing
fasteignir. Garðar kom í upp-
hafi að félaginu sem ráðgjafi en
tók fljótlega við starfi forstjóra.
Hann segir að farið hafi verið
rólega í sakirnar á því mikla
uppgangstímabili sem nú sé
liðið og hógværðar hafi verið
gætt í mati á fasteignum félags-
ins. „Það er ástæðan fyrir því að
við stöndum enn í dag. Eigið fé
í síðustu ársreikningum var 2,4
milljarðar króna og lausafjár-
staðan var góð miðað við það
sem gengur og gerist nú. Við
fórum heldur aldrei í að taka
erlend lán án þess að vera með
erlendar eignir á móti. Þannig
stýrðum við gjaldeyrismiðla-
áhættunni vel sem þýddi að
þegar krónan féll jókst verðgildi
eignanna á móti.“
Heildarflatarmálið
103 þúsund fermetrar
Eik er í dag eitt stærsta fast-
eignafélag landsins og um leið
einn stærsti einstaki leigusal-
inn í miðbæ Reykjavíkur en á
auk þess mikið af eignum ann-
ars staðar í borginni. Alls á Eik
54 eignir á landinu og er heild-
arflatarmál þeirra um 103.000
fermetrar en leigutakar eru um
150 talsins. Eignir á höfuð-
borgarsvæðinu eru 90,8% af
eignasafninu en afgangurinn
er á landsbyggðinni. Stærstur
hluti eignanna er verslunar-
húsnæði, eða 40,3% en síðan
kemur skrifstofu- og lagerhús-
næði, húsnæði undir veitingahús
og skemmtistaði, hótel og iðnað
o.fl. Stærstur hluti leigutekn-
anna kemur úr póstnúmerunum
101,105 og 108 og segir Garðar
að áhersla sé lögð á að leigu-
takar geti verið ánægðir með
viðskiptin við félagið. „Farsæld
leigutakanna er okkar farsæld.“
Starfsmenn með mikla reynslu
Hjá Eik fasteignafélagi starfar
sjö manns, allt hæft og reynslu-
mikið fólk, að sögn Garðars.
Auk útleigunnar veitir Eik eig-
endum fyrirtækja persónulega
ráðgjöf varðandi það hvers
konar húsnæði henti rekstr-
inum best, en Garðar segir að
stundum séu menn með rangar
hugmyndir um hver húsnæð-
isþörfin sé í raun og veru. „Þá
sýnum við þeim hvernig aðlaga
megi starfsemina að ákveðnu
húsnæði sem getur leitt til þess
að reksturinn gengur betur.“
Þessi ráðgjöf er þó fyrst og
fremst stuðningur við aðalstarf-
semi Eikar, útleigu atvinnuhús-
næðis. „Staða félagsins er sterk
hvað varðar útleigu. Allflestar
eignir eru í leigu og eftirspurn
eftir húsnæði er enn ágæt,“ segir
Garðar Hannes Friðjónsson for-
stjóri að lokum.
Farsæld leigutakans
er farsæld Eikar
eik fasteignafélag:
Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar.
Markmið:
Áframhaldandi uppbygg-
ing, þó þannig að áhersla
er lögð á arðsemi en ekki
stækkun.
Stofnár: 2002