Frjáls verslun - 01.04.2009, Page 112
112 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9
Getur
hugbúnaðurinn
bjargað Íslandi?
nú þegar bankabólan hefur sprungið með hvelli
framan í land og þjóð blasir við nýr veruleiki í efna-
hagslífinu. nú verður landinn að gjöra svo vel og flytja
út verðmæti a.m.k. til jafns á við það sem flutt er inn
svo þjóðarbúið komist á réttan kjöl. en þá vöknum
við upp við vondan draum, þar sem meginstoðirnar
í útflutningi Íslendinga eru einungis tvær – sjávarút-
vegur og álframleiðsla – og þær standa þar að auki
ekkert sérstaklega vel þessi misserin, með lækkandi
hráefnisverði og miklum fjármagnskostnaði. en hvar
fáum við fleiri stoðir til að auka gjaldeyrissköpunina?
Á tyllidögum er oft rætt um mikilvægi hugbúnaðarþró-
unar og sprotafyrirtækja í upplýsingatækni, en þegar
á hólminn er komið virðist eins og þessar greinar skili
ekki miklu til þjóðarbúsins.
teXti: KRISTINN JÓN ARNARSON ● MYnDir: GEIR ÓLAFSSON o. fl. E n hversu mikilvægur er hugbún-aðariðnaður nú – og hversu líklegt er að hann geti orðið lykilþáttur í útflutn-ingi Íslendinga í náinni framtíð? Frjáls
verslun kannaði málið og komst að því að tækifærin
eru fjölmörg – en talsvert betur má ef duga skal.
Seðlabankinn hefur gert árlega könnun á
umfangi hugbúnaðarútflutnings og í nýjustu könn-
uninni kemur í ljós að útflutningur hugbúnaðar
nam rétt tæpum sex milljörðum króna árið 2007,
sem er um 1,4% alls útflutnings frá Íslandi það ár.
Eins og sjá má af meðfylgjandi grafi hefur hugbún-
aðarútflutningur vaxið jafnt og þétt síðustu 20 árin,
bæði í verðmæti og sem hlutfall af útflutningsverð-
mætum, þótt árið 2007 hafi komið nokkurt bakslag
frá árinu áður.
Hugbúnaður leynist víða
Þótt vissulega muni um hvert viðbótarprósent í
útflutningi gæti einhverjum fundist 1,4% vera ansi
lítið hlutfall og hæpið að gera ráð fyrir að grein
sem skili ekki meiru til þjóðarbúsins verði mik-
ilvæg stoð í útflutningi í náinni framtíð. En þetta
er þó ekki svo einfalt og ef kafað er ofan í málið
sést að útflutningur á hugbúnaði einum og sér er
Íslenski hugbúnaðariðnaðurinn