Frjáls verslun - 01.04.2009, Side 114
114 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9
Frumtak er fjárfestingasjóður sem fjárfestir í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum sem komin eru af klakstigi og eru vænleg til vaxtar og útrásar. Sjóðurinn er í eigu stærstu lífeyr-
issjóða landsins, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og stóru bankanna
þriggja. Dr. Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks, þekkir
vel til aðstæðna sprotafyrirtækja á Íslandi.
„Síðustu mánuðina hef ég skoðað yfir 60 sprotafyrirtæki sem
eru mislangt á veg komin. Mörg þessara fyrirtækja eru tengd upp-
lýsingatækni eða þekkingariðnaði á einhvern hátt og greinilegt að
mikil gerjun er í þeim geira og margar spennandi hugmyndir í
vinnslu,“ segir Eggert. „Fjölbreytnin er lykilhugtak í þessu – við
verðum að muna að molar eru líka brauð. Við þurfum að byggja
upp fjölbreytta flóru lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem minnka
áhættu hagkerfisins en auka hagsæld. Um 80% nýrra starfa verða til
í litlum fyrirtækjum og því er miklu traustara að geta búið til mörg
smærri fyrirtæki heldur en leita alltaf að stórum lausnum. Og það
þarf engar risaupphæðir því fjárfesting til að aðstoða sprotafyrirtæki
til að ná vexti er oftast á bilinu 50 til 150 milljónir.“
Nýtum kjarnasviðin
Eggert telur mikilvægt fyrir Íslendinga að nýta sér ýmis kjarnasvið
þar sem mikil þekking hefur byggst upp hér á landi í gegnum tíð-
ina. „Þar má til dæmis nefna sjávarútveg, auðlindastýringu, orku-
ariðnaði erlendis. Hins vegar væri ekki hægt
að alhæfa að Íslendingar stæðu sig betur eða
verr en aðrar þjóðir. „Við erum bara svo smá
í alþjóðlegum samanburði, þetta er næstum
eins og að spyrja að því hvernig íbúar Hull
standi sig í hugbúnaðarþróun,“ sagði einn
viðmælandi.
Á ákveðnum sviðum hafa íslensk fyrirtæki
þó náð mjög góðum árangri og má þar nefna
tölvuleiki, þar sem CCP er á heimsmæli-
kvarða á sínu sviði og hefur myndað góðan
jarðveg sem sprotafyrirtæki í tölvuleikjageir-
anum njóta nú góðs af. Íslensk fyrirtæki hafa
einnig vakið athygli fyrir þróun viðskipta-
hugbúnaðar fyrir Microsoft-lausnir, en sem
dæmi má nefna að Landsteinar Strengur og
LS Retail fengu í fyrrasumar inngöngu í svo-
kallaða Inner circle club og President‘s club
hópa Microsoft-samstarfsaðila í viðskipta-
lausnum, auk þess sem Maritech hefur kom-
ist í President‘s club tvö ár í röð og Annata
hefur einnig verið meðlimur í sama hópi.
Einungis allra bestu samstarfsaðilar Micro-
soft á alþjóðavísu fá inngöngu í þessa hópa
og er það talið með eindæmum að jafnmörg
fyrirtæki frá svo litlu landi komist inn í þessa
þröngu hópa. Fleira mætti telja til; Friðrik
Skúlason hefur náð góðum árangri alþjóð-
lega með veiruvarnarhugbúnað, Calidris
hefur selt sérhannaðar hugbúnaðarlausnir
fyrir flugfélög til fyrirtækja á borð við British
Airways, Applicon hefur vakið athygli fyrir
þróun viðbótarlausna fyrir SAP-viðskipta-
hugbúnaðinn og þá hafa einungis nokkur
fyrirtæki verið nefnd.
Breiddina vantar
Í skýrslu Seðlabankans kemur reyndar fram
að það eru ekki mörg fyrirtæki á bak við
stærstan hluta hugbúnaðarútflutnings Íslend-
inga. Um 10% þeirra fyrirtækja sem tölur
Seðlabankans ná yfir standa fyrir 80% af
heildarútflutningi í greininni og einungis
11 fyrirtæki voru með yfir 100 milljónir í
útflutningstekjur árið 2007. Breiddin er því
ekki sérstaklega mikil í greininni og betur
má ef duga skal. Góðu fréttirnar hins vegar
eru að hugbúnaðarþróun er sennilega með
Íslenski hugbúnaðariðnaðurinn
Dr. Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks.
Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks:
Betra að búa til
mörg lítil fyrir-
tæki en eitt stórt