Frjáls verslun - 01.04.2009, Blaðsíða 117
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9 117
saga CCP er orðin nokkuð vel þekkt hér á landi, enda er fyrirtækið orðið langstærsti hugbúnaðarútflytjandi lands-ins. Tekjur félagsins á síðasta ári voru um 45 milljónir doll-
ara, sem eru rétt undir sex milljörðum króna miðað við núverandi
gengi krónu. Svo til allar þessar tekjur koma erlendis frá, enda er
tölvuleikurinn Eve Online megintekjulind CCP, en hátt í 300.000
manns um heim allan greiða áskrift að leiknum mánaðarlega. Alls
starfa yfir 370 manns hjá CCP, þar af 220 hér á landi og nú er fyr-
irtækið orðið það fjölmennasta við gömlu höfnina í Reykjavík.
slæmt að vera án fjármagns
Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, þekkir vel þá
rússíbanareið sem fylgir því að vera útflytjandi á Íslandi. Það eru
ekki mörg ár síðan fyrirtækið barðist við hátt gengi krónu sem
þýddi að það fékk undir 60 krónur fyrir hvern dollar sem kom í
kassann. Núna stendur gengið í 130 en þá setja gjaldeyrishömlur
stólinn fyrir dyrnar. „Staða okkar almennt er nokkuð góð, þótt
ástandið hafi að sjálfsögðu ekki hjálpað. Innra starfið gengur vel,
við erum að ráða fólk, Eve Online vex og önnur verkefni eru í und-
irbúningi. CCP hefur ekki orðið fyrir beinum skaða af ástand-
inu, en það hefur þó þýtt að við höfum þurft að láta tækifæri sem
við hefðum getað nýtt okkur í venjulegu árferði ganga okkur úr
greipum. Þrátt fyrir allt eru mikil vaxtartækifæri núna í tölvuleikja-
iðnaðinum og margir okkar keppinauta erlendis hafa verið að sækja
fjármagn til fjárfesta. Á meðan er ekkert fjármagn fyrir ný verkefni
að fá hér á landi enda er erlend fjárfesting í raun bönnuð,“ segir
Hilmar.
Mikilvægi evrópusambandsins
Hilmar þarf ekki að hugsa sig lengi um þegar hann er spurður
hvernig best væri að leysa þennan vanda. „Það mikilvægasta sem
við gætum gert fyrir útflutning í þekkingariðnaði væri að ganga í
Evrópusambandið. Þar með værum við loksins komin á sama sam-
keppnisgrundvöll og önnur alþjóðleg fyrirtæki og laus við þessar sér-
íslensku aðstæður sem við höfum búið við í gegnum tíðina. Íslenska
krónan og aðrar sérreglur sem við höfum búið við eru dragbítur á
útflutningsgreinar og þekkingargeirinn er sérstaklega viðkvæmur
fyrir höftum og miklu flækjustigi. Það er vonlaust að gera áætl-
anir fram í tímann, því við vitum aldrei hvernig aðstæður sem við
höfum engin áhrif á verða eftir sex mánuði. Okkar keppinautar búa
við trausta gjaldmiðla og meiri stöðugleika og eru því nokkuð vissir
um hverju þeir geti búist við í náinni framtíð. Á meðan hossumst
við í rússíbananum með bundið fyrir augun.“
Virðisaukinn er mikill
Hilmar er ekki í vafa um að þekkingariðnaðurinn geti orðið gríðar-
lega verðmætur fyrir íslenska þjóð ef rétt er haldið á spilunum.
„Höfum í huga að fyrirtæki eins og CCP selur ekkert annað en
hugmyndir. Við notum engar auðlindir aðrar en fólkið í landinu
– með því að beisla hugmyndaauðgi þess búum við til útflutnings-
vöru. Við þurfum ekki að kaupa hráefni erlendis frá eins og áliðn-
aðurinn eða kosta miklu til við að sækja það eins og sjávarútveg-
urinn. Hráefnið verður til í höfðinu á okkur og er fullunnið innan
veggja fyrirtækisins. Því er virðisaukinn af hverju starfi í þessum
iðnaði gríðarlega mikill og tækifærin eru á hverju strái.“
Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP.
Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP:
okkar útflutningsvara
er hugmyndir