Frjáls verslun - 01.04.2009, Blaðsíða 120
120 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9
N ý f r a M T Í ð a r s ý N
Þ orkell lauk prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1977, hóf störf hjá Eimskip að loknu námi og var framkvæmdastjóri hjá félaginu
frá 1986 til 2000, en síðustu árin starfaði
hann sem framkvæmdastjóri Burðaráss sem
var fjárfestingaarmur Eimskipafélagsins. Árið
2004 ákvað hann að skipta um starf og varð
framkvæmdastjóri hjá Háskólanum í Reykja-
vík. Þorkell hefur setið í stjórn um tuttugu
fyrirtækja svo sem Marels, Össurar, TM
Software og Kauphallar Íslands og fjölmargra
smærri fyrirtækja. Hann hefur ritað fjölda
greina í blöð og tímarit, einkum um stjórn-
unarmál og er höfundur nokkurra bóka og
smárita. Eiginkona Þorkels er Kristín H.
Vignisdóttir og eiga þau þrjú börn.
Nauðsynlegt að gera upp við fortíðina
„Ég var byrjaður að skrifa bókina löngu
fyrir hrunið og þá var hugmyndin að skrifa
um það hvernig hægt væri að bæta stjórn-
arhætti fyrirtækja til að ná betri árangri í
atvinnulífinu og í þjóðfélaginu í heild. Í bók-
inni fjalla ég um mikilvægi þess að þjóðin
móti sér nýja framtíðarsýn þar sem nýir
stjórnarhættir, bætt viðskiptasiðferði, sjálf-
bærni og nýsköpun eru höfð að leiðarljósi.
Mín skoðun er sú að efnahagshrunið megi
að stórum hluta skýra með slakri stjórnun
og stjórnarháttum stjórnarmanna og lykil-
stjórnenda fyrirtækjanna. Það brást að flytja
reynslu og þekkingu einnar kynslóðar stjórn-
enda yfir til þeirrar næstu.“
Í bókinni er fjallað ítarlega um stjórnun
fyrirtækja – hlutverk stjórna og æðstu stjórn-
enda, enda segir Þorkell mjög mikilvægt að
taka upp nýja stjórnarhætti og ný gildi við
stjórnun fyrirtækja og samhliða endurreisn
efnahagslífsins þurfi Íslendingar nýja fram-
tíðarsýn.
„Ég tel nauðsynlegt að gert verði upp við
fortíðina og þá sem komu þjóðinni í þann
vanda sem við er að glíma. Það sem skipti
texti: vilmundur hansen ● Mynd: geir ólafsson
Nýir sTjórNarhæTTir
Við eNdurreisN
efNahagslÍfsiNs
Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri fjármála- og þróunarsviðs Háskólans í Reykjavík.
Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri fjármála- og þróunarsviðs Háskólans í
Reykjavík, sendi nýlega frá sér bók sem hann kallar „ný framtíðarsýn“ og fjallar
um nýja stjórnunarhætti við endurreisn efnahagslífsins.