Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.2009, Page 121

Frjáls verslun - 01.04.2009, Page 121
F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9 121 N ý f r a M T Í ð a r s ý N sköpum við að byggja upp réttlæti og hag- sæld eru annars vegar stjórnarhættir stjórn- armanna og stjórnenda fyrirtækja og hins vegar hin efnahagslega umgjörð og eftirlit ríkisvaldsins. Að mínu mati eiga Íslendingar gríðarlega mörg tækifæri í atvinnumálum og er því full ástæða til bjartsýni ef rétt er á málum haldið.“ ráðdeild var gamaldags Þorkell segist í bókinni reyna að lýsa því hvernig ráðdeild og hefðbundin rekstrarsjón- armið urðu skyndilega gamaldags í hruna- dansi síðustu ára. Óskabörn þjóðarinnar voru eyðilögð. „Það gerðist við einkavæðingu bankanna. Vanhæfum stjórnendum var falið það ábyrgðarmikla hlutverk að leiða áfram fyrirtæki landsmanna og fyrir það fengu þeir ofurlaun. Fjárfestingastarfsemi varð aðal- atriðið í stað rekstrar, því þar átti gróðinn að vera mestur og koma á sem skemmstum tíma. Keppikeflið varð skyndigróði í áhættu- fjárfestingum, eftirlitsleysi opinberra aðila og að allir mundu spila eftir settum leikreglum og ekki þyrfti eftirlit og dómara. Ég tel að bankahrunið og afleiðingar þess sé fyrst og fremst fífldirfsku nokkurra einstaklinga um að kenna samfara eftirlitsleysi stjórnvalda á ýmsum sviðum. Upphaf hrunsins má rekja til einkavæðingar bankanna og síðan uppbrots lykilfyrirtækja landsmanna milli bankastofn- ana þann örlagaríka dag 19. september árið 2003. Það tók síðan ekki nema fimm ár að koma öllum þessum fyrirtækjum og íslensku atvinnulífi í þrot. Þetta hefur verið mér mikið umhugsunarefni eftir að hafa verið lykilþátttak- andi í uppbyggingu öflugs efnahagslífs á síð- ustu tveimur áratugum tuttugustu aldarinnar, en þurfa svo að horfa upp á hrunadansinn án þess að geta nokkuð aðhafst. Hrun efnahags- lífsins hér er heimsmet og verður um alla fram- tíð skólabókardæmi um stjórnarhætti lítillar og vanhæfrar þjóðar til að takast á við eigin efnahagsmál. Og nú halda sumir að þjóðin geti einangrað sig og verið frjáls og sjálfstæð án tengsla við alþjóðasamfélagið, en slíkt gengur vitanlega ekki. Með bókinni vil ég því leggja mitt af mörkum að miðla af eigin reynslu og opna augu allra fyrir því að við þurfum nýja fram- tíðarsýn og nýja stjórnarhætti við stjórnun fyrirtækja hér á landi,“ segir Þorkell. Þurfum sterk gildi Bókin skiptist í þrjá meginhluta. Í fyrsta lagi stutta upprifjun á þróun atvinnulífs á síðustu öld, þekkingarsamfélagið og hlutverk fyr- irtækja í samfélaginu almennt. Í öðru lagi um stjórnun fyrirtækja, hlutverk stjórna og starfs- hætti stjórna og stjórnenda. Að lokum er kafli um þá nýju framtíðarsýn sem þjóðin þarf að eignast sem Þorkell segir m.a. vera nýtt hug- arfar, nýtt siðferði og áherslu á sjálfbærni. Þar er fjallað um framtíðarmöguleika helstu atvinnugreina þjóðarinnar. „Íslendingar eru ekki nema liðlega 300.000 og þurfa að hafa sterk gildi og framtíðarsýn ef okkur á að takast að byggja upp hagfellt sam- helt samfélag. Í raun erum við sem þjóð ekki fjölmennari en stærstu fyrirtækin erlendis og ef þau hafa byggt upp framtíðarsýn og stefnu þá eigum við sem þjóð að geta það líka. Íslendingar eiga ekki að byggja framtíð sína á gerviheimi gróðahyggju í fjárfestingastarfsemi heldur á atvinnurekstri þar sem við nýtum þekkingu, mannauð og aðrar auðlindir sem við eigum,“ segir Þorkell Sigurlaugsson að lokum. Ný fraMTÍðarsýN – nokkur atriði úr bókinni ● Glæsibyggingar í Skuggahverfinu voru táknrænar fyrir bjartsýni í byrjun 21. aldar. ● Það tókst að eyðileggja „óskabörn þjóðarinnar“ og bankana á örfáum árum og eftir standa mörg „vandræðabörn“, þjóðinni til lítils gagns. ● Lélegir stjórnarhættir og vanhæfar stjórnir fyrirtækja voru meginorsök efna- hagshrunsins. ● Þjóðina vantaði á undanförnum árum leiðtoga með framtíðarsýn, visku og hug- rekki. ● Árangursrík stjórnun snýst um að spyrja réttu spurninganna, leita uppi vandamálin og leysa þau, en ekki síður leita uppi ný tækifæri og nýta þau. ● Stjórnir fyrirtækja þurfa að ræða það hvernig þær vilja starfa og hvernig þær vilja að stjórnarfundir sé upp byggðir og hvað mál skuli vera til umræðu. ● Atkvæðalitlir stjórnarmenn eru engum til gangs og að sama skapi þarf að varast ofríki og ofstjórn á stjórn- arfundum. ● Framtíðarsýn þjóðarinnar þarf að byggjast á nýsköpun í atvinnulífinu, sjálf- bærni á sem flestum sviðum, nýjum gildum í viðskiptum, markaðshagkerfi og alþjóðasamskiptum. ● Framtíðartækifæri Íslendinga eru mörg og felast í hugviti, dugnaði og góðri menntun, sköpunarkrafti og skynsam- legri nýtingu auðlinda þjóðarinnar. ● Ísland er land fjölmargra tækifæri í atvinnumálum og lífskjör hér á landi og atvinnustig getur fljótlega komist í fremstu röð, ef við fáum aftur það besta af gamla Íslandi, samhliða nýrri framtíð- arsýn í efnahags- og atvinnumálum. Framtíðarsýn, 1989 Frá handafli til hugvits, 1993 Stefnumarkandi áætlanagerð, 1994 Stjórnlist, 1995 ný stjórnlist, 1996 Stjórnun breytinga, 1996 AðRAR BækuR eFtiR ÞoRkeL SiGuRLAuGSSon: Nýir sTjórNarhæTTir Við eNdurreisN efNahagslÍfsiNs
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.