Frjáls verslun - 01.04.2009, Qupperneq 138
138 F R J Á L S V E R S L U N • 3 . T B L . 2 0 0 9
MENNTUN | NÝSKÖPUN | HEILSA | ORKA | LÍFSGÆÐI | SAMGÖNGUR
www.asbru.is
Ásbrú er nýtt svar við nýjum tímum. Við höfum reist spennandi samfélag á gamla
varnarsvæðinu í Reykjanesbæ og þar bíða ótal tækifæri á sviði sköpunar, sjálfbærrar
þróunar, menntunar, heilsu og rannsókna.
Ásbrú er heilt samfélag, þróað fyrir þig – þar er að fi nna allt til alls. Ásbrú snýst
um hreina orku, þekkingu og nýsköpun, alþjóðlega samkeppnishæfni, nálægð við
alþjóðasamgöngur, mannauð, húsnæðiskost, æðri menntun, rannsóknir og heilsu.
Ekki leita lengra ef þú leitar að framtíðinni. Ásbrú er svarið – þar býr framtíðin.
Tækifærin
búa hér
artasan sérhæfir sig í sölu og ráðgjöf á vörum og lausnum sem stuðla að bættri heilsu, svo sem fæðubótaefnum
og lausasölulyfjum svo eitthvað sé nefnt. Fyr-
irtækið selur og dreifir vörum til apóteka,
líkamsræktarstöðva, bensínstöðva og stór-
markaða. Helstu vörur eru EAS fæðubótaefnin
og lausasölulyf frá Novartis Consumer Health,
þar á meðal eru Nicotinell tyggjó, plástra og
munnsogstöflur til að hjálpa þeim sem vilja
hætta að reykja. Otrivin við nefstíflu, frunsu-
meðalið Vectavir, fótsveppalyfið Lamisil og
verkjalyfin Voltaren Dolo og Voltaren Gel.
Brynjúlfur Guðmundsson er sölu- og
markaðsstjóri yfir lausasölulyfjum frá Nov-
artis Consumer Health hjá Artasan og er
ábyrgur fyrir rekstri markaðsdeildarinnar,
sem er sjálfstæð rekstrareining innan Artasan.
„Ég tók við þessu starfi þegar ég flutti heim
eftir að hafa búið í London í fjögur ár þar
sem ég vann í þrjú ár sem markaðsstjóri í
kvikmyndageiranum og svo sem ráðgjafi í eitt
ár hjá Accenture. Mig hafði alltaf langað að
vinna í lyfjageiranum og þegar tækifærið gafst
ákvað ég að slá til.
Starf mitt felst meðal annars í greiningu
á markaði og sölutækifærum, gerð sölu-
og rekstraráætlana og eftirfylgni með áætl-
unum, stjórnun samskipta við birgja og við-
skiptavini, stýra verkefnum sölufulltrúa, stýra
birgðahaldi og innkaupum og gerð kynn-
ingarefnis og skipulagning markaðsherferða,
ráðstefnusókn o.fl. Verkefnin í framtíðinni
eru meðal annars að finna tækifæri fyrir nýjar
vörur sem hægt er að markaðasetja hér á
Íslandi og stækka starfsemina.“
Brynjúlfur er í sambandi með Helenu
Guðlaugsdóttur, sem á einn son, Gabríel,
Fólk
Brynjúlfur
Guðmundsson:
„Ég hef gengið
Fimmvörðuhálsinn,
gengið á Botnsúlur,
Esjuna, Vífilsfell og
Búrfell og nú er stefnt
að því að ganga
Glerárdalinn í sumar,
24 tinda á einum sól-
arhring.“
sölu- og markaðsstjóri Artasan ehf.
BRYNJÚLFUR GUÐMUNDSSON
Nafn: Brynjúlfur
Guðmundsson.
Fæðingarstaður: Reykjavík
6. mars 1973
Foreldrar: Guðrún
Brynjúlfsdóttir og
Guðmundur Vigfússon
Menntun: B.Sc. í alþjóða-
markaðsfræði frá HR.
Stundar MBA-nám í HR og
útskrifast vorið 2010.
sem er átta ára. „Áhugamál mín eru mörg,
m.a. fimleikar, en ég æfði fimleika í tólf ár
og var orðinn landsliðsmaður þegar ég hætti.
Ég fer reglulega með félögum mínum í veiði
og vil helst veiða á flugu. Líkamsrækt er
ofarlega á blaði hjá mér og fer ég reglulega
í Laugar að lyfta og brenna. Einnig hef ég
verið að stunda aðeins jóga. Útiveru og fjall-
göngur hef ég stundað af kappi, hef gengið
Fimmvörðuhálsinn, gengið á Botnssúlur,
Esjuna, Vífilsfell og Búrfell. Svo er stefnt
að því að ganga Glerárdalinn í sumar, 24
tinda á einum sólarhring. Einnig stefni ég
á að skoða Vestfirðina í sumar þar sem ég
var í sveit sem krakki (á Hnjóti í Patreks-
firði). Svo er einnig planað að keyra hring-
inn, heimsækja vini og vandamenn og skoða
áhugaverða staði.“