Frjáls verslun - 01.07.2006, Side 31
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6 31
FORSÍÐUEFNI
U
ppbygging og vöxtur hafa einkennt starfsemi BM-Vallár
síðustu árin. Fyrirtækið dafnar sem aldrei fyrr og er nú
með starfsstöðvar víða um land, en áður var starfsemin
nær eingöngu bundin við höfuðborgarsvæðið. Fyrir
fjórum árum var veltan um 1,5 milljarðar kr. og starfs-
menn um 150. Nú eru þeir um 430 og ársveltan nálgast
átta milljarða kr.
Möguleikar til sóknar
Það var á því herrans ári 1946 sem feðgarnir frá Vallá, Benedikt og
Magnús faðir hans, byrjuðu að moka möl úr Kjalarnesfjörum og
selja sem byggingarefni. Sú útgerð vatt upp á sig og árið 1956 setti
Benedikt á laggirnar steypustöð á Ártúnshöfða í Reykjavík, hvar
starfsemin er enn í dag. Árið 1961 kom ungur verslunarskólanemi,
Víglundur Þorsteinsson, í sumarvinnu hjá fyrirtækinu og var þar
viðloðandi næstu árin. Með því að ganga í öll störf sem til féllu
gerði Víglundur sjálfan sig ef til vill ómissandi, því við skyndilegt
fráfall Benedikts á gamlársdag 1970 var leitað til Víglundar um að
taka við stjórn fyrirtækisins. Því kalli sinnti hann og hefur starfað
hjá fyrirtækinu æ síðan. Ferill hans hjá fyrirtækinu spannar því
rétt 45 ár.
BM-Vallá er í dag í eigu Víglundar Þorsteinssonar og fjölskyldu
hans. Víglundur er starfandi stjórnarformaður félagsins en Þor-
steinn, sonur hans, forstjóri.
Skrifstofur feðganna eru í tveimur samliggjandi herbergjum í
höfuðstöðvunum við Bíldshöfða. Sú skipan vitnar um gott og náið
samstarf. „Þegar ég kom inn í reksturinn með föður mínum var
það stefna okkar að færa út kvíarnar. Við sáum ýmsa möguleika til
sóknar og vildum auka umsvifin rétt eins og við höfum gert,“ segir
Þorsteinn, sem tók við forstjórastarfinu árið 2002, árið sem Guð-
mundur og Magnús Benediktssynir, synir stofnanda fyrirtækisins,
Benedikts frá Vallá, seldu hluti sína í fyrirtækinu.
Með starfsemi um allt land
Á Ártúnshöfða eru skrifstofur, söludeild og stærsta framleiðsluein-
ing BM-Vallár, þ.e. þrjár steypustöðvar sem eru í gangi alla daga
vikunnar. Í Suðurhrauni í Garðabæ er framleiðsla á hús- og
garðeiningum, rörum og ýmiss konar garðvörum. Útrás á lands-
byggðina hófst 2003 með kaupum á Möl og sandi á Akureyri. Þá
starfrækir fyrirtækið steypustöðvar á Akranesi, Akureyri og Reyð-
arfirði auk þess sem það sem selur og flytur sement til Impregilo,
verktaka Kárahnjúkastíflu. Á góðum degi má gera ráð fyrir að
framleiddir séu og keyrðir út um 2.000 rúmmetrar af steypu frá
stöðvum félagsins.
BM-Vallá keypti Pípugerðina árið 2001 og haslaði sér síðan völl
í framleiðslu múrvara með kaupum á Steinprýði árið 2002 og Sandi
Ímúr árið eftir. Með viðskiptum fyrr á þessu ári er BM-Vallá nú
aðaleigandi Límtrés-Vírnets sem er með starfsemi í Borgarnesi, á
Flúðum og víðar og framleiðir nagla, járnklæðningar, yleiningar og
límtrésbita, svo eitthvað sé nefnt.
„Við vildum breikka vöruframboð okkar fyrir innlendan bygg-
ingariðnað enn frekar. Nú getum við til dæmis boðið viðskipta-
vinum okkar lausnir í burðarvirkjum bygginga úr steypu, stáli og
tré. Nú erum við að færa rekstur Límtrés-Vírnets inn í okkar sam-
stæðu, en notum áfram sömu vörumerki. Annað væri ástæðulaust.
Límtré framleiðar límtrésbita rétt eins og verið hefur og naglarnir
Þorsteinn Víglundsson, forstjóri BM Vallár, segist
hafa villst inn í viðskiptalífið. Hann ræðir hér um
60 ára sögu BM Vallár og ótrúlegan vöxt fyrirtæk-
isins á síðustu fjórum árum.
ÉG VILLTIST INN
Í VIÐSKIPTALÍFIÐ
TEXTI: SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON
MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON
FV.07.06.indd 31 7.9.2006 12:52:35