Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2006, Side 34

Frjáls verslun - 01.07.2006, Side 34
34 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6 D A G B Ó K I N TEXTI: JÓN G. HAUKSSON • MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON o.fl. Þórður Már Jóhannesson. 21. júní Þórði Má sagt upp hjá Straumi Eitt heitasta mál sumarsins er eflaust uppsögn Þórðar Más Jóhannessonar, fyrrverandi forstjóra Straums-Burðaráss. Uppsögnin var ákveðin á löngum stjórnarfundi í bank- anum að kvöldi 21. júní en á fundinum var jafnframt ákveðið að boða til hluthafafundar 19. júlí. Sá fundur átti svo eftir að verða í meira lagi sögulegur þar sem hluthöfum var meinað að bera fram spurningar – en sá liður var ekki á dagskrá. Á stjórnarfundinum 21. júní var ákveðið að Friðrik Jóhannsson yrði nýr forstjóri Straums- Burðaráss. Friðrik var áður forstjóri Burðaráss en lét af þeim störfum þegar Straumur og Burðarás voru sameinaðir, en Þórður var forstjóri Straums. Friðrik er gamall í hettunni og varð fyrst áberandi í viðskipta- lífinu þegar hann varð forstjóri Fjárfestingarfélag Íslands í kringum 1990. 21. júní Magnús og Kristinn hneykslaðir Eftir hinn langa og stranga stjórnarfund í Straumi-Burðarási fjárfestingabanka sögðu þeir félagar, Magnús Kristinsson, varaformaður stjórnar félagsins, og Kristinn Björnsson stjórn- armaður, sem greiddu atkvæði gegn tillögu Björgólfs Thors um forstjórabreytingarnar, að stjórnarfundurinn hefði verið ólöglegur og þeir væru hneyksl- aðir á vinnubrögðunum. Rökin fyrir því að stjórnarfundurinn væri ólöglegur sögðu þeir félagar að Páll Magnússon stjórnarmaður hefði ekki mætt heldur tilkynnt um nýjan vara- mann í sinn stað. „Viðbrögð mín við niðurstöðu fundarins eru bara hneykslan og mikil vanþóknun á vinnubrögðum formanns stjórnar Straums- Burðaráss fjárfestingabanka,“ sagði Magnús í samtali við Morgunblaðið og bætti við: „Á sama tíma og Þórður Már leggur upp síðasta ársfjórðung með 20 milljarða króna hagnaði þá er hann rekinn, þetta sýnir svoleiðis yfirgang og frekju á hæsta stigi.“ 22. júní „Trúnaðarbrestur milli mín og Þórðar“ Björgólfur Thor Björgólfsson, formaður stjórnar Straums- Burðaráss, sagði ástæðuna fyrir brottrekstri Þórðar Más Jóhannessonar, fráfarandi for- Öfugt við það sem er í laxveiðinni þá hefur þetta verið sumar stórlaxanna í viðskiptalífinu. Umfangsmesta frétt sumarsins er örugglega hinn mikli órói sem var hjá Straumi-Burðarási fjárfest- ingabanka um miðjan júní sem endaði með uppsögn Þórðar Más Jóhannessonar. Þá hafa fréttir af fríblaðastríðinu í Danmörku, þar sem Baugur Group og Dagsbrún eru í aðalhlutverkum, verið mjög fyrirferðarmiklar. Þá urðu miklar umræður um launamál forstjóra í kjölfar Tekjublaðs Frjálsrar verslunar sem kom út í endaðan júlí – þar sem umfjöllun Morgunblaðsins um málið vó langþyngst. Þá hafa verið fluttar fréttir með reglulegu millibili af stríði bandaríska lyfjarisans Barr Pharmaceuticals og Actavis um króatíska sam- heitalyfjafyrirtækið Pliva – en háð hefur verið tilboðsstríð þar sem pókerinn gengur út á að hækka sig, jafna og bjóða betur. Ekki er enn séð fyrir endann á því hvort fyrirtækið hreppir hnossið. ÁTÖK SUMARSINS Í STRAUMI-BURÐARÁSI Kristinn Björnsson og Magnús Kristinsson. FV.07.06.indd 34 7.9.2006 12:52:51
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.