Frjáls verslun - 01.07.2006, Side 34
34 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6
D A G B Ó K I N
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON • MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON o.fl.
Þórður Már Jóhannesson.
21. júní
Þórði Má sagt
upp hjá Straumi
Eitt heitasta mál sumarsins er
eflaust uppsögn Þórðar Más
Jóhannessonar, fyrrverandi
forstjóra Straums-Burðaráss.
Uppsögnin var ákveðin á
löngum stjórnarfundi í bank-
anum að kvöldi 21. júní en á
fundinum var jafnframt ákveðið
að boða til hluthafafundar 19.
júlí. Sá fundur átti svo eftir að
verða í meira lagi sögulegur
þar sem hluthöfum var meinað
að bera fram spurningar – en
sá liður var ekki á dagskrá. Á
stjórnarfundinum 21. júní var
ákveðið að Friðrik Jóhannsson
yrði nýr forstjóri Straums-
Burðaráss. Friðrik var áður
forstjóri Burðaráss en lét af
þeim störfum þegar Straumur
og Burðarás voru sameinaðir,
en Þórður var forstjóri Straums.
Friðrik er gamall í hettunni og
varð fyrst áberandi í viðskipta-
lífinu þegar hann varð forstjóri
Fjárfestingarfélag Íslands í
kringum 1990.
21. júní
Magnús og Kristinn
hneykslaðir
Eftir hinn langa og stranga
stjórnarfund í Straumi-Burðarási
fjárfestingabanka sögðu þeir
félagar, Magnús Kristinsson,
varaformaður stjórnar félagsins,
og Kristinn Björnsson stjórn-
armaður, sem greiddu atkvæði
gegn tillögu Björgólfs Thors
um forstjórabreytingarnar, að
stjórnarfundurinn hefði verið
ólöglegur og þeir væru hneyksl-
aðir á vinnubrögðunum. Rökin
fyrir því að stjórnarfundurinn
væri ólöglegur sögðu þeir
félagar að Páll Magnússon
stjórnarmaður hefði ekki mætt
heldur tilkynnt um nýjan vara-
mann í sinn stað.
„Viðbrögð mín við niðurstöðu
fundarins eru bara hneykslan og
mikil vanþóknun á vinnubrögðum
formanns stjórnar Straums-
Burðaráss fjárfestingabanka,“
sagði Magnús í samtali við
Morgunblaðið og bætti við: „Á
sama tíma og Þórður Már leggur
upp síðasta ársfjórðung með 20
milljarða króna hagnaði þá er
hann rekinn, þetta sýnir svoleiðis
yfirgang og frekju á hæsta stigi.“
22. júní
„Trúnaðarbrestur
milli mín og Þórðar“
Björgólfur Thor Björgólfsson,
formaður stjórnar Straums-
Burðaráss, sagði ástæðuna
fyrir brottrekstri Þórðar Más
Jóhannessonar, fráfarandi for-
Öfugt við það sem er í laxveiðinni þá hefur þetta verið sumar
stórlaxanna í viðskiptalífinu. Umfangsmesta frétt sumarsins er
örugglega hinn mikli órói sem var hjá Straumi-Burðarási fjárfest-
ingabanka um miðjan júní sem endaði með uppsögn Þórðar Más
Jóhannessonar. Þá hafa fréttir af fríblaðastríðinu í Danmörku, þar
sem Baugur Group og Dagsbrún eru í aðalhlutverkum, verið mjög
fyrirferðarmiklar. Þá urðu miklar umræður um launamál forstjóra
í kjölfar Tekjublaðs Frjálsrar verslunar sem kom út í endaðan júlí
– þar sem umfjöllun Morgunblaðsins um málið vó langþyngst. Þá
hafa verið fluttar fréttir með reglulegu millibili af stríði bandaríska
lyfjarisans Barr Pharmaceuticals og Actavis um króatíska sam-
heitalyfjafyrirtækið Pliva – en háð hefur verið tilboðsstríð þar sem
pókerinn gengur út á að hækka sig, jafna og bjóða betur. Ekki er
enn séð fyrir endann á því hvort fyrirtækið hreppir hnossið.
ÁTÖK SUMARSINS Í
STRAUMI-BURÐARÁSI
Kristinn Björnsson og Magnús Kristinsson.
FV.07.06.indd 34 7.9.2006 12:52:51