Frjáls verslun - 01.07.2006, Blaðsíða 53
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6 53
Framkvæmdastjóri hjá Högum
Eftir Lundúnaferðina var Jóhönnu boðin
fjármálastjórastaða hjá Baugi. „Ég hitti
Jón Ásgeir og Tryggva Jónsson í gesta-
móttöku hótels en þar var svo mikið um
að vera að við fórum á pöbb í nágrenn-
inu. Hávaðinn þar var svo mikill að við
þurftum hálfpartinn að öskra en þeir voru
með á hreinu hvað þeir vildu og réðu mig.
Og ég sé ekki eftir því, það er frábært
að vinna hjá Jóni Ásgeiri og Baugur er
stórkostlegt fyrirtæki.“
Í ágúst 2005 tók Jóhanna við stöðu
framkvæmdastjóra Haga og hún situr í
stjórn fjölmargra fyrirtækja. Hún segist
una hag sínum vel og kveðst loks vera
komin þangað sem hún ætlaði sér þegar
hún var tvítug. „Ég verð alltaf að hafa eitt-
hvað fyrir stafni og get verið mjög ákveðin
ef ég ætla mér eitthvað og ég hef brenn-
andi áhuga á starfinu. Viðskiptalífið hefur
lengi verið karlaklúbbur og ekki margar
konur sem sækjast eftir því að hafa þetta
blóð á tönnunum, en mér hefur aldrei
fundist það há mér að vera kona. Og næst
ætla ég mér að verða forstjóri.“
N Æ R M Y N D A F J Ó H Ö N N U W A A G F J Ö R Ð
félaga sinna í Versló. Við vorum miklar diskó-
gellur á okkar yngri árum og höfðum gaman
af því að dansa og stunduðum Hollywood
grimmt. Hún hefur alltaf haft gaman af
háværri tónlist og eftir að diskóskeiðinu lauk
fór hún að hlusta á þungarokk og var ansi
góð í að sveifla höfðinu. Jóhanna er dálítil
strákastelpa í sér og á meðan ég var að
spekúlera í uppskriftum var hún að skoða
bíla og græjur. Í útskriftarferðinni í Versló
var farið til Flórída. Daginn sem við áttum
að fara heim var rútan sein fyrir og Jóhanna
orðin leið á því að bíða. Hún ákvað að hlaupa
yfir götuna og kíkja á bílasölu sagðist ætla
að vera fljót. Svo líður og bíður og loksins
kemur rútan en Jóhanna lætur ekki sjá sig.
Eftir tíu mínútur er gefist upp á að bíða eftir
henni og rútan leggur af stað. Fararstjórinn
varð alveg spólandi en fór samt yfir á bílasöl-
una að leita að henni en fann hana hvergi.
Við vinkonurnar vorum að sjálfsögðu skelf-
ingu lostnar og fórum að væla og héldum að
það væri búið að ræna henni. Þegar rútan er
rétt komin af stað kemur Jóhanna brunandi
á blárri Corvettu með hárið flagsandi eins
og kvikmyndastjarna og með sölumanninn
sér við hlið. Hún varð svo hrifin af bílnum að
hún gleymdi sér og varð að fá að prófa hann.
Þetta lýsir henni ágætlega því að þegar mikið
er að gera gleymir hún bæði stund og stað.“
,,Límdu þig saman, kerling“
Árni Pétur Jónsson,
forstjóri OgVodafone
og Dagsbrúnar, kynnt-
ist Jóhönnu þegar þau
störfuðu saman hjá
Baugi og síðan Högum.
„Við vorum í stjórn-
unarteymi og unnum
náið saman. Jóhanna
er ákaflega góð sam-
starfsmanneskja og dugleg í vinnu, lífsglöð
og hress. Hún á það jafnframt til að vera
mjög ákveðin og jafnvel hvöss á köflum. Ég
man að einu sinni vorum við að vinna saman
að stóru máli sem margir komu að og hasar í
gangi. Kona á svæðinu æsti sig full mikið og
var að fara á taugum að mati Jóhönnu og hún
hvessti augun á konuna og skellti á hana:
„Límdu þig saman, kerling“. Hópurinn sprakk
náttúrulega úr hlátri og fyrir vikið losnaði um
mikla spennu og fundurinn gat haldið áfram.
Jóhanna er með mikið keppnisskap og leggur
metnað sinn í að standa karlpeningnum
framar og þolir illa að tapa. Einu sinni var
Jóhanna að stýra golfmóti og þurfti að kaupa
verðlaunagripinn. Við karlarnir sáum strax að
það var kona sem prýddi gripinn og stríddum
henni á því að hún hefði verið búin að ákveða
að vinna mótið þegar hún keypti verðlauna-
gripinn.“
Toppaði Tinu Turner
Kristín Pétursdóttir,
aðstoðarforstjóri
Kaupþings í London,
kynntist Jóhönnu
þegar þær voru við
nám í Háskóla Íslands.
„Þrátt fyrir að Jóhanna
sé harðdugleg í við-
skiptum á hún til aðra
hlið sem fáir þekkja.
Hún er nefnilega mikill rokkari og góð söng-
kona. Mér er minnisstætt þegar við vorum í
útskriftarferð á Kanaríeyjum með viðskipta-
og hagfræðinemum. Hópurinn endaði inni á
bar og allt í einu reif hún upp gítar og æddi
upp á svið og hreinlega toppaði Tinu Turner í
tilþrifum. Þetta vakti að vonum mikla lukku.
Hún var elst í hópnum og í huga flestra þessi
pottþétta týpa sem vann mikið með námi og
settleg en þarna birtist allt í einu alveg ný
hlið á henni. Jóhanna er rokkari í eðli sínu
og ég er viss um að þegar hún kemur heim
á kvöldin fer hún úr businessdragtinni og í
rokkaragallann.“
Jóhanna situr í stjórnum
eftirfarandi fyrirtækja:
Fyrir Haga:
Bónus
Hagkaup
10-11
Aðföng
Hýsing
Debenhams
Útilíf
Noron (verslanir: Zara)
Íshöfn (verslanir: Topshop/Topman,
Dorothy Perkins, Evans, Oasis, Coast)
RES (verslanir: Karen Millen, Shoe
Studio, Warehouse, Whistles, All Saints)
Fyrir Baugur Group:
DBH Holding
DBH Stockholm (Debenhams í Svíþjóð)
Trenor (Topshop/Topman í Svíþjóð)
Steinunn Sigurðard. ehf.
Annað:
Sænsk-íslenska verslunarfélagið.
Auður í krafti kvenna.
Kristín Pétursdóttir.
Árni Pétur Jónsson.
FV.07.06.indd 53 7.9.2006 12:54:57