Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.2006, Side 61

Frjáls verslun - 01.07.2006, Side 61
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6 61 fyrirtæki. Innri markaðssetningu er hægt að skilgreina sem markaðsaðgerð innan veggja fyrirtækisins og beint er að innri áheyrendum, þ.e. starfsmönnum fyrirtæk- isins. Hún hefur það að markmiði að auka samskipti og samvinnu milli starfsmanna og sviða. Samkvæmt Grönroos (1984) hefur innri markaðssetning margt sam- eiginlegt með HRM (Human Resource Management) og þeim ferlum þar sem fyr- irtæki þróa sína eigin fyrirtækjamenningu. Innri markaðssetning felur í sér ákveðin verkefni tengd HRM, svo sem ráðningar, þjálfun starfsmanna og hvatningu til árang- urs og vilja til að þjóna fyrirtækinu vel. Það er einkar mikilvægt að skýra og kynna inn- anhúss innri menningu fyrirtækisins svo að unnt sé að þjóna ytri viðskiptavinum betur. Þetta undirstrikar þá staðreynd að þegar starfsmenn trúa á það sem fyrirtækið gerir og stendur fyrir þá virkar það sem hvati fyrir starfsfólk til að leggja harðar að sér við að ná markmiðum fyrirtækisins og hollusta þeirra í garð fyrirtækisins eykst. Til verður ákveðin fyrirtækjamenning þar sem allir starfsmenn fyrirtækisins eru með- vitaðir um stefnu, menningu og markmið fyrirtækisins. Innri markaðssetning er eitt mikilvæg- asta verkfærið þegar kemur að stórtækum breytingum í skipulagi og uppsetningu fyr- irtækja. Einnig má segja að ein mesta breyt- ing sem getur orðið á skipulagi fyrirtækja sé einmitt þegar eitt fyrirtæki kaupir annað og innleiðir sem hluta af þeirri heild. Þegar litið er á málin frá þessu sjónarhorni er rökrétt að áætla að innri markaðssetning eigi virkilega rétt á sér í innleiðingarferli keyptra fyrirtækja og að það sé mjög mik- ilvægt að stjórna, hlúa að og markaðssetja innleiðinguna innanhúss við starfsfólk og stjórnendur fyrirtækisins sem hefur verið keypt til að auka líkurnar á að ferlið verði árangursríkt. Það sem Actavis og önnur fyrirtæki sem standa í fyrirtækjakaupum og inn- leiðingum verða hins vegar að vara sig á er að vanmeta ekki áhrif innleiðingar ann- ars fyrirtækis á menningu og starfshætti síns eigin fyrirtækis. Með því að fyrirtæki A kaupir og innleiðir fyrirtæki B, er ekki verið að búa til fyrirtækið AB eða A+, heldur er í raun verið að búa til fyrirtækið C og því mikilvægt að fyrirtæki A geri sér grein fyrir því að innleiðingarferlið er ekki einhliða, heldur er verið að leiða saman tvo hópa fólks og ferla með það að markmiði að ná því besta fram hjá báðum aðilum. Hvað er nýtt í okkar niðurstöðum? Það hefur ekki áður verið sýnt fram á, að okkur vitandi, að innri markaðssetning geti nýst sem stefnumarkandi stjórntæki við innleiðingu á keyptu fyrirtæki. Einnig færum við rök fyrir því að stjórnendur fyrirtækja ættu að líta svo á að innleið- ingarferli á keyptum fyrirtækjum er í raun rekstrarleg endurskipulagning („organiza- tional change“). Í því felst að það eru ekki einungis róttækar breytingar á rekstri og högun hins keypta fyrirtækis, heldur verða einnig miklar breytingar á því fyrirtæki sem kaupir. Við sjáum og sýnum fram á að innri markaðssetning er lykilþáttur í vel heppn- uðu innleiðingarferli. Góð markaðssetning inn á við skilar sér í metnaðarfyllra starfsfólki þar sem allir stefna að sama markmiði: • Bættri fyrirtækjamenningu og sam- heldnara starfsfólki • Skýrari boðleiðum, og bættum sam- skiptum á milli sviða og deilda • Styttri ákvörðunartíma og straumlínu- lagaðri ferlum, sem sparar tíma og eykur framleiðni. Ef allir innan fyrirtækisins vita hvert markmiðið með innleiðingunni er og hvernig fyrirtækið hefur einsett sér að feta í átt að því markmiði eru miklar líkur á því að væntingar kaupanna gangi eftir. Y F I R T Ö K U R Stefnumiðun við fyrirtækjakaup Alþjóðleg fyrirtækjakaup Stefnumiðun við innleiðingu Stefnumiðuð fyrirtækjakaup og innleiðing Fræðileg greining Þekkingarsköpun Þekkingarmiðlun Þekking í alþjóðlegum fyrirtækjum Lærdómur innan fyrirtækja Stjórnun fyrirtækjakaupa og innleiðinga Stjórnun þekkingar Frammistöðubreytur í innleiðingarferlinu Niðurstöður fræðilegrar greiningar FV.07.06.indd 61 7.9.2006 12:55:23
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.