Frjáls verslun - 01.07.2006, Page 66
66 F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6
Þ
að er víst ekki til neitt eitt
gangverð á sumarbústöðum.
Bústaður er bústaður. Stærð,
gróður, umhverfi, staður, eigna-
lóð, leigulóð, heitt vatn, rafmagn,
heitur pottur, gestahús, veglengd
frá Reykjavík og áfram mætti telja. Það er
margt sem ræður verðinu.
Algengasta verðið núna á notuðum
bústað með heitu og köldu vatni og raf-
magni – og á ágætum stað – mun vera í
kringum 16 til 18 milljónir. Um er að ræða
heilsársbústað sem greiðfært er að á vet-
urna.
Verð bústaða er auðvitað mjög breyti-
legt; en segja má að það sé frá tæpum 10
milljónum upp í um 25 milljónir króna.
Vissulega seljast bústaðir á hærra verði
– en þá eru einhverjar sérstakar aðstæður
í gangi og sterkefnaðir kaupendur komnir
til sögunnar.
Verð á bústöðum hefur tvöfaldast á um
fjórum til fimm árum. Bústaður á leigulóð,
sem seldist á um 7 milljónir króna fyrir
fimm árum, selst núna á um 16 milljónir. En
dokum við; offramboð er af bústöðum og
því reikna flestir með að verð á bústöðum
eigi eftir að lækka og að sölutíminn lengjast
eitthvað.
Er betra að byggja en kaupa? Eru menn
að kaupa staðinn og umhverfið? Það er nú
það. Þumalputtareglan mun vera sú að sá,
sem byggir sér bústað með heitu og köldu
vatni, rafmagni og heitum potti, sé ekki
að bera neitt stórlega úr bítum selji hann
bústaðinn strax aftur fyrir um 15 til 16 millj-
ónir króna.
Miklar tröllasögur hafa gengið um sölu
bústaða við Þingvallavatn og þar er rætt
um að bústaðir á besta stað hafi verið
seldir fyrir marga tugi milljóna. Kaupenda-
hópur að slíkum bústöðum hefur stækkað
eftir því sem auðmönnum landsins hefur
fjölgað.
Offramboð blasir við á markaði sum-
arbústaða. Eitt þúsund nýjar lóðir hafa
verið skipulagðar fyrir austan fjall og talið
er að á milli 300 til 500 notaðir bústaðir séu
til sölu. Raunar eru allir bústaðir til sölu
– fyrir rétt verð.
S U M A R B Ú S T A Ð I R
TEXTI: FRÍÐA BJÖRNSDÓTTIR
MYNDIR: PÁLL KJARTANSSON OG GEIR ÓLAFSSON
Margir telja að það sé að hitna í kolunum á markaði
sumarbústaða. Eftir látlausar verðhækkanir á bústöðum
og fjölda nýbyggðra bústaða blasir við offramboð – og
þar með hætta á verðlækkun. Núna er algengasta verð
á bústað, með heitu vatni og rafmagni, í kringum 15
til 16 milljónir króna á leigulóð. Verðið hefur meira en
tvöfaldast á nokkrum árum.
ÞAÐ ER AÐ HITNA Í KOLUNUM
MARKAÐUR SUMARBÚSTAÐA:
FV.07.06.indd 66 7.9.2006 12:55:46