Frjáls verslun - 01.07.2006, Blaðsíða 69
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6 69
S U M A R B Ú S T A Ð I R
innan við hálfan hektara er seld á um eina
milljón krónur. Svo sjá menn fyrir sér að
lóðir, sem þeir eru með til sölu, séu frá 10-
15 milljón króna virði. Ég veit ekki hvaðan
menn fá þessar tölur.“
Upphafið í Borgarfirði?
Sveinn bendir á að þegar bóndinn í Dag-
verðarnesi, norðan Skorradalsvatns í Borg-
arfirði, seldi jörðina og þar með landið
undir sumarbústöðunum sem þar höfði
risið á leigulandi, hafi hann ekki fengið
nema um 90 milljónir króna. Síðan var
jörðin seld á ný og þá fyrir yfir 300 millj-
ónir. Leigutími landanna sem þarna eru
var víða að renna út og komið að því að
endurnýja leiguna. Í framhaldi af því átti
að þvinga fólk til samninga um kaupverð
sem miðaðist við að nýjasti eigandinn fengi
eitthvað fyrir sína miklu fjárfestingu. „Og
fólkið okkar, sem er búið að vera þarna
í áratugi, á allt í einu að kaupa sig inn í
þetta umhverfi af því að það átti ekki kost
á forkaupsrétti að lóðunum samkvæmt
leigusamningunum. Segja má að Dagverð-
arnessmálið sé upphafið að umræðunni
um þessar gífurlegu hækkanir á löndum og
þær svakalegu tölur sem nú eru nefndar.
Ég get þó ekki séð að menn séu almennt að
ríða feitum hesti frá lóðasölum.“
Þúsund nýjar lóðir
Ótrúlegur fjöldi sumarbústaðalanda hefur
verið skipulagður fyrir austan fjall að und-
anförnu, yfir eitt þúsund lönd á aðeins
þremur stöðum. Á jörðunum Syðri-Brú og
Búrfelli I hefur fyrirtækið Landmenn ehf.
látið skipuleggja land fyrir um 300 sum-
arbústaði. Í upphafi var fyrirhugað að leigja
löndin en í ljós kom að miklu meiri áhugi
var á að kaupa þau svo að ákveðið var að
fara þá leið. Austur í Flóa hefur verið skipu-
lagt land undir 350 búgarða sem verða í
svokallaðri Tjarnarbyggð, skammt vestan
við Selfoss. Í fyrstu tveimur áföngum þessa
byggðakjarna eru um 150 lóðir. Rétt er að
taka fram að þetta verða heilsárshús og
reiknað með að margir hafi þarna fasta
búsetu og þetta verði ekki aðeins frístunda-
hús. Loks hefur Orkuveita Reykjavíkur
skipulagt 670 lóðir fyrir vestan Úlfljótsvatn.
Síðustu fréttir herma að nú sé íhugað að
skera þann lóðafjölda niður í um 30 lóðir,
hvað sem úr því verður. Fyrir utan þessar
lóðir hafa verið auglýstar 30 lóðir hér og
fleiri eða færri þar, bæði í Bláskógabyggð,
Grímsness- og Grafningshreppi og austur
Sumarbústaðir og sumarbústaðalönd
hafa mikið verið í umræðunni að und-
anförnu og hvort tveggja virðist seljast
sem aldrei fyrr. Þegar Fasteignablöð
Morgunblaðsins og Fréttablaðsins voru
skoðuð um miðjan ágúst mátti sjá þar
auglýsta tugi sumarbústaða og á fast-
eignavef Morgunblaðsins voru á sama
tíma skráðar um 300 eignir undir leit-
arorðinu sumarbústaðir. Reyndar mun
eitthvað fleira en hefðbundnir bústaðir
hafa slæðst þar með. Verð á sum-
arbústöðum í fasteignauglýsingunum var
vissulega athyglisvert. Örfáir bústaðir
voru boðnir á innan við tíu milljónir og
aðeins einn á innan við fimm milljónir. Sá
bústaður flokkaðist nú varla lengur með
sumarbústöðum sem margir hverjir eru
orðnir í kringum 100 fermetrar, enda var
hann sagður aðeins 15 fermetrar og boð-
inn á 4,5 milljónir. Þessi upphæð hefði
jafnvel verið nefnd í tengslum við sölu á
40-50 fermetra bústað við Þingvallavatn
fyrir tveimur til þremur árum en heyrir
fortíðinni til. Verðsprengingin er gífurleg,
svo ekki sé meira sagt.
FIMMTÁN FERMETRAR Á 4,5 MILLJÓNIR
Sveinn Guðmundsson, framkvæmdastjóra
Landssambands sumarhúsaeigenda
HRUN GETUR FYLGT OFFJÁRFESTINGU
FV.07.06.indd 69 7.9.2006 12:55:58