Frjáls verslun - 01.07.2006, Blaðsíða 103
F R J Á L S V E R S L U N • 7 . T B L . 2 0 0 6 103
Svo mörg voru þau orð:
„Það er leitun að fyrirtækjum með jafn ólíka fyrirtækjamenningu
og Kaupþing og Singer. Lykilatriðið var að setja inn stjórnendur frá
Kaupþingi. Öðruvísi breytir maður ekki menningunni.“
Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kaupþings í London.
Markaðurinn, 2. ágúst.
„Í Tókýó er mikilvægt að vera alltaf með nafnspjöld á sér. Endurgjaldi
maður ekki spjald með spjaldi er slíkt athæfi álitið bera vott um
dónaskap og áhugaleysi. Í Japan er jafnframt mikilvægt að nafnspjöld
séu ávallt geymd í jakkavasa, alls ekki í buxnavasa!“
Sif Sigmarsdóttir.
Viðskiptablað Morgunblaðsins, 27. júlí.
Þegar Jón Ásbergsson, fram-
kvæmdastjóri Útflutningsráðs
Íslands, er spurður hverjir séu
fegurstu staðirnir á Íslandi
að hans mati nefnir hann
útsýnið sem blasir við ofan
af Vatnsskarði þar sem sést
út á Drangey og Málmey.
„Ekkert tekur þessu fram“.
Hann nefnir annan stað - í
sumar fór hann í Múlasveit í
Barðastrandarsýslu og þar er
útsýni út á Breiðafjarðareyjar og
Snæfellsjökull sést í suðvestri.
Það þykir honum líka einstaklega
fallegt.
Aðspurður hvað fallegir staðir
þurfa að hafa nefnir Jón bláa og
græna litinn; himinn, vatn og
gróður. „Það þarf að vera iðandi
græn slikja yfir landinu og það
þarf líka að vera víðsýni.“
Jón á tjaldvagn og fer með
hann á „leynistaðina“ sína á
hverju sumri. „Þessir staðir eru
utan alfaraleiðar, þar er útsýni,
fátt eða ekkert annað fólk og ró
og næði. Þar get ég kúplað mig
frá umhverfinu. Ég er duglegur að
ferðast innanlands og finn ekki
þörf fyrir að fara til útlanda á
sumrin.“ Þess má geta að vinnu
sinnar vegna fer Jón um átta til
tíu sinnum til útlanda á hverju
ári. „Ég þoli illa hita og hef ekki
gaman af sól.“
Halldór Harðarson, forstöðumaður markaðsdeildar Icelandair,
er sælkeri mánaðarins.
Sælkeri mánaðarins:
AÐ ÍTÖLSKUM HÆTTI
Halldór Harðarson, for-
stöðumaður markaðsdeildar
Icelandair, hefur gaman af að
elda og prófa eitthvað nýtt.
Hann og eiginkonan bjóða
gestum í mat nærri því í hverri
viku. „Þeir þurfa oft að þola
hinar og þessar tilraunir í mat-
argerðinni. Uppskriftin hér að
neðan er hins vegar frekar
einföld uppskrift að ítölskum
kjúklingarétti sem við hjónin
eldum stundum við fínar und-
irtektir og því lítill „séns“
tekinn með hann. Hún á upp-
runa á ítölskum veitingastað
á Charlotte Street í London
sem heitir Passione og er í
miklu uppáhaldi. Rétturinn er
„kjúklingur fylltur með ferskum
kryddjurtum með balsamico
sósu“.“
Byrjað er á að taka um
100 g af mjúku smjöri (miðað
við 4 kjúklingabringur) og
blandað við það 4-5 mörðum
hvítlauksrifum, einum rauðum
chilli (fínt hökkuðum), lúku af
myntu og lúku af steinselju
(eða aðrar kryddjurtir sem
manni finnst góðar); allt
fínhakkað. Þessu kryddsmjöri
er svo rúllað upp og það geymt
í kæli. Þá eru teknar úrbein-
aðar kjúklingabringur (ein á
mann), skinninu flett af og
skornir „vasar“ í kjötið sem
kryddsmjörið er sett í. Skinnið
er því næst vafið utan um
aftur og fest tryggilega með
tannstönglum eða matarþráð
til að smjörið leki ekki úr.
Kjúklingabringurnar eru svo
steiktar í mjög heitri ólífuolíu
þar til þær eru brúnaðar og
þá er skellt um 150 ml af
rauðvínsediki, 150 ml af bal-
samico ediki og um 250-300
ml af rauðvíni út í og kjúkling-
urinn látinn sjóða í um 20
mínútur í þessum legi áður en
hann er tekinn upp úr. Þá er
lögurinn látinn sjóða áfram og
hrært í honum með písk þar til
hann þykknar og svo saltaður
og pipraður. Kjúklingurinn er
því næst skorinn í sneiðar og
sósunni hellt yfir.
Þeim hjónum finnst gott að
bera fram með þessu ofnbakað
grænmeti (kartöflur, gulrætur
og aspas).
Jón Ásbergsson í Múlasveit í Austur-Barðastrandarsýslu.
Fegurstu staðirnir:
HIMINN, VATN OG GRÓÐUR
FV.07.06.indd 103 7.9.2006 13:01:24