Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 53
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6 53
Á
rni Oddur Þórðarson á ekki langt
að sækja áhuga sinn á fjármálamörk-
uðum, en árið 2000 stofnaði hann
fjárfestingafélagið Eyri ásamt föður
sínum, Þórði Magnússyni. Í dag er Árni fram-
kvæmdastjóri félagsins, auk þess sem hann er
stjórnarformaður Marels. Hann ræðir hér um
félögin, stefnur þeirra og markaði, bæði fyrr og
nú, framtíðaráformin og lífið utan vinnunnar.
Árni Oddur Þórðarson hefur víðtæka reynslu
á fjármálamörkuðum og starfaði um tíma sem
framkvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá Bún-
aðarbanka Íslands. Frá því að hann stofnaði Eyri
fyrir sex árum hefur félagið vaxið ört í krafti
góðra fjárfestinga, meðal annars í stórfyrirtækj-
unum Össuri og Marel sem hvort um sig eru
talin mjög svo framarlega á sínu sviði.
Höfuðstöðvar félagsins á Skólavörðustígnum
eru hógværari en margur kynni að búast við af
fyrirtæki með heildarfjárfestingar upp á um þrjú
hundruð milljón evrur. Eftir að hafa tölt upp
tvo stiga í þessu snyrtilega, gula húsi er hins
vegar gengið inn í glæsilegt skrifstofuumhverfi
þar sem Árni býður blaðamann velkominn.
Ef við byrjum aðeins á Marel, þá hefur
stækkun fyrirtækisins undanfarið vakið
töluverða athygli, ekki síst kaupin á danska ris-
anum Scanvægt fyrir um tíu milljarða króna.
Hver er stefnan og hvert er meginmarkmiðið að
baki fjárfestingum fyrirtækisins?
BURÐIR TIL AÐ
TAKA FORYSTU
Á R N I O D D U R Í E Y R I
TEXTI: GUNNAR HRAFN JÓNSSON • MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON