Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 79
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6 79
aðalfundur EUMA og ráðstefna og þá er alltaf ákveðið þema, eitthvað
sem félagsmenn telja sig hafa gagn af. Síðastliðið haust var t.d. fjallað
um það hversu hratt meðalaldur vinnuafls í Evrópu hækkar og nú í
september sl. var yfirskrift ráðstefnunnar: Félagsleg ábyrgð fyrirtækja
(CSR): Hvernig geta fyrirtæki og stofnanir haft áhrif á þjóðfélag
framtíðarinnar. Á vorin eru svokallaðir fræðsludagar um leið og stjórn-
arfundir eru haldnir og næsta vor verður tekið fyrir efnið: „How to
improve creativity and innovation.“
„Það er sem sagt alltaf verið að taka á málum sem nýtast beint í
daglegu starfi félagsmanna,“ segir Björg. „Ég tel að þessi samtök hafi
gert ótrúlega mörgum gott. Á ráðstefnurnar og fundina koma oft sömu
konurnar ár eftir ár, konur sem fá jafnvel engan stuðning heiman að
eða þora ekki að láta vita af því að þær tilheyri samtökunum af því að
í heimalöndum þeirra eru konur einfaldlega lítils metnar. Við erum
heppin hér á landi að búa við svo mikið jafnrétti sem raun ber vitni.
Ég finn það mjög sterkt í mínu starfi að vera metin til jafns við aðra og
er einfaldlega tekin með í stjórnendateymið.“
Fjölbreytt starfssvið
Starfssviðið er fjölbreytt og starfsheitin misjöfn meðal félaga; ritari,
einkaritari, persónulegur aðstoðarmaður, deildarstjóri, svo að eitthvað
sé nefnt.
„Starfsheitið skiptir ekki
mestu máli, verkefni okkar
er fyrst og síðast að halda
utan um það sem yfirmenn
okkar eru að gera.“
Björg Jóhannesdóttir, nýkjörinn gjaldkeri Evrópusamtaka aðstoðar-
manna yfirmanna, EUMA - European Management Assistants.
„Starfsheitið skiptir ekki mestu máli, verkefni okkar er fyrst og
síðast að halda utan um það sem yfirmenn okkar eru að gera. Það
getur falist í fjölmörgu eins og því að sjá um móttökur, skipuleggja
fundi og setja þá upp, fara með gesti í ferðalög, kaupa gjafir og
fleira. Fyrst og síðast er starf okkar fólgið í því að vera vakandi
gagnvart því sem þarf að gera hverju sinni og sinna því. Það er
nauðsynlegt að hafa gott vald á mannlegum samskiptum, hafa
tilfinningu fyrir ástandinu, hafa skipulagsgáfu í lagi og kunna að
halda utan um skrár og skýrslur. Oft á tíðum sjáum við algerlega
um að skipuleggja vinnutíma yfirmanns okkar og það krefst góðrar
yfirsýnar. Eitt af því sem samtökin nýtast ákaflega vel til, er að við
getum alltaf leitað eftir aðstoð eða upplýsingum frá félögum, bæði
hér á landi og erlendis. Ýmislegt getur komið upp þannig að okkur
vanti upplýsingar í skyndi og þá kemur sér vel að geta leitað víða
til kunnugra. Stundum þarf að panta hótel á skrítnum stöðum,
finna einhverjar upplýsingar um fyrirlesara eða erlenda gesti og
fleira slíkt.“
Hver er Björg?
Björg Jóhannesdóttir er fædd í Reykjavík en ólst upp í Keflavík.
Hún er stúdent úr Menntaskólanum við Hamrahlíð og fjögurra
barna móðir auk þess sem hún á eitt barnabarn.
„Ég stundaði myndlistarnám meðan ég var heima við barna-
uppeldið en 1994 fór ég að vinna við textavarp Sjónvarpsins og var
þar í ein fimm ár,“ segir hún. „Þá fór ég til Bandaríkjanna og var
þar í skamman tíma en kom aftur um áramótin 2000 og fór þá að
vinna hjá Urði, Verðandi, Skuld. Þegar Gunnlaugur Sævar Gunn-
laugsson, minn yfirmaður, fór þaðan til TM árið 2004, bauð hann
mér að koma með og ég þáði það. Hér er ég nú ritari á rekstrarsviði
TM og sinni þar ýmsum verkefnum auk þess að vera persónulegur
aðstoðarmaður Gunnlaugs Sævars. Annars hefur starf mitt breyst
talsvert upp á síðkastið og ég er farin að nota æ meiri tíma í að
vinna við handbækur og leiðbeiningar af ýmsu tagi.“
Að láta drauminn rætast
Menntun er Björgu ofarlega í huga og hún segist alla tíð hafa
sótt námskeið af miklum áhuga. „Ég lít á starf mitt hjá EUMA
sem nám. Mig hefur alltaf langað til að læra meira og þegar þetta
tækifæri gafst til að sinna yfirgripsmiklu ábyrgðarstarfi fannst mér
það alveg kjörið menntunartækifæri. Ég vissi að ég hefði tíma og
orku í það og ákvað að nú væri rétti tíminn til þess að láta draum-
inn rætast.“