Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 84
84 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6
A
tlantshafsbandalagið hefur staðið á
krossgötum frá lokum kalda stríðsins.
Samtökin hafa þurft að undirgangast
verulegar breytingar í kjölfar þess að
Sovétríkin, sem lengi voru helsta réttlætingin
fyrir tilvist bandalagsins, lögðust af. Blaðamanni
Frjálsrar verslunar var nýlega boðið í kynnisferð til
höfuðstöðva Atlantshafsbandalagsins í Brussel og
nýtti hann tækifærið til að skoða innviði alþjóða-
samtaka í hamskiptum.
Það ætti ekki að koma neinum á óvart að
mæta vopnuðum vörðum og mikilli öryggisgæslu
í námunda við bækistöðvar öflugasta hernaðar-
bandalags heims. Þar sem rútan sem flutti íslenska
blaðamannahópinn var á vegum NATO, gekk
okkur þó nokkuð greiðlega að komast inn – en
samt þurftu sumir að skilja eftir farsíma og upp-
tökutæki. Hópurinn þurfti líka snemma að venj-
ast því að hver einasti fulltrúi NATO, sem rætt
var við, skyldi, hefðum samkvæmt og til að gæta
öryggis þeirra, vera nafnlaus.
Fyrir innan hliðið var stemmningin þó fremur
afslöppuð og hópurinn var heppinn með leið-
sögufólk og fyrirlesara sem reyndu eftir fremsta
megni að svara öllum spurningum sem lagðar voru
fram. Spurningatímarnir voru eðlilega mest fræð-
andi þar sem þá var hægt að koma að einstökum
hagsmunamálum Íslands. Allir sem við ræddum
við voru t.d. meðvitaðir um framlag landsins til
Atlantshafsbandalagsins og þá spennu sem mynd-
aðist á milli Íslands og Bandaríkjanna í nýlegum
varnarviðræðum.
Íslendingar fórnarlömb eigin velgengni
Ónefndur bandarískur sérfræðingur í hryðjuverka-
málum vildi þakka Íslendingum sérstaklega fyrir
það sem hann kallaði „ómetanlega sérfræðiaðstoð“
við rekstur og viðhald flugvalla.
„Íslendingarnir stóðu sig hreint út sagt frábær-
lega við að reka flugvöllinn í Pristina í Kosovo. Þið
hafið auðvitað engan her svo það má segja að þið
hafið orðið fórnarlömb eigin velgengni í Pristina.
SVIGNAR NATO
EÐA BROTNAR?
HEIMSÓKN TIL BÆKISTÖÐVA ATLANTSHAFSBANDALAGSINS Í BRUSSEL
TEXTI: GUNNAR HRAFN
JÓNSSON
MYNDIR: Úr safni NATO
H Ö F U Ð S T Ö Ð V A R N A T O Í B R U S S E L
„Það er úrelt hugsun að vilja halda í sýnilegar en tilgangslausar
varnir. Í dag er óvinurinn ekki að undirbúa flugskeytasendingu,
heldur mætir hann með ferðatösku fulla af sprengiefni.“
Awacs þota.