Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 44
44 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6
Þ Ó R Ð U R B I R G I R B O G A S O N Í N Æ R M Y N D
Sigurður Bjarnason, handboltakappi
og tölvunarfræðingur, kynntist Þórði
fyrst í gegnum fótbolta. „Við spil-
uðum oft á móti hvor öðrum í yngri
flokkunum en ég kynntist honum fyrir
alvöru í gegnum konuna mína sem
er góð vinkona konunnar hans. Í dag
erum við hluti af stórum vinahópi sem
er samsettur af gömlum vinkonum
úr Árbænum og mökum þeirra sem
hittast reglulega og gera eitthvað
skemmtilegt saman, elda eða fara í
ferðalög.
Þórður er afskaplega skemmtilegur
strákur, með ríka kímnigáfu og á það
til að gera fólki grikk og koma því í
óþægilegar aðstæður með stríðni. Ég
ráðlegg til dæmis engum að skilja
farsímann eftir á glámbekk þar sem
Þórður kemst í hann. Hann á það
nefnilega til að taka símann og senda
persónuleg eða neyðarleg skilaboð
fyrir þína hönd á alla tengiliðina.
Þórður er opinn fyrir öllu og sem betur
fer þolir hann vel að honum sé strítt á
móti og tekur því ekki illa.
Þórður er mjög opinskár og veit
nákvæmlega hvað hann vill. Einu sinn
vorum við staddir saman ásamt fleiri
vinum á veitingastað úti í London
þegar kvisast út að eðlisfræðingurinn
Stephen W. Hawkins, sem skrifaði
bókina Saga tímans, sé á staðnum.
Eftir svolitla stund fer Hawkins fram
hjá borðinu okkar í hjólastólnum og
fram í anddyri. Við Þórður brugðum
okkur á salernið um svipað leyti, og
þegar við komum út aftur er Hawkins
enn í anddyrinu. Þórður gerði sér lítið
fyrir og gengur til hans og hikar ekki
að spjalla við hann um tilgang lífs-
ins og eðli alheimsins þrátt fyrir að
Hawkins þurfi að tjá sig með hjálp
tölvu og raddgervils. Mér þykir þetta
gott dæmi um það hvað Þórður er
opinn og ófeiminn við að tala við fólk
og gera það sem hann ætlar sér.“
S
A
G
T
U
M
Þ
Ó
R
Ð
B
IR
G
I
B
O
G
A
S
O
N
:
Opinskár og stríðinn
Sigurður Bjarnason.
Þórður og Tinna Björk með börnin, þau Aron Baldvin, Dörru Sóllilju og Stíg.