Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 21
F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6 21
FORSÍÐUGREIN
Verslunin mun einnig taka miklum breytingum, hún mun stækka
umtalsvert og allt umhverfi verða þægilegra fyrir viðskiptavini.
Bláa Lónið er nú meðal þekktustu heilsulinda heims og geta má
þess að lesendur hins þekkta ferðatímarits Conde Nast Traveller
völdu á sl. ári Bláa Lónið sem bestu „Medical og Thermal“ heilsu-
lind heims. „Gestir okkar koma hingað til að endurnýja kraftana
og njóta þeirrar orku sem hér er að finna. Starfsmenn okkar verða
einnig í auknum mæli varir við að erlendir gesti koma hér oftar en
einu sinni meðan á dvöl þeirra á Íslandi stendur. Á undanförnum
árum höfum við með markvissum hætti þróað þjónustu okkar og
bjóðum nú spa-þjónustu sem þekkist hvergi annars staðar, t.a.m.
höfum við þróað spa-meðferðir sem fara fram í Lóninu og byggja á
einstökum virkum efnum jarðsjávarins.“
Grímur segir einnig ánægjulegt að finna aukinn áhuga Íslendinga
á Bláa Lóninu. „Fólk er búið að átta sig á muninum á hefðbundnum
sundlaugum og Bláa Lóninu sem er heilsulind á heimsmælikvarða.
„Spa“ á auknum vinsældum að fagna í heiminum og Ísland er engin
undantekning.“
Mikill metnaður
Er þetta þá kannski bara byrjunin á víðtækri heilsulindarparadís á
heimsmælikvarða?
„Metnaður okkar er mjög mikill og við munum halda áfram á
sömu braut. Það eru jákvæð teikn á lofti um að erlendum gestum
muni fjölga enn á næstu árum. Við munum áfram leggja áherslu á
að veita gestum upplifun sem hæfir heilsulind á heimsmælikvarða.
Frekari útvíkkun starfseminnar, bæði með útflutningi Blue Lagoon
húðvaranna og að veita meðferðir okkar víðar en í Bláa Lóninu, gerir
fólki um allan heim kleift að njóta þess sem vörumerkið Blue Lagoon
Iceland stendur fyrir,“ segir Grímur.
Einstakt á heimsvísu
„Bláa Lónið er einstakt á heimsvísu og þau hugrif, sem fólk verður fyrir
þar, eru slík að þegar það kemur heim til sín segir það öðrum frá þeim
og það er dýrmætasta markaðssetningin fyrir okkur. Við höfum fengið
meira en tvær milljónir gesta í Bláa Lónið síðan við opnuðum heilsu-
lindina 1999 og stærstur hluti þeirra eru útlendingar. Góð umsögn
þessa fólks hefur aukið hróður og orðspor staðarins um allan heim. Það
er sterkasta markaðssetning sem hægt er að fá,“ segir Grímur.
Hann bætir við að óhætt sé að segja að Bláa Lónið sé bæði
einn þekktasti og táknrænasti staður Íslands. ,,Staðurinn gegnir
veigamiklu hlutverki í markaðssetningu Íslands sem ferðamanna-
lands. Við höfum t.a.m. fagnað mjög góðu samstarfi við Icelandair
sem hefur notað Bláa Lónið í markaðssetningu sinni sem eitt helsta
aðdráttarafl landsins. Almannatengsl (PR) eru sá þáttur sem við
höfum nýtt okkur mjög mikið í kynningarstarfinu. Árlega tökum
við á móti hátt í 700 fulltrúum erlendra fjölmiðla og flestir þekktustu
fjölmiðlar heims hafa fjallað um Bláa Lónið,“ segir hann.
Áhugaverð saga
Saga Bláa Lónsins er áhugaverð, en lónið sjálft myndaðist upp-
haflega í kjölfar orkuvinnslu Hitaveitu Suðurnesja á Svartsengi við
Grindavík. Upp úr 1980 hóf fólk að baða sig í þessu fallega bláa lóni
sem hafði myndast á miðri hraunbreiðunni. Einstaklingar með húð-
sjúkdóminn psoriasis voru meðal þeirra fyrstu til að stunda þar böð
og lækningamáttur jarðsjávarins við psoriasis kom því snemma í ljós.
„Áhersla er lögð á að skapa
þægilega og rúmgóða aðstöðu fyrir
gesti. Auk rúmgóðrar almennrar
búnings- og baðaðstöðu munum við
einnig bjóða gestum okkar aðgang
að VIP einkaklefum.“