Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 32
32 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6
D A G B Ó K I N
29. október
EKSTRABLAÐIÐ
KALLAR ÍSLENSKA
ATHAFNAMENN
„BÓFA“
Um fátt hefur verið meira
rætt en ótrúleg skrif danska
Ekstrablaðsins um íslenska
athafnamenn að undanförnu.
Þetta hefur verið umsvifamikill
greinaflokkur af hálfu blaðsins
og hefur hann gengið út á að
kalla íslenska athafnamenn
„bófa“ og hafa allir helstu for-
kólfarnir í íslensku útrásinni
fengið sinn skammt.
Meginlínan í skrifunum hefur
verið sú að íslensku fjárfest-
arnir séu óheiðarlegir og hafi
komist í álnir á vafasaman
hátt.
Langflestir íslensku fjár-
festanna, sem um hefur verið
fjallað í þessum ótrúlega
greinaflokki, hafa ekki séð
ástæðu til að svara skrifunum
– ekki talið þau svara verð.
Áður en Ekstrablaðið hóf
þessa umfjöllun sendi það frá
sér tilkynningu um að von væri
á umfangsmiklum skrifum um
„íslenska kraftaverkið“ og
hvaðan peningarnir koma.
,,Hefur þú átt viðskipti við
Sterling, Merlin eða Magasin?
Og viltu vita hvert pening-
arnir þínir fóru? Eða hefurðu
lesið Nyhedsavisen nýlega og
furðað þig á því hvaðan pen-
ingarnir koma? Kauptu þá
Ekstrablaðið,“ sagði í tilkynn-
ingu vegna greinaskrifanna.
„Við höfum komist til botns
í hinu íslenska „kraftaverki“
og fylgt peningunum frá
Rússlandi til Lúxemborgar, til
Karíbahafsins, til Íslands, til
Danmerkur. Og það er nú ekki
falleg sjón. Við munum sýna
þér viðskiptalíkan með bófum,
háttsettum stjórnmálamönnum
og tugmilljörðum króna,“ sagði
ennfremur í tilkynningunni.
Þá hampaði blaðið því í
umræddri fréttatilkynningu að
dönsku blaðamennirnir tveir
sem stóðu að umfjölluninni
hefðu báðir unnið til „danskra
blaðamannaverðlauna“ en
einnig var boðað að rússneskur
fréttaritari kæmi að skrifunum.
Ekstrablaðið hefur farið ham-
förum gegn íslenskum athafna-
mönnum að undanförnu.
30. október
Skrif Ekstra-
blaðsins fáránleg
Frjáls verslun mun hér aðeins
stikla á nokkrum fréttum
Ekstrablaðsins um íslensku fjár-
festana. Við skulum hér líta á
„fyrstu viðbrögðin“ frá Íslandi
þegar Morgunblaðið og RÚV
spurðu Sigurð Einarsson um
skrif Ekstrablaðsins.
Sigurður svaraði því til að
skrif Ekstrablaðsins um fyrir-
tækið væru ósönn og í raun
fáránleg. Hann bætti því við
að Kaupþing banki væri orðinn
ýmsu vanur í erlendum fjöl-
miðlum en skrif Ekstrablaðsins
tækju öllu öðru fram í þeim
efnum.
Ekstrablaðið hélt því m.a.
fram að Íslendingar tækju út
fé í fyrirtækjum sem þeir eigi
í Danmörku og kæmu því til
Lúxemborgar og þaðan áfram
án þess að greiða skatt í
Danmörku.
Sigurður sagði við
Morgunblaðið að Kaupþing
banki hefði aldrei tekið neitt í
arð úr danska bankanum FIH
þrátt fyrir góðan hagnað þess
banka.
Þá segir Sigurður að þessar
ásakanir séu út í hött þar sem
enginn munur sé á því hvort
menn greiði arð frá dönskum
fyrirtækjum t.d. til Svíþjóðar,
Lúxemborgar eða þá Íslands.
31. október
Danski lögfræð-
ingurinn Claus
Abildström
Í umfjöllun sinni um íslensku
fjárfestana fjallaði Ekstrablaðið
að þessu sinni sérstaklega um
danska lögfræðinginn Claus
Abildström sem starfað hefur
náið með Baugi og komið
að fjárfestingu fyrirtækisins í
Danmörku.
Ekstrablaðið er ekkert að
skafa utan af því og bendlar
Abildström þennan við peninga-
þvætti. Lögfræðingurinn er með-
eigandi í lögfræðistofunni J. P.
Galmond. Jeffrey Galmond hefur
einnig starfað með Íslendingum
HART SÓTT AÐ ÍSLENSKUM ATHAFNAMÖNNUM Í DÖNSKU PRESSUNNI:
Sigurður Einarsson, starfandi stjórnarformaður Kaupþings banka.