Frjáls verslun - 01.09.2006, Síða 6
6 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6
út af tekjum, m.a. við „að pakka inn dílum“. Skuldir þjóð-
arinnar hafa aukist vegna þess að erlendu bankarnir hafa ausið
í okkur fé.
ÞAÐ ÞARF EKKI annað en að benda á nýlegt lánshæfis-
mat Fitch Ratings á ríkissjóði þar sem segir að Ísland sé skuld-
ugast af öllum löndum sem Fitch meti til lánshæfis. Bent er
á að erlendar skuldir hafi numið 357% af erlendum tekjum
þjóðarbúsins árið 2005 og að það hái Íslendingum hvað þeir
séu orðnir skuldugir.
ORÐ FITCH RATINGS um að við séum skuldugasta
þjóð, sem fyrirtækið meti til lánshæfis, er engin ný bóla. Þetta
hefur verið á allra vitorði – líka Dana. Fyrr á árinu gekk öll
umræðan í Danmörku einmitt út á það
hvernig okkur tækist að endurfjármagna
skammtímalán okkur. Hvar voru blaðamenn
Ekstrablaðsins þá?
VAR ÞAÐ EKKI einmitt Den Danske
Bank sem snemma á árinu spáði ragna-
rökum í íslensku efnahagslífi og hafði
miklar áhyggjur af skuldum þjóðarinnar og
viðskiptahalla? Var það ekki einmitt Den
Danske Bank sem spáði því að íslensku
bankarnir gætu lent í vandræðum með end-
urfjármögnun á skammtímalánum? Núna
hafa íslensku bankarnir leyst það verkefni
þótt lánsféð sé dýrara en áður.
ERLENDU BANKARNIR hafa treyst íslenskum fjár-
festum og íslenskum bönkum. Hvers vegna ættu virtir banka-
stjórar erlendis – með allt sérfræðingastóðið í kringum sig – að
vera svona óttalega vitlausir að lána Íslendingum?
ÞAÐ ER VISSULEGA ágæt blaðamennska að „þora að
spyrja spurninga“. Það er hins vegar enn betri blaðamennska
að svara ekki eigin spurningum með einhverju rugli og get-
gátum – og vísa til þess að engin svör sé að fá.
EINHVER ORÐAÐI ÞAÐ svo að blaðamenn hefðu vinnu
af því að „láta ljúga í sig“ og mættu því ekki vera of trúgjarnir.
En til hvers eru blaðamenn að hringja í viðmælendur sína ef
þeir trúa ekki orði af þeim svörum sem þeir fá vegna þess að
þau „hljóma ekki nægilega vel“.
DÖNSK KÍMNI HEFUR þótt góð. En danskir blaða-
menn – sem allt þykjast vita um blaðamennsku – eru ekki
fyndnir; þeir eru hlægilegir.
Jón G. Hauksson
„VERTU ORÐVAR!“ Þannig var fyrirsögn á net-
pósti sem ég fékk nýlega frá lesanda Frjálsrar versl-
unar sem sagðist sammála mér að mestu leyti um
að skrif Ekstrablaðsins um íslenska athafnamenn væri óvönduð
blaðamennska. Hann hafði lesið pistil eftir mig um þetta mál á
vefsíðunni heimur.is. Hann bað mig samt um að „vera orðvar“
og taka ekki of afdráttarlausa afstöðu gegn dönsku blaðamönn-
unum þar sem Danirnir væru að spyrja spurninga sem við
Íslendingar hefðum ekki „viljað eða þorað að spyrja“.
HANN HÉLT ÞVÍ líka fram að það væri rétt hjá Dönunum
að svörin, sem hingað til hefðu verið gefin, væru ófullnægjandi
– og ergó: Þegar svörin væru ófullnægjandi, eða snúið væri út
úr, væri ekkert að því að spyrja: „Hvað er
verið að fela?“ Hann bætti síðan við að það
væri alla vega ágæt blaðamennska að þora að
spyrja spurninga.
ÉG STALDRAÐI VIÐ þennan póst
og velti honum fyrir mér. Ég hafði sagt
í pistlinum að skrif Ekstrablaðsins væru
óskiljanleg, þau væru uppspuni og að um
„einbeittan brotavilja“ væri að ræða, eins
og lögfræðingar orða það. En sem betur fer
tækju fáir mark á Ekstrablaðinu – þótt alltaf
væru einhverjir tilbúnir að trúa því sem
„hljómaði vel“, eða veltu því fyrir sér hvort
ekki væri eitthvað til í þessum skrifum.
ÉG ÁKVAÐ AÐ svara þessum pósti og sagðist sammála
honum í því að það væri gott að vera orðvar – og spurði hann
að því hvort hann hefði sagt blaðamönnum Ekstrablaðsins frá
því.
ÍSLENDINGAR HAFA undanfarin ár spurt sig að því á
hverjum einasta degi hvernig útrásin sé fjármögnuð og hvernig
hægt sé að kaupa og kaupa fyrirtæki án þess að þurfa nánast
nokkurn tíma að losa eignir á móti.
EN HVAÐAN KOMA peningarnir? Með lánum og eigin
fé – sem að vísu hefur byggst hratt upp á allra síðustu árum
vegna verðhækkana á hlutabréfum. Bankarnir hafa tekið erlend
lán. Og íslensku fjárfestarnir hafa tekið lán, bæði hér heima
og milliliðalaust erlendis. Þegar íslenskir fjárfestar hafa keypt
erlend stórfyrirtæki hafa heilu staflarnir af fréttatilkynningum
farið í að útskýra hvaða bankar fjármagni kaupin.
ÍSLENDINGAR ERU NÚNA með allra skuldugustu
þjóðum – á hvern íbúa. Bankarnir hafa stækkað og bólgnað
ÁRÁS EKSTRABLAÐSINS:
Hafa Íslendingar ekki þorað?
RITSTJÓRNARGREIN
Þyrping hf, Kringlunni 4–12, 103 Reykjavík
594 4200
594 4201
thyrping@thyrping.is
www.thyrping.is
sími
fax
netfang
vefslóð
þróunarfélag property development
Þyrping reisir sérhannað 12000m² skrifstofuhúsnæði að Borgartúni 26.
Bílastæði verða annars vegar í bílageymslu undir húsinu fyrir um 200 bíla
auk bílastæða við bygginguna.
Húsnæðið skiptist í tvo misháa hluta, 8 hæðir vestan megin og 5 hæðir
austan megin. Á jarðhæð verður verslun og þjónusta en á öðrum hæðum
hússins er gert ráð fyrir skrifstofu- og þjónustustarfsemi. Húsnæðið verður
sérhannað út frá þörfum framsækinna fyrirtækja með frábæru útsýni.
Húsnæðið afhendist tilbúið til innréttinga vorið 2007.
Á vefsíðu Þyrpingar, www.thyrping.is, er að finna frekari upplýsingar auk
ítarlegra teikninga af húsinu í heild og einnig hverri hæð fyrir sig.
Frekari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Þyrpingar í síma: 594 4200.
Til leigu:
Glæsilegt skrifstofuhúsnæði
í hjarta helsta fjármálahverfis
Reykjavíkur
norður
vestur
suður
austur
hz
et
a
eh
f
Þegar íslenskir
fjárfestar hafa keypt
erlend stórfyrirtæki
hafa heilu staflarnir
af fréttatilkynningum
farið í að útskýra
hvaða bankar
fjármagni kaupin.