Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 67

Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 67
„Í Bandaríkjunum er gríðarlega þróað hagkerfi og viðskipti á milli Íslands og Bandaríkjanna eru mjög þróuð,“ segir Magnús Bjarnason. AMERÍSK-ÍSLENSKA VIÐSKIPTARÁÐIÐ Magnús Bjarnason, sem er formaður Amerísk-íslenska viðskipta-ráðsins, er framkvæmdastjóri hjá Glitni en þar ber hann ábyrgð á viðskiptum bankans í Norður-Ameríku og Kína. Þegar Magnús er spurður hverju hann persónulega vilji koma til leiðar segist hann vilja sjá áframhald á þeirri þróun að efnilegt íslenskt fólk fari til Bandaríkjanna í háskóla, vinni þar og kynnist bandarísku samfélagi með þeim hætti. „Að sama skapi myndi ég vilja sjá banda- ríska háskólanema og aðra eiga góðan aðgang að því að koma hingað til Íslands og starfa hér. Ég held að þetta sé lykillinn að góðum sam- skiptum okkar við Bandaríkin.“ Magnús segir að markmið Amerísk-íslenska viðskiptaráðsins sé að búa til umhverfi sem sé þægilegt fyrir alla til þess að stunda viðskipti milli Íslands og Bandaríkjanna og auka samskipti á milli landanna. „Við getum tekið sem dæmi að þeir sem flytja inn vörur frá Banda- ríkjunum gætu lent í vandræðum. Fyrir nokkrum árum breyttust til dæmis allar reglur á Íslandi um merkingar á vörum og þeir sem fluttu inn vörur frá Bandaríkjunum þurftu að sérmerkja vörurnar. Þetta er dæmi um hagsmunamál sem menn geta tekið upp á svona vettvangi. Mönnum getur líka fundist að einhverjir tollar eða gjöld séu óhagstæð og reynt þá að hafa áhrif á stjórnvöld til þess að slík gjöld verði felld niður. Við reynum alltaf að hjálpa til við að laga umhverfið sem við vinnum í með því að hafa áhrif á bandarísk og íslensk stjórnvöld.“ Bandarísk fyrirtæki alþjóðleg Amerísk-íslenska viðskiptaráðið hefur komið að því með Íslensk- ameríska viðskiptaráðinu í Bandaríkjunum að halda ráðstefnur bæði hér á landi og í Bandaríkjunum. „Sem dæmi má nefna ráðstefnu í ársbyrjun þar sem fjallað var um viðskipti Íslands og Norður-Amer- íku og hvernig þau eru að þróast. Við tókum líka þátt í því með Við- skiptaráði og öðrum aðilum að fá bandarískan hagfræðing, Frederick Mishkin, til þess að gera hlutlausa úttekt á íslenska efnahagskerfinu þegar mörg spjót stóðu á Íslandi. Þetta ráð hefur staðið fyrir ýmsum atburðum í gegnum tíðina og reynt að vera þessi hlutlausi aðili sem skapar vettvang þar sem menn geta rætt ýmsa hluti.“ Magnús segir að viðskiptin milli Íslands og Bandaríkjanna séu miklu umfangsmeiri en fólk gerir sér grein fyrir. „Ef horft er á ,,hagstofutölurnar“ sést að útflutningur okkar til Bandaríkjanna og innflutningur þaðan sveiflast á bilinu 10-15% af heildarút- og inn- flutningi okkar. Hins vegar eru hér vörumerki eins og Coca Cola og Pepsi Cola, fyrirtæki eins og Alcoa sem er að byggja á Reyð- arfirði og vörumerki eins og IBM og Intel. Þetta eru allt bandarísk vörumerki en bandarísk fyrirtæki eru mjög alþjóðleg. Coca Cola er til dæmis framleitt á Íslandi og er í rauninni íslensk vara en bandarískt vörumerki. Það sama er að segja um ýmsa matsölustaði hér á landi. Maður sér ekkert um þetta í tölum yfir inn- og útflutning. Stærstu erlendu fjárfestingarnar á Íslandi eru til dæmis bandarískar fjárfest- ingar. Bandaríska hagkerfið er gríðarlega þróað og viðskipti á milli Íslands og Bandaríkjanna eru mjög þróuð.“ Hvað varðar útflutning til Bandaríkjanna nefnir Magnús sjávar- afurðir og bendir á að Bandaríkin séu mikilvægur markaður fyrir frosinn fisk. „Spennandi hlutir eru að gerast eins og með útflutning á vatni og vörur eins og 66°Norður framleiðir eru að sækja á. Það er ekki spurning að öll sú vinna sem hefur farið fram í Norður-Ameríku hefur vakið áhuga á Íslandi og því sem héðan kemur. Auk þess sjáum við sífellt fleiri bandaríska ferðamenn koma til Íslands og það hefur aukið eftirspurn eftir íslenskum vörum.“ Mikilvæg viðskipti við Bandaríkin F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6 67 „Viðskiptin á milli Íslands og Banda- ríkjanna eru miklu umfangsmeiri en fólk gerir sér grein fyrir.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.