Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 20
20 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6
FORSÍÐUGREIN
Grímur segir að búnings- og baðaðstaða muni taka miklum
stakkaskiptum. „Áhersla er lögð á að skapa þægilega og rúmgóða
aðstöðu fyrir gesti. Þrátt fyrir mikla stækkun fjölgum við ekki
skápum nema mjög lítið, markmið okkar er því fyrst og fremst að
bæta og auka þjónustu auk þess að styrkja hina einstöku upplifun
sem gestir okkar leita eftir. Auk rúmgóðrar almennrar búnings- og
baðaðstöðu munum við einnig bjóða gestum okkar aðgang að VIP
einkaklefum. Þessi aðstaða er sniðin að þörfum þeirra sem vilja njóta
heimsóknarinnar enn frekar. Algengt er að þekktir einstaklingar
heimsæki okkur og við fáum næstum daglega fyrirspurnir um slíka
aðstöðu,“ segir hann.
Auk þess að tvöfalda búnings- og baðaðstöðu verður nýr og glæsi-
legur veitingasalur tekinn í notkun. „Salurinn er fallega hannaður og
verður án efa einn sérstakasti veitingasalur landsins. Hann mun rúma
allt að 250 gesti. Bláa Lónið er nú þegar vinsæll funda- og ráðstefnu-
staður enda segjast menn fyllast orku á staðnum,“ segir Grímur.
Sigurður Þorsteinsson,
iðnhönnuður og vörumerkja-
sérfræðingur, hefur starfað
með Bláa Lóninu í 10 ár.
Könnun á þekkingu á vörumerkinu
Blue Lagoon Iceland
Bandaríkin:
9% 91%
32,2% 67,8%
34,2% 65,8%
36,5% 63,5%
55,1% 44,9%
63% 37%
Þýskaland:
Bretland:
Svíþjóð:
Danmörk:
Noregur:
Í könnun, sem unnin var af IMG Gallup, voru
16-74 ára Netnotendur spurðir hvort þeir
hefðu heyrt um Blue Lagoon Iceland.
Já Nei
Svona kemur Bláa Lónið
til með að líta út næsta vor
þegar framkvæmdum við
nýju heilsulindina lýkur.
Sigríður Sigþórsdóttir hefur
verið arkitekt allra mann-
virkja Bláa Lónsins frá
upphafi.