Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 60
KYNNING60 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6
Gutenberg ehf. stendur á gömlum merg og hefur starfað óslitið í meira en eina öld eða frá árinu 1904. Lengst af starf-aði Gutenberg sem prentsmiðja fyrir hið opinbera og ekkert
annað fyrirtæki getur státað af því að hafa þjónað Alþingi Íslendinga
í samfellt eina öld. Á löngum starfsaldri hafa orðið miklar breytingar
í prentiðnaði og prentmiðlun, ekki síst á síðustu árum. Gutenberg
hefur óhikað sótt inn á ný svið í takt við nýja tíma og býður marg-
víslega þjónustu umfram hið hefðbundna prentverk. Í dag þjónar
Gutenberg viðskiptavinum sínum með allt er viðkemur prentun:
ráðgjöf, hönnun og umbrot, offset og stafræna prentun, bókband,
umbúðavörur og dreifingu.
Breyting úr prentsmiðju í prentmiðlun
Framkvæmdastjóri Gutenbergs er Einar Birkir Einarsson og segir
hann verðmæti fyrirtækisins ekki síst liggja í áralangri reynslu og
þekkingu starfsmanna á þörfum markaðarins og möguleikum í
miðlunarlausnum: „Við höfum hægt og bítandi verið að breytast úr
prentsmiðju í prentmiðlun en stefnumótandi ákvörðun var hjá eig-
endum fyrirtækisins að slíta í sundur sölu, þjónustu og markaðshluta
fyrirtækisins frá framleiðslunni til að gera okkur mögulegt að vera
beittari á markaðinum og eins til að skapa meiri fjölbreytni. Fram-
leiðsludeildin sameinaðist framleiðsludeild Prentsmiðjunnar Odda og
úr þeim var stofnað fyrirtækið OPM. Við þessa breytingu fengum
við aðgang að mun fleiri og öflugri prentvélum sem eru með fjöl-
breytta möguleika í prentun og umbúðavörum. Má með sanni segja
að Gutenberg hafi verið að breytast úr prentsmiðju í fyrirtæki sem
býður upp á allar lausnir í prentmiðlun.
Þessi breyting hefur gert það að verkum að innra skipulag fyrirtæk-
isins hefur breyst og á undanförnu ári höfum við unnið að því breyta
því í takt við nýtt hlutverk og nýjar áherslur. Ég kom til Gutenbergs
í maí síðastliðnum og hefur það verið mitt verk að ljúka þessu breyt-
ingaferli og um leið höfum við byggt upp sölu- og markaðsmálin svo
til frá grunni.“
Nýtt húsnæði
Eitt stærsta stökkið í breytingum á Gutenberg var flutningur í nýtt
húsnæði að Suðurlandsbraut 24, á 1. hæð, sem Einar Birkir segir
skipta miklu máli: „Húsnæðið í Síðumúlanum, þar sem við vorum,
Gutenberg ehf.
Breyttar áherslur og nýtt húsnæði
Stjórnendur Gutenbergs: Hermann Sverrisson, forstöðumaður reikningagerðar, Stefán Hjaltalín, þjónustustjóri, Jón
Hermannsson, forstöðumaður margmiðlunardeildar og Guðmunda Elíasdóttir, markaðsstjóri. Í aftari röð: Sigurður Björn
Blöndal, markaðsstjóri og Einar Birkir Einarsson, framkvæmdastjóri Gutenbergs.