Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 22
22 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6
FORSÍÐUGREIN
1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006*
400.000
300.000
200.000
100.000
0
Fjöldi gesta í Bláa Lónið 1999-2006
Lækningamátturinn hefur því allt frá upphafi skipað veigamikinn
sess í starfsemi fyrirtækisins og á sl. ári tók Bláa Lónið í notkun nýja
og glæsilega lækningalind þar sem veitt er meðferð við psoriasis.
Lækningamátturinn var það sem fyrst vakti áhuga Gríms á Bláa
Lóninu. Hann starfaði á þessum tíma sem heimilislæknir og hafði
áhuga á gjaldeyrisskapandi ferðaþjónustu. Hann stofnaði Íslenska
heilsufélagið, en markmið þess var að skoða möguleika á því sviði.
Íslenska heilsufélagið og Grindavíkurbær stofnuðu Bláa Lónið hf. 1.
júní 1992.
Grímur segir að markmið Bláa Lónsins hf. hafi allt frá upphafi
verið að stuðla með markvissum hætti að uppbyggingu við Bláa
Lónið. Tveimur árum frá stofnun þess tók hið nýstofnaða félag við
rekstri baðstaðarins við Bláa Lónið. Félagið opnaði jafnframt með-
ferðarstöð þar sem veitt var meðferð við psoriasis. Starfsemin fór öll
fram í bráðabirgðahúsnæði og óhætt er að segja að mikil vatnaskil
hafi átt sér stað í starfsemi fyrirtækisins þegar ný heilsulind var tekin
í notkun um mitt ár 1999. Opnun lækningalindarinnar árið 2005
markaði einnig tímamót fyrir fyrirtækið en þá fékk psoriasis-með-
ferðin umgjörð sem sómi er að.
Blue Lagoon í Reykjavík og í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
„Verslanir okkar hafa verið í mikilli þróun að undanförnu,“ segir
Grímur. „Fyrr á þessu ári opnuðum við verslun að Laugavegi 15
í Reykjavík og rúmgóða verslun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þar
bjóðum við jafnframt upp á handa- og fótameðferðir. Þetta er í fyrsta
skipti sem slík þjónusta býðst í flugstöðinni, en spa-þjónusta er ört
vaxandi í flugstöðvum erlendis og því er skemmtileg nýbreytni að
geta boðið þessa þjónustu,“
„Öll hönnun verslananna er í anda okkar náttúrulega umhverfis
og því á viðskiptavinurinn að finna fyrir sterkum Blue Lagoon hug-
hrifum innan veggja verslananna. Sama hugsun gildir erlendis og
verslanir okkar þar verða í sama anda, með sterkri skírskotun til Bláa
Lónsins,“ bætir Grímur við.
Hreyfing- heilsurækt í hópinn
Fyrirtækið hefur að undanförnu verið að þróa frekar þann þátt starf-
seminnar sem lýtur að því að bjóða Blue Lagoon upplifun utan Bláa
Lónsins. ,,Íslendingar munu innan skamms getað notið Blue Lagoon
meðferðar á höfuðborgarsvæðinu. Bláa Lónið festi kaup á Hreyfingu
– heilsurækt á sl. ári. Starfsemi Hreyfingar verður flutt í nýtt og
glæsilegt húsnæði í Glæsibæ eftir rúmlega ár. Þar munum við bjóða
fullkomnustu líkamsræktaraðstöðu landsins og þar fá gestir aðang að
sérstöku Blue Lagoon spa með Blue Lagoon spa meðferðum. Ágústa
Johnson sér áfram um rekstur Hreyfingar og stendur sig frábærlega
vel þar.“
„Öll hönnun verslananna er í anda
okkar náttúrulega umhverfis og því á
viðskiptavinurinn að finna fyrir sterkum
Blue Lagoon hughrifum. Sama hugsun
gildir erlendis og verslanir okkar þar
verða í sama anda, með sterkri
skírskotun til Bláa Lónsins,“