Frjáls verslun - 01.09.2006, Blaðsíða 38
38 F R J Á L S V E R S L U N • 9 . T B L . 2 0 0 6
„Tískuvörumarkaðurinn er erfiður og
frekur á tíma. Við vorum byrjaðir í fasteigna-
viðskiptum og vildum einbeita okkur alfarið
að því, sem og að eiga möguleika á að fara í
önnur verkefni. Slíkt er erfitt þegar maður er
með rekstur af einhverju tagi. Maður er alltaf
með hugann við reksturinn og okkur fannst
við vera bundnir af honum. Því seldum við
reksturinn til NTC í ársbyrjun 2005, sem
var geysilega mikil viðurkenning fyrir okkur
bræður og Sölva því að NTC er stærsta og
þekktasta fyrirtækið í tískubransanum hér
á landi.“
Algjör straumhvörf
Óhætt er að segja að straumhvörf hafi orðið
í fasteignaviðskiptum hérlendis þegar við-
skiptabankarnir fóru síðla sumars 2004 að
bjóða íbúðalán til almennings á mun lægri
vöxtum en áður höfðu tíðkast. Markaðurinn
gjörbreyttist og Íbúðalánasjóður fékk í fyrsta
sinn raunverulega samkeppni.
„Þarna sköpuðust í raun alveg ný tæki-
færi, bæði fyrir athafnamenn og almenn-
ing. Með nýjum lánamöguleikum varð fólki
mun auðveldara að komast
úr leiguhúsnæði í litla blokk-
aríbúð, úr íbúð í raðhús eða
úr raðhúsi í einbýlishús. Að
komast upp um eina tröppu
varð fólki ekki sama átak og
verið hafði,“ segir Bjarki og
bætir við að þeir bræður hafi
ákveðið að nýta möguleikana
þegar svigrúmið skapaðist.
Þeir keyptu sex íbúðir í bygg-
ingu í Álfkonuhvarfi í Kópa-
vogi og nokkrar íbúðir í Grafarholti. „Við
vildum einfaldlega sjá hvernig fasteignamark-
aðurinn virkaði og hvort við gætum náð þar
árangri í samræmi við okkar markmið, sem
raunin varð,“ segja bræðurnir.
Þau ár sem Arnar og Bjarki bjuggu erlendis
kynntust þeir starfsemi fasteignafélaga er hafa
með höndum fjölþætt verkefni, frá kaupum
byggingarlanda, skipulagningu þeirra og til
sölu fullbúinna íbúða. Bræðurnir afréðu að
stofna slíkt félag og kynntu
þær fyrirætlanir fyrir Guðna
Bergssyni félaga sínum sum-
arið 2004. Honum leist strax
vel á hugmyndina, gekk í
málið og fékk til liðs við þá
Valsarana Brynjar Harðarson
og Jón Grétar Jónsson og
Sigrúnu Þorgrímsdóttur sem
öll störfuðu hjá fasteignasöl-
unni Húsakaupum.
Hanza-hópurinn heppnast vel
Tjarnarbyggð ehf., sem nú heitir Hanza-
hópurinn, varð til í kringum fyrsta verkefnið
sem hópurinn tókst á við, sem var á svo-
nefndum Rafha-reit við Lækjargötu í Hafn-
arfirði, þar sem reist voru fjögur hús með
89 íbúðum. „Ég held að Hafnfirðingar séu
Svona mun hverfið á Arnarneshæð líta út fullbyggt, eftir um þrjú ár. Framkvæmdir eru komnar á gott skrið, en þarna verða alls um 330 íbúðir.
„Betra hefði verið ef
bankarnir hefðu strax
í upphafi verið stífir
á greiðslumatinu.
Þá hefði ekki þurft
að koma til þessara
aðhaldsaðgerða í
sumar.“