Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Page 16

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1947, Page 16
110 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR tugum saman, aí því þessar uppfundníngar gátu aukið samkepni við einokunarhríngana; eða tökum til dæmis slíkan lífgjafa sem súlfa- lyfin, en þau hepnaðist kapítalistum að fela í efnarannsóknarstofum eins hríngsins í hérumbil þrjátíu ár. Erfiðleikarnir á því að prédika auðvaldsstefnu í Rússlandi og end- urreisa kapítalisma þar í landi eru þannig ekki af blaðamönnum auð- hrínganna taldir orsakast af ótta Rússa við vísindalegar staðreyndir, enda hryggilegt að aldrei skuli hafa tekist að sanna að þetta þjóðfé- lagsform nítjándu aldar, kapítalisminn, sé hentugasta skipulag mann- legs félags; og leitun mun á manni sem lítur svo á, varla einusinni að kapítalistar haldi því fram sjálfir; jafnvel æsíngamenn afturhalds- ins berjast ekki einusinni gegn kommúnisma á þeim forsendum að kapítalismi sé gott fyrirkomulag. Nú er það ekki ætlun mín að reyna að setja hér reglu um hvar skuli settar skorður við prédikun kennínga eða tilraunum að framkvæma kenníngar. Og þarsem ég er sjálfur ekki siðferðilegur hugsjónasinni skal ég varast að gera tilraun til að dæma milli tveggja andstæðra siðferðiskerfa. En það sem gerir frjálsa boðun kapítalisma og frjálsa starfsemi kapítalista óhugsanlega í Ráðstjórnarríkjum er ofur einfaldlega sú staðreynd að kapítalismi er í því landi úrelt og útkulnað form, dauðara en alt dautt. í landi þar sem manni er með lögum bannað að græða á vinnu annars manns; þar sem ekki eru til neinir kapítalistar að prédika kapítal- isma, meira að segja allir hálaunamenn svosem skáld, kolanámu- menn og filmstjörnur eru kommúnistar, og þarafleiðandi ekki til nein auðvaldsstétt til að taka höndum saman í stjórnmálabaráttu; í landi þar sem stjórnarkerfið er efnahreinsað af öllum skilyrðum til kapítalisma; þar sem öll auðvaldskynjuð starfsemi, alt arðrán hverju nafni sem nefnist er skilgreint sem glæpur, — mundi ekki fánýt orðaeyðsla ef farið væri að útlista hinn augljósa óframkvæmi- leik kapítalistiskrar starfsemi í slíku landi. Ríkið Pakistan er grundvallað á þeirri kenníngu að frelsun mann- legra sálna sé einkum að þakka hedjíra, brottför Mahómets frá Mekku árið 622. Hinir afturámóti sem aðhyllast þá kenníngu að sálin frelsist á að flakka úr mönnum í dýr, eða við endurholdgun, hafa stofnað rikið Hindústan. Málstað beggja má sanna með sömu rökum: þú geingur út og kaupir þér rýtíng.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.