Tímarit Máls og menningar - 01.12.1963, Blaðsíða 69
MÚSÍK í SOVÉTRÍKJ UNUM
teknir á konservatóríum, lokastig
músíkmenntunar (en að þeim með-
töldum eru nú 382 músíkmenntastofn-
anir í landinu með 65,780 nemend-
ur). Hér varir nám í 5 ár (alls frá
barnastigi þá: 16 ár!), og skýrist þá
afburða frammistaða sovétskra tón-
listarmanna, hvar sem er í heiminum.
Ef við tökum fagið kórstjórnandi, þá
ber nemanda í fimm ár að skila eftir-
töldum prófgreinum: Kórsöngur
1020 klukkutímar, hljómsveitarstjórn
340 stundir, kórstjórn 70 stundir,
partítúrspil 50 stundir, sólósöngur 50
stundir, uppeldisfræði og kennsla 240
stundir, alþýðulist og kórbókmennt-
ir 270 stundir, píanóleikur 190 stund-
ir; gerir alls 5030 kennslustundir
undir handleiðslu kennara. — Hér
við bætast 200 stundir í hljómfræði
og kontrapúnkti og 300 stundir í
músíksögu, svo að alls verða tímarn-
ir 5530.
Við konservatóríum Sovétríkjanna
er starfandi sérstök músíkvísinda-
deild (en ekki við háskóla). Er það að
þessu leyti frábrugðið löndum Vest-
ur-Evrópu, þar sem músíkvísindi eru
grein af heimspekideild háskóla.
Konservatóríum útskrifar konsert-
sólista ýmissa hljóðfæra, óperusöngv-
ara, hljóðfæraleikara fyrir fílharm-
óníuhljómsveitir, tónskáld, hljóm-
sveitarstj óra, músíkvísindamenn
(tónfræðinga og sagnfræðinga) og
uppeldisfræðinga og kennslukrafta
handa músíkfagskólum og æðri skól-
um (konservatóríum er einnig mið-
stöð konserta með góðum hlj ómleika-
sal); í Moskvu hlutu þar menntun
sina Tanejef, Skrjabín, Rakhmanin-
of, Gliére og Sjebalín, í Leningrad
Tsjaikovskí, Glasunof, Prokofjef,
Mjaskovskí og Sj ostakovitsj.
í músíkvísindum er einnig starfað
ötullega. Veitt er kandidatspróf og
doktorspróf. Og vísindaráðstefnur
fjalla þar t. d. um æviverk Tsjaikov-
skís, Rakhmaninofs og Beethovens;
önnur viðfangsefni eru: franskir sym-
fóníkerar á 19. og 20. öld, germansk-
ir og rómanskir skólar í hljómsveitar-
stjórn, Rousseau sem músíkfræðing-
ur og tónskáld, hljómfræðileg þróun í
rússneskri músik á 19. og 20. öld,
Glinka og Cherubini, sögulegir sigr-
ar Beethovens á sviði músíkforms.
Konservatóríið í Leningrad er elzt og
átti í fyrra (1962) 100 ára afmæli.
En einnig önnur konservatóríum láta
að sér kveða. Skólinn í Kiev rannsak-
ar úkraínskt þjóðlag í verkum rúss-
neskra tónskálda, í Baku eru skrifuð
vísindarit um „Viðhafnartóna í ar-
menískri þj óðlagamúsík“ og um
„Verndun barnsraddarinnar“, í Tifl-
is um „Tæknilega og listræna mögu-
leika söngvarans“ og í Erevan í Ar-
meníu um „ítalska söngskólann“. —
Við konservatóríið í Moskvu er
mikið safn músíkmenningar; eru þar
geymdar 250 þús. síður af handrit-
um frægra tónskálda allra tíma, auk
þess dagbækur og endurminningar
339