Tímarit Máls og menningar - 01.06.1969, Síða 48
Tímarit Máls og menningar
„Það er bezt ég fari og taki til kaffið.“
„Ég skal hjálpa þér.“
„„Life is a tale told by an idiot,“ er það það, sem þú átt við?“
„Valur, þú ert drukknaður. Hugsaðu þér, maður, þú ert búinn að týna
kórónunni, sem þú varst krýndur með, nefnilega sál þinni; þú ert orðinn
samsull nokkurra sýrutegunda. Sérðu ekki hvert stefnir? Lífið er stærsta
blekkingin. Lífið er stærsta lýgin. Það er ekkert til nema dauði.“
„En tilfinningar?“
„Tilfinningar eru það, sem verður til á tímabilinu frá því að maður óskar
sér og þar til óskin rætist. Þær skapast af vanlíðan. í fullkominni mannlegri
sælu eru engar tilfinningar. Því minni skynsemi, þeim mun meiri tilfinning-
ar. Meðvitund þín skynjar þennan tj áningarmáta vanlíðunar þinnar, eins
og þú til dæmis skynjar vissa tegund lofttitrings sem hljóð. Þær eru jafn
steindauðar og hljóð.
Sjáið þið ekki holdsveikipolla dauðans á líkama ykkar? Skiljið þið ekki,
að þegar þið fæddust, sem litlir iðandi holdkekkir, þá voruð þið óskrifuð
blöð, sem hendur vitfirrings fylltu af meiningarlausu kjaftæði. Að allt, sem
skeður í höfði ykkar á rætur að rekja til utan að komandi áhrifa, til erfða-
lyga, sem enginn má rýna í, því að þá hrynur allt til grunna.“
„Og þá hrynur allt til grunna.“
„Farðu nú að hætta þessu kjaftæði, Hannes.“
„Bravó. Bravó.“
„Og heimspeki verður að grundvalla á vísindalegum niðurstöðum. En að
grundvalla heimspeki á vísindalegum niðurstöðum er hið sama og að
sprengja andlega atómsprengju innan höfuðskelja mannsins."
„Ég veit ekki, hvort maður ætti að horfast í augu við sannleikann um
sjálfan sig, ef það augnatillit nægði til að æra mann.“
„Hvað kemur mér við, þótt allt væri afsannað, hvaða gagn hefði ég af
því?“
„Leyfið mér að bjóða ykkur hér inn í hobbíherbergið mitt.“
„Lítið á, herrar mínir. Vitið þið, hvað þetta er?“
,Já, bílmótor.“
„Bílmótor, já. Og vitið þið að taugakerfi allrar vélvæðingar er þróun bíl-
mótorsins. Vélin í bilnum ykkar brúar bilið milli ykkar og tæknifræðings-
ins. Takið eftir herrar mínir.“
38