Tímarit Máls og menningar - 01.06.1969, Qupperneq 50
Tímarit Máls og menningar
„Og lífið er þjáning, sagði Búddha.“
„Og lífið er þjáning, sagði Búddha.“
„Og lífið er þjáning, sagði Búddha.“
„Svo sem þú ert fæddur með þjáningu i þennan heim, muntu og fæða hug-
sjónir þínar og tilfinningar með þjáningu.“
„Allt fram streymir endalaust."
„Þú hefur lagt líf þitt á altari myrkursins og mundar fómarhnífinn yfir
brjósti þess.“
„ Aaaaaaaaaaaahhhhh! “
„Þú ert flæktur í orðum, Hannes, og þú flækir aðra í orðum. Absalon
flæktist forðum á hárinu í trjágrein og var bjargarlaus, unz hann var skor-
inn niður.“
„Hver er sá veggur, víður og hár ...“
„Regnboginn, regnboginn.“
„Þín heimsmynd er sönn, Hannes, því hver maður hefur rétt á sinni heims-
mynd. En gildi þeirra fer eftir því, hversu hæfar þær eru til að gera menn
hamingjusama."
„Þið eruð nátttröll.“
„Hafið þið aldrei séð himininn innra með ykkur, sem hvelfist yfir og undir
og allt í kringum orð ykkar og reynslu, óræður og ósnertanlegur eins og
himinninn yfir höfði ykkar?“
„Halelúja, halelúja.“
„Þú heldur ef til vill líka, að einhver æðri forsjón stjórni heiminum?“
„Já, kannski.“
„Þú ert moldvarpa eins og við hin og skríður um í næfurþunnri skorpu lofts
og moldar milli glóandi jarðkjarnans og tómsins. Streyta náttúruafla hefur
egnt hugsun fram í hausinn á þér og þess vegna ertu til — af miskunnarleysi
en engri miskunnsemi. Þú hefur verið geltur og taminn, eins og hross, og
markmiðið með tamningunni er að gera þig sem fylgispakastan við allar
þj óðfélagskröfur.“
„Allah, gef mér asna.“
„Nei, Allah, gef mér vél. Ég krýp fyrir þér ó undratæki. Allah, veit mér að
verða hið auðvirðilegasta tannhjól í almáttugum vélskrokk þínum.“
„FordmóFord, lát þú náðardaga hinnar fullkomnu samræmingar renna sem
fyrst yfir þetta ráðþrota mannkyn. Veit oss hið heilaga sakramenti: tækni-
frjóvgunina, svefnkennsluna og hina æðri hugsanasamræmingu.“
„Veit þú oss ...“
40