Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1974, Side 129

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1974, Side 129
Vissi ég ekki að’ Helgi Háldanarson, höfundur að þessum Ijóðaþýðingum, væri manna ófúsastur að hverfa frá brauðstriti sínu, liefði cg talið það menningarlega skyldu íslenzka ríkisins að gera honum kleift að helga sig hugðarefnum sínum einum og húa honum kjör á borð við þau sem snilldarþýðendum buðust í borginni Bagdad fyrir eitt þúsund árum - til að þýða bók allra kínverskra bóka á íslenzka tungu í jafnmeistaralegum búningi og þessum. Rögnvaldur Finnbogason. „ÞANGAÐTIL MUN ÉG SKJÓTA ÖRVUM MÍNUM“ Pétur Gunnarsson álítur tvímælalaust að bókmenntir séu spegilmynd þess raunveru- leika sem þær eru sprottnar úr.1 Þetta upp- haf kann að hljóma kunnuglega en áður en lesandinn leyfir hugsuninni - aha, dólgamarxisti ... - að gægjast úr hugar- fylgsninu vil ég taka það fram að ég á ekki við kredduskilning eða „dogma“. Þegar talað er um raunverulejka, í þessu sambandi, er jöfnu báðu átt við huglægan og hlutlægan veruleika. Allar bókmenntir, sem samdar eru, taka mið af slíkum veru- leika einfaldlega vegna þess að í honum eru öll viðmið og þekking manna fólgin. Maðurinn sem býr til bókmenntir sleppur aldrei úr þessu neti viðmiða og þekkingar því hversu „ópólitískur“ sem hann segist vera kemur hann alltaf upp um sig. Jafn- vel æðisgengnasti veruleikaflótti og lífs- lygi í skáldskap leggja ótvíræð gögn í hendur þeim sem vill skilja samfélag hans. Ég staðhæfði í upphafi máls míns að af þessu tagi væri skilningur Péturs Gunn- arssonar á bókmenntum og samfélagi, 1 Pétur Gunnarsson: Splunkunýr dagur Heimskringla 1973. 100 bls. Umsagnir um bœkur hlutverki Ijóðs og skálds. Það er því ekki úr vegi að reyna að færa nokkur rök fyrir því og best til fallið að leita fyrst upp- sprettunnar og athuga hvaða raunveruleiki sést í Ijóðum Péturs. Borgir Vesturlanda eiga mikil ítök í Ijóðunum og það getur varla talist undar- legt. Löndunum er stjórnað frá borgum, þar er ráðum ráðið og þar er drýgstur hluti hvers konar framleiðslu og neyslu. Þar er bæði fín menning og hinsegin menning og síðast en ekki síst mestur hluti fólksins. Lýsingar Péturs á borginni eru eindregnar. Ef nefndir eru nokkrir drættir í þeirri mynd þá er borgin steinn, skýskrafar standa upp í loftið eins og tittlingar með holum þar sem fólkið býr og þar sem það æðir út og inn. Padda hleyp- ur æðandi og reykspúandi um göturnar með fólkið þegar það er ekki að vinna fyrir matnum og steininum sem umlykur það: og ef maðurinn einhverntíma var þá er hann hvað í þessu grjóti? Undir öllu þessu grjóti, í iðrum jarðar, í loftleysi, skít og hávaða, bíður fólk eftir öskrandi skröltorminum sem fer með það í vinnuna svo að það geti unnið fyrir meiri mat og steini. Það er þannig ekki borgin sem slík sem máli skiptir heldur hlutverk hennar: borgin er lífsform rammi utanum líf fólksins svo það lendi ekki á villigötum Flestir ganga líka þær réttu götur sem eru beinar og breiðar. Þess vegna lifa milljónir manna hamingjusnauðu lífi inn- an ramma borgarinnar. Þegar nýr dagur rennur upp valcnar borgin: eitl af öðru uppljúkast húsin útúr þeim stígur fólk útí nýjan dag 119
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.